
Húnabyggð

„Ömurlegur endir á góðu ferðalagi“
Enginn slasaðist alvarlega þegar rúta með rúmlega tuttugu starfsmönnum Akureyrarbæjar valt snemma í morgun skammt frá Blönduósi. Þjónustustjóri segir þetta mikið áfall fyrir fólkið en flestir voru sofandi þegar atvikið átti sér stað.

Akureyringar á leið heim eftir Evrópuferð í rútunni sem valt
Rúta sem valt skammt sunnan við Blönduós á sjötta tímanum í morgun var að ferja 23 Akureyringa til síns heima frá Keflavíkurflugvelli. Sjö voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík. Aðrir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri. Enginn lést í slysinu og ekki vitað til þess að nokkur sé í lífshættu.

Þrír fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur og fjórir með sjúkraflugi
Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys skammt frá Blönduósi. Nokkrir aðrir voru fluttir með sjúkrabifreiðum til Akureyrar en þar voru fjórir settir í sjúkraflug til Reykjavíkur og nokkrir lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Þrír fluttir á sjúkrahús með þyrlu Gæslunnar eftir alvarlegt slys
Þyrla Landhelgisgæslunnar og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir út rétt eftir klukkan fimm í morgun eftir að tilkynning barst um mjög alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum sunnan við Blönduós.

Gamli bærinn á Blönduósi hefur tekið lygilegum breytingum
Þeir sem fara um og skoða sig í gamla bænum á Blönduósi þekkja varla gamla bæinn lengur því það er búið að gera upp og endurbyggja svo mikið af húsum á staðnum. Kirkjunni hefur til dæmis verið breytt í glæsilega hótesvítu.

Þingmaður á rangri leið
Þann 2.ágúst sl. birtist á visir.is grein sem Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður skrifar undir. Greinin, sem ber undarlegt heiti innan gæsalappa, fjallar í stuttu máli um að þingmaðurinn telji það afar mikilvægt að þjóðvegurinn verði styttur. Sami þingmaður fékk birta grein sem hann skrifar líka undir í Vikublaðinu þann 18. apríl sl. þar sem hann, sem fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem lögð var fram á Alþingi, vildi ráðast í endurnýjun vegarins yfir Kjöl og það í einkaframkvæmd. Þær hugmyndir eru útaf fyrir sig ágætar, með upphaf og endi í núverandi mynd.

Bíll valt í Langadal
Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði þjóðvegi númer 1 um Langadal um stund í aðra áttina í kvöld vegna bílslyss. Búið er að opna veginn að nýju.

Deila magnaðist þegar spennistöðin hvarf
Landeiganda í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu brá heldur í brún þegar heil spennistöð hvarf skyndilega af landi hennar fyrr í mánuðinum. Málið tengist langvarandi deilum um jörðina Stekkjarlæk en hún sakar nágranna sína á bænum Bergsstöðum um að eiga hlut að máli. Hún segist langþreytt á stöðunni og íhuga að krefjast nálgunarbanns.

Prjónar það sem henni er sagt að prjóna
Fullkomnasta prjónavél landsins er á Blönduósi en hún er stafræn, sem þýðir að hún prjónar það sem henni er sagt að gera þegar búið er að vinna prjónaverkefnið í gegnum tölvuforrit. “Þetta er mjög skemmtileg tækni, sem opnar marga möguleika,” segir Margrét Katrín Guttormsdóttir, umsjónarmaður vélarinnar á Blönduósi

Endurgreiða fyrsta skemmda ísinn í sögu Ísbílsins
Ísbíllinn endurgreiðir 34 ístegundir sem seldar voru í Eyjafirði, Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu 8. til 10. júlí síðastliðinn. Vegna mistaka hjá Samskipum hálfþiðnaði ís á leið til Akureyrar. Eigandi Ísbílsins segir um að ræða í fyrsta sinn sem slík mistök verði, það sé mikil vinna að verða við öllum endurgreiðslubeiðnunum.

Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu
Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi.

Svíta fyrir ferðamenn í gömlu kirkjunni á Blönduósi
Kirkjan í gamla bænum á Blönduósi hefur fengið nýtt hlutverk en hún er nú notuð, sem svíta fyrir ferðamenn, sem vilja prófa að gista í kirkju.

Sérstakt Eric Clapton herbergi á Hótel Blönduósi
Heilmikið líf er að kvikna í gamla bænum á Blönduósi því þar er búið að vera að gera upp gömul hús og koma þeim í rekstur, meðal annars Hótel Blönduósi þar sem Eric Clapton á sitt eigið herbergi.

Spenna magnast vegna Prjónagleðinnar á Blönduósi
Mikil spenna og eftirvænting er á Blönduósi fyrir Prjónahátíð, sem haldin verður þar aðra helgina í júní þar sem prjónafólk af öllu landinu mun sameinast til að prjóna og miðla prjónasögum. Sveitarstjóri Húnabyggðar hefur skráð sig á námskeiðið „Karlar prjóna“ á hátíðinni.

Stjórnvöld verði að breyta sínum áherslum í riðumálum
Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að sauðfjárbændur í Austur Húnavatnssýslu séu á nálum yfir því að riða getið komi upp á svæði þeirra eftir að riða kom upp á tveimur bæjum í Vestur Húnavatnssýslu í vor.

Biðlar til ökumanna að stoppa á Blönduósi
Sveitarstjóri Húnabyggðar biðlar til ferðamanna um að þeir stoppi á Blönduósi þegar þeir keyra í gegnum bæjarfélagið, ekki bara að stoppa til að fara á salerni eða að fá sér pylsu. Um sjö hundruð þúsund bílar keyra í gegnum Blönduós árlega og stoppa fæstir þeirra á staðnum.

Feðgarnir á Blönduósi verða ekki ákærðir
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða karlmanns sem varð konu að bana á Blönduósi í ágúst í fyrra. Þetta staðfestir verjandi í málinu við fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá.

Næturgisting í kirkju í boði á Blönduósi
Hótel Blönduós verður opnað með pompi og prakt eftir glænýjar endurbætur um helgina. Stórri svítu hefur verið bætt við í sjálfri gömlu kirkjunni á Blönduósi og gefst gestum og gangandi kostur á að skoða nýjan hluta af hótelinu um helgina, þó það opni ekki formlega fyrr en á mánudag. Myndasyrpu frá Blönduósi má skoða neðst í fréttinni.

Tilgangur kærunnar í Blönduósmálinu ekki að koma höggi á aðra aðstandendur
Fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, mannsins sem varð Evu Hrund Pétursdóttur að bana á Blönduósi í ágúst á síðasta ári, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar sinnar um að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á máli hans. Brynjar Þór lést eftir árásina. Fjölskyldan vill að allt verði gert til að varpa ljósi á málið og segir ætlunina ekki vera að koma höggi á aðra sem eigi um sárt að binda vegna málsins.

Ákvörðun um að gefa ekki út kæru vegna dauða árásarmannsins kærð
Ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða mannsins sem varð konu að bana á Blönduósi hefur verið kærð til ríkissaksóknara. Aðstandendur mannsins kærðu ákvörðunina.

Blönduós orðinn þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu
Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að Blönduós sé orðið þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu vegna starfsemi Textílmiðstöðvar Íslands á staðnum. Prjónahátíðin á Blönduósi er hluti af starfsemi textílmiðstöðvarinnar en verður haldin 9. til 11. júní í sumar á Blönduósi.

Segir enga peninga að fá nema í gegnum kunningsskap
Sveitarstjóri Húnabyggðar segir það sæta furðu að ekkert gerist í forgangsröðun á fjármunum ríkisins til svæða eins og Húnabyggðar nema í gegnum kunningsskap og útdeilingar úr nefndum þar sem ekkert gagnsæi ríki.

Blönduósmálið fellt niður á grundvelli neyðarvarnar
Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í rannsókn á manndrápi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Talið var að sakborningar í málinu hefðu ekki farið út fyrir takmörk sín til leyfilegrar neyðarvarnar. Málið hefði ekki verið líklegt til sakfellis.

Brúin skemmdist minna í krapaflóðinu en á horfðist
Starfsmenn Vegagerðarinnar luku við að lagfæra brú að bænum Barkarstöðum í Svartárdal í dag. Brúin skemmdist minna en á horfðist í miklu krapaflóði í Svartá á mánudagskvöld en miklar viðgerðir þarf á veginum um dalinn.

Fjölskylda og skólabíllinn innlyksa eftir krapaflóð í Svartárdal
Sex manna fjölskylda á bænum Barkarstöðum í Svartárdal er innlyksa á bænum eftir að krapaflóð eyðilagði brúna að honum í gærkvöldi. Skólabíll sveitarinnar er einnig fastur. Gríðarlegar skemmdir urðu á túnum og girðingum bænda í dalnum, að sögn bónda þar.

Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang.

Líklegt að tvö hundruð svín hafi drepist í eldsvoða
Allt tiltækt lið Brunavarna Austur-Húnvetninga var kallað í morgun vegna elds í svínabúi við Skriðuland í Langadal. Talið er að rúmlega tvö hundruð svín hafi drepist í brunanum en þó er útlit fyrir að tekist hafi að bjarga fimm til sex hundruð svínum.

Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans
Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér.

Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð
Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð.

Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum
Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra.