
Málefni heimilislausra

Óttast að íbúar utan Reykjavíkur festist í gistiskýlunum
Síðustu þrjú ár hafa 817 einstaklingar leitað til gistiskýlanna í Reykjavík vegna heimilisleysis. Í fyrra leituðu alls 394 einstaklingar til neyðarskýla en 423 árið áður. Fjöldinn í fyrra er sambærilegur þeim sem var 2022 þegar 391 leitaði í neyðarskýlin. Fjöldinn sem hefur leitað í gistiskýlin er fjölbreyttur en alls eru ríkisföng þessara 817 einstaklinga 45.

Við þurfum þjóðarstefnu
Öryggi er ein af grunnþörfum fólks. Einn mikilvægur þáttur í öryggiskennd fólks er skjól gegn veðri og vindum. Okkur sem samfélagi ber að tryggja að þeir sem leita aðstoðar og verndar geti fengið húsaskjól.

Húsnæði er forsenda bata
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt endurskoðaða aðgerðaáætlun í málefnum heimilislausra, sem gildir til ársins 2027. Áætlunin byggir á stefnu borgarinnar í málaflokknum. Síðustu ár hefur orðið gjörbylting í þjónustu við heimilislaust fólk sem nú er veitt á grundvelli skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri valdeflandi þjónustu.

Hálft líf heimilislausra kvenna
Leið kvenna inn í heimilisleysi er oftar en ekki afleiðing af ofbeldi í nánum samböndum. Erlendar rannsóknir sýna að 40-100% kvenna sem eru heimilislausar hafa búið við ofbeldi í nánum samböndum.

Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum
Tveir heimilislausir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, eftir að tilkynningar bárust um að þeir væru þar sem þeir voru óvelkomnir.

Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar
Ragnar Erling Hermannsson skorar á fólk að prófa að dvelja á kaffistofu Samhjálpar í heilan dag. Hann kallar eftir því að heimilislausu fólki verði úthlutað íbúðum hjá Félagsbústöðum. Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar segir reynt að gæta að mannúð í samskiptum við heimilislaust fólk.

Sat yfir líki í fjóra sólarhringa
Thelma Björk Brynjólfsdóttir lifði við það í aldarfjórðung að eiga móður sem var útigangskona. Móðir hennar flakkaði inn og út úr meðferð í gegnum árin og var á stöðugum vergangi. Hún var flutt í geðrofsástandi á stofnun eftir að sambýlismaður hennar fannst látinn og var að lokum svipt sjálfræði.

Hnífstunguárás í gistiskýlinu
Hnífstunguárásin sem greint var frá í morgun var framin í gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn á Lindargötu í Reykjavík. Það er önnur hnífstunguárásin sem framin er í gistiskýlum borgarinnar á örfáum mánuðum.

Nöturlegt fleti undir bryggju í Reykjavík
Þak úr plastpoka, loftlaus vindsæng og notaðar sprautunálar sýna fram á nöturlegar aðstæður heimilislausra í Reykjavík. Deildarstjóri í málaflokknum segir að enginn ætti að þurfa að gista undandyra.

Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar
Samhjálp leitar nú að nýju húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Kaffistofan hefur verið rekin í Borgartúni frá árinu 2007 en opnaði upprunalega árið 1981 á Hverfisgötu og hefur Kaffistofan því verið starfrækt í meira en 40 ár. Á Kaffistofu Samhjálpar er boðið upp á heitan mat alla daga, allan ársins hring.

Þúsundir heimilislausra fluttir frá París í aðdraganda Ólympíuleika
Þúsundir heimilislausra manna hafa verið fluttir frá París og nágrenni sem hluti af hreingerningaraðgerð vegna Ólympíuleikanna sem fara fram í borginni í sumar.

Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina
Þórey Einarsdóttir hefur síðustu tuttugu árin helgað líf sitt Konukoti. Fyrir tuttugu árum var hún ráðin til að vera húsfreyja og sinnir því starfi enn. Þórey hlaut í vikunni mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í ár fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga.

Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur
Þórey Einarsdóttir hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess.

Mikil aðsókn í neyðarskýli
Mikil aðsókn hefur verið í neyðarskýli borgarinnar fyrir heimilislausa síðustu daga að sögn sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir að samningur við Samhjálp um dagdvöl fyrir heimilislausra renni út nú um mánaðamótin og þá taki við önnur úrræði ef þörf krefur.

„Kominn tími til að við fáum bara að lifa“
Ragnar Erling Hermansson hefur vakið athygli fjölmiðla fyrir baráttu sína gegn heimilisleysi. Ragnar hefur lagt allt sitt í þá baráttu. Hann dreymir um að komast að rót vandans og eyða heimilisileysi fyrir fullt og allt.

Var Jesús heimilislaus?
Á liðnum árum hef ég notið þeirra forréttinda að nema og starfa í þremur löndum utan Íslands; Danmörku, Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Smáhýsin, hvernig hefur gengið?
Á þriðjudaginn næstkomandi 6. febrúar er fundur í borgarstjórn Reykjavíkur. Að beiðni Flokks fólksins hefur verið sett á dagskrá umræða um hvernig gengið hefur með smáhýsin í Reykjavík nú þegar nokkur reynsla er komin á þau.

„Ég get þetta ekki lengur“
„Ég hringdi einn daginn í bróðir minn og spurði hvort hann gæti skutlað mér niður á spítala, ég ætlaði að reyna að koma mér inn á geðdeild. Ég er svo þakklát að mér hafi verið hleypt þar inn því þarna hugsaði ég, ég get þetta ekki lengur,“ segir Inga Hrönn Jónsdóttir en hún er tveggja barna móðir sem kom sér af götunni fyrir nokkrum árum og hefur átt gott líf síðan.

Húsnæði fyrst
Enn og aftur berast fréttir af því að heimilislausir á Gistiskýlinu þurfa að fara út í öllum veðrum og þó þau séu veik.

Neituðu að fara út í kuldann
Hópur heimilislausra manna fór í setuverkfalli í gistiskýlinu á Granda í morgun. Þeir mótmæltu því að skýlinu sé lokað klukkan tíu í frosthörku þegar flestir liggi í flensu. Formaður Velferðarráðs hjá Reykjavíkurborg segir aðstöðu í skýlinu ekki fullnægjandi á daginn. Neyðaropnun hafi verið virkjuð og boðið upp á úrræði og þjónustu í Samhjálp yfir daginn.

Setti Pamelu á forsíðu Stúdentablaðsins og gerði boli fyrir afmæli í Keiluhöllinni
Magnea Hrönn Örvarsdóttir var viðfangsefni fyrsta þáttar heimildaþáttaraðarinnar Fólk eins og við sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Magnea lést áður en tökur á hennar þætti kláruðust.

Vilja að gistiskýlin séu opin allan daginn yfir jólin
Hópur heimilislausra manna mótmæltu lokun gistiskýlanna í Ráðhúsinu í dag. Þeir vilja fá að vera á sama staðnum allan daginn, og sérstaklega yfir jólin. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks segja hægt að gera meira fyrir heimilislausa.

Fimmtíu nýjar dýnur frá föngum til neyðarskýla borgarinnar
Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, afhenti neyðarskýlum Reykjavíkurborgar að Lindargötu og Granda, ásamt úrræði Reykjavíkurborgar á Njálsgötu, nýjar dýnur í gær.

Framlengd opnun kaffistofunnar ekki góð lausn fyrir heimilislausa
Maður sem hefur glímt við heimilisleysi og mótmælt úrræðaleysi fyrir hópinn segir nýja dagdvöl í kaffistofu Samhjálpar ekki lausnina sem heimilislausir þurfa. Það þurfi alvöru dagsetur í sérstakt húsnæði.

Deila kostnaði vegna dagdvalar fyrir heimilislausa
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að taka þátt í rekstri dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Dagdvölin verður rekin í húsnæði Samhjálpar og hefur velferðarráð Reykjavíkurborgar þegar samþykkt að koma rekstrinum.

Opna dagdvöl fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina
Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að ganga til samstarfs við Samhjálp um rekstur dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið boðið að vera með gegn hlutdeild í kostnaði.

Ekkert samtal fyrr en fólkið var komið á götuna
Rauði krossinn gagnrýndi framkvæmd stjórnvalda á þjónustusviptingu flóttafólks á opnum fundi í velferðarnefnd Alþingis í morgun. Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga sagði að ekkert samráð hefði verið haft við sveitarfélögin þegar félagsmálaráðherra fullyrti að þau myndu bera ábyrgð á þjónustunni

Líst illa á að lífsbjargandi neyslurými verði í bifreið: „Fólk er að deyja“
Reykjavíkurborg skoðar að opna færanlegt neyslurými aftur á meðan leitað er að varanlegu rými. Rauði krossinn segir hugmyndina afleita. Að þjóðfélagshópurinn sem sæki sér þjónustuna eigi skilið betri húsakost en bíl.

Hugmyndir dómsmálaráðherra útópískar
Félagsmálaráðherra segir hugmyndir dómsmálaráðherra um lokuð búsetuúrræði vera útópískar. Hann telur að samningur hans við Rauða krossinn um neyðarskýli fyrir útlendinga sem hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd sé rétt skref.

Afleiðing „skelfilegra útlendingalaga“ og ekki varanleg lausn
Talskona Stígamóta segir úrræði fyrir hælisleitendur sem sviptir hafa verið þjónustu og búsetu, sem félagsmálaráðherra kynnti í gær, ekki ásættanlega lausn. Umræðan hafi færst til og nú virðist sem margir telji málefnum fólksins betur borgið.