
Mygla

Starfsmenn á tveimur stöðum veikst vegna myglu
Dæmi eru um að starfsfólk Ríkislögreglustjóra hafi veikst vegna myglu á tveimur mismunandi starfsstöðvum. Flytja hefur þurft starfsemi sérsveitarinnar í nýtt húsnæði, en ríkislögreglustjóri segir aðstöðu hennar hafa verið ómögulega um árabil.

Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar
Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans.

Töpuðu dómsmáli vegna húss sem reyndist fullt af myglu
Þau Jóhanna Guðný Gylfadóttir og Þorgils Sigvaldason fjárfestu í einbýlishúsi í Kórahverfinu í Kópavoginum árið 2017. Eftir að hafa búið í húsinu í nokkur ár kom í ljós nánast altjón á eigninni sökum myglu.

Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu
Orkuveitan hefur verið sýknuð af öllum kröfum konu sem starfaði hjá fyrirtækinu en þurfti að hætta vegna veikinda af völdum myglu. Landsréttur taldi Orkuveituna hafa gripið til nægra ráðstafana með því að færa starfsmenn úr þeim hluta Orkuveituhússins sem var myglaður.

Skoða að flytja Blóðbankann vegna myglu og raka
Til greina kemur að flytja starfsemi Blóðbankans vegna raka- og mygluvandamála sem upp komu í húsnæði hans við Snorrabraut. Mygla greindist síðasta sumar eftir langvarandi kvartanir starfsfólks.

Mygla og spilliefni hafi flækt framkvæmdirnar
Fokdýrum framkvæmdum við niðurrif gamla frystihússins á Kirkjusandi fer senn að ljúka og stefnt á að hefja uppbyggingu yfir tvöhundruð íbúða á svæðinu í haust. Árum saman hefur húsið staðið tómt síðan rakaskemmdir komu í ljós.

Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu
Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að selja höfuðstöðvar félagsins að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Lýkur þar með endanlega tæplega hálfrar aldar aðsetri orkufyrirtækis þjóðarinnar á þeim stað. Landsvirkjun hefur ekki haft aðsetur í húsinu í tæpt ár vegna myglu.

Húsfélag ekki skaðabótaábyrgt vegna myglu í séreign
Kærunefnd húsamála metur sem svo að húsfélag sé ekki skaðabótaábyrgt vegna tjóns í íbúð manns í fjölbýlishúsi. Forsvarsmenn húsfélagsins hafi ekki vanrækt skyldur sínar gagnvart eigendum í húsinu.

Bein útsending: Skaðlegt inniloft, loftræstingar og heilsa
Ráðstefna um skaðlegt inniloft, loftræsingar og heilsu fer fram í Háskólanum í Reykjavík í dag.

Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu
Mygla hefur greinst í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. Niðurstaða greiningar verkfræðistofunnar Verkís hefur leitt í ljós að myglu er að finna á þremur stöðum en að kjallarinn sé verst farinn.

Mygla í Blóðbankanum hafi ekki áhrif á starfsemi bankans
Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt.

Svört vanilla gegn myglu og rakaskemmdum eða látum við fólk njóta vafans?
Ætli ég sé að verða lasin? Rosa skrýtnir þessir beinverkir og svo í eyrunum líka. Svo er ég líka alltaf stífluð með ráma rödd.

Mygla í samhæfingarstöð almannavarna
Víðir Reynisson segir að það hafi komið upp mygla í rými í samhæfingarstöð almannavarna. Rýminu hefur verið lokað og lokunin mun ekki hafa áhrif á starfsemina. Til greina kemur að flytja starfsemina tímabundið annað á meðan unnið er að viðgerðum.

„Mjög þungt högg fyrir Akureyri“
Tveir heimilislæknar hafa sagt upp störfum á heilsugæslunni á Akureyri og nýverið var tveimur yfirlæknum sagt upp. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir ástandið þungt högg fyrir bæinn.

Kláði, verkir, bólgur og sýkingar algeng vegna myglunnar á Reykjalundi
Tugir starfsmanna Reykjalundar þurftu að rýma húsnæði sitt í dag vegna myglu og lélegra loftgæða. Talið er að hluti þess sé ónýtt. Starfsfólk og sjúklingar hafa þurft frá að hverfa til skemmri og lengri tíma vegna veikinda.

Mygla varð til þess að báðum yfirlæknum var sagt upp
Báðum yfirlæknum heilsugæslunnar á Akureyri hefur verið sagt upp störfum en boðið að starfa áfram sem heimilislæknar. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að uppsagnir hafi verið nauðsynlegar eftir að áform um að halda úti tveimur heilsugæslustöðvum í bænum runnu út í sandinn.

Leigusali þarf ekki að greiða fyrir fatahreinsun vegna fúkkalyktar
Leigusali þarf ekki að greiða leigjanda 35 þúsund krónur í kostnað á fatahreinsun vegna fúkkalyktar í leiguhúsnæði.

Steypan í mörgum skólum varla gerð til að halda vatni
Í Vörðuskóla við Barónstíg í Reykjavík standa nú yfir tilraunir þar sem rannsakað er hvað þarf nákvæmlega að gera til að koma í veg fyrir myglu sem hefur komið upp víða. Framkvæmdastjóri viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir enn fleiri skóla þurfa að búa sig undir það sama á næstu árum.

Starfsfólk Kópavogsbæjar heim vegna myglu
Starfsfólk sem vinnur á skrifstofum Velferðarsviðs Kópavogsbæjar eru heimavinnandi frá og með mánudeginum vegna myglu í húsnæði bæjarins í Fannborg 6.

Tilfinningarík stund þegar Sigríður Heiða kvaddi Laugarnesskóla
Sigríður Heiða Bragadóttir, fyrrverandi skólastjóri Laugarnesskóla, kvaddi nemendur og starfsfólk í dag. Hún hefur verið skólastjóri í sautján ár en tilkynnti um starfslok sín í sumar. Sagðist hún þar hafa neyðst til að hætta að læknisráði vegna veikinda tengdum myglu í skólanum.

Engin réttindi, engin þekking, engin ábyrgð
Um langa hríð hafa lekavandamál og mygla í íbúðarbyggingum verið áberandi umfjöllunarefni í fjölmiðlum. Haldnar hafa verið fjölmargar ráðstefnur og fundir auk þess sem nefndir hafa verið settar saman til að fjalla um þessi vandamál.

Framkvæmdir dregist og skólasetningu frestað
Viðgerðir standa nú yfir á skólalóð Hagaskóla vegna myglu sem fannst í meirihluta bygginga. Uppbygging bráðabirgðahúsnæðis hefur dregist á eftir áætlun og því hefur skólasetningu í lok þessa mánaðar verið frestað.

Engin mygla lengur í Sunnulækjarskóla á Selfossi
Í vor mældist mygla í vinnuherbergjum í Sunnulækjarskóla á Selfossi og var þeim herbergjum strax lokað og hafist handa við lagfæringar á þeim eftir að starfsmenn fóru í sumarfrí.

Mygla í Valhúsaskóla
Mygla hefur greinst í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Tvær skólastofur komu verst út í greiningu á húsnæðinu og þarf að bregðast strax við í þeim. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar er þó bjartsýnn á að rask vegna viðgerða verði ekki of mikið.

Ráðherra kortleggur loftgæði grunn- og leikskólabarna
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að ráðast í átaksverkefni um kortlagningu innilofts í skólum og leikskólum. Markmið verkefnisins er að fá yfirsýn yfir stöðuna en samkvæmt minnisblaði ráðherra eru engin heildstæð opinber gögn til um málefnið.

Skólastjóri og fleira starfsfólk hætt vegna myglu
Skólastjóri Laugarnesskóla greinir frá því í tölvupósti til foreldra barna í skólanum að hún þurfi að stíga til hliðar sökum ástandsins á húsnæði skólans. Aðstoðarskólastjóri skólans segir að fleira starfsfólk hafi þurft að grípa til sömu ráða vegna húsnæðisins. Viðgerðir taki of langan tíma.

Landsvirkjun flytur vegna myglu
Landsvirkjun er búin að flytja höfuðstöðvar sínar úr Háaleitisbraut 68 vegna myglu sem fannst þar síðasta haust. Frekari rannsóknir sýndu að umfang myglunnar var töluvert. Höfuðstöðvarnar verða nú tímabundið að Katrínartúni 2 í Reykjavík.

Ásmundur Einar sendir starfsfólk heim vegna myglu
Mennta-og barnamálaráðuneytið er nú í húsnæðisleit vegna myglu í húsnæði ráðuneytisins að Sölvhólsgötu 4 í miðborg Reykjavíkur. Hluti starfsmanna er heimavinnandi.

Myglan hafi engin áhrif á skólahaldið
Mygla hefur greinst í húsnæði Háskólans á Bifröst. Byggingar skólans eru nú lokaðar vegna þessa. Rektor háskólans segir þó að myglan muni ekki hafa nein áhrif á skólahaldið þar sem námið er kennt í fjarkennslu.

Þurfti að geyma vinnufötin í plastkassa vegna myglu
Á dögunum sendi starfsfólk Laugarnesskóla borgarstjóra opið bréf þar sem það krefst úrbóta á starfsaðstæðum. Dæmi eru um að starfsfólk hrökklist úr starfi vegna veikinda sem rakin eru til myglu og raka. Nýlega barst borgarfulltrúum ályktun frá fulltrúum starfsfólks Laugarnesskóla sem segir komið að þolmörkum.