
Kvikmyndahús

Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar
Sviðslistahúsið Afturámóti var stofnað af þremur vinum sem vantaði rými til þess að setja upp sínar eigin sýningar. Úrvalið var ekki ýkja mikið en þá fengu þeir flugu í hausinn.

Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina
Það stendur mikið til á Patreksfirði því um hvítasunnuhelgina verður haldin þar hátíð íslenskra heimildarmynda. Auk þess verður boðið upp á plokkfiskveislu og limbókeppni.

Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu
Stikla fyrir kvikmyndina Snertingu var heimsfrumsýnd í vikunni og hafa frá því nærri átta milljónir horft á stikluna, þar af tæpar fimm milljónir á YouTube og rest á samfélagsmiðlunum X, Facebook og Instagram. Þá hefur íslenska útgáfan af stiklunni fengið yfir tvö hundruð þúsund spilanir.

Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu
Tölum um endó – ný íslensk heimildarmynd um endómetríósu var frumsýnd í Bíó Paradís í vikunni. Myndin uppskar standandi lófaklapp fyrir fullu húsi gesta og féllust forsvarsmenn Endósamtakanna í faðma að mynd lokinni.

Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan
Stórmyndin Oppenheimer var frumsýnd í Japan í dag, rúmum átta mánuðum eftir að hún var heimsfrumsýnd. Skiptar skoðanir eru meðal japanskra bíógesta á myndinni.

Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó
Geimóperan Dune 2 er á allra vörum þessa dagana. Einn kvikmyndaunnandi hefur séð hana nítján sinnum í bíó en á samt enn langt í land með að sjá hana jafnoft og hann sá fyrri myndina. Fyrri myndina hefur hann horft á rúmlega 200 sinnum.

Mynd um Megas frumsýnd
Önnur heimildamynd ljósmyndarans Spessa, Afsakiði meðanað ég æli – heimildamynd um Megas, verður frumsýnd í Bíó Paradís þann 14. mars, á fimmtudaginn, og kvikmyndagerðarmaðurinn er frekar stressaður.

Baltasar og Eliza á hátíðarsýningu Natatorium
Hátíðarsýning var á íslensku kvikmyndinni Natatorium í Smárabíói síðastliðinn miðvikudag fyrir fullum sal. Myndin hlaut góðar viðtökur gesta að sýningu lokinni.

Langaði að ramma inn örvæntinguna
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við ástsæla lagið Hvers vegna varst’ekki kyrr, hér í ábreiðu Sölku Valsdóttur, neonme, fyrir kvikmyndina Natatorium.

Fullt hús á Fullu húsi
Fyrsta kvikmynd Sigurjóns Kjartanssonar í fullri lengd, Fullt hús, verður frumsýnd á morgun föstudag, en forsýning myndarinnar fór fram í Laugarásbíói í gærkvöldi.

True Detective sigur fyrir íslenska kvikmyndagerð
Gríðarleg ánægja er með hvernig til tókst með þáttaröðina True Detective og hefur HBO boðið öllum aðstandendum á sérstaka hátíðarsýningu sem verður í Smárabíói á laugardaginn.

Myndaveisla: Troðfullt hús þrátt fyrir leikinn
Franska kvikmyndahátíðin opnaði með pompi og prakt í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið og fjöldi fólks lagði leið sína á Hverfisgötuna til að horfa á kvikmyndina L’Innocent (Hinn Saklausi) eftir Louis Garrell.

Myndaveisla: Skvísur landsins skáluðu fyrir „Mean Girls“
Sérstök forsýning á bandarísku kvikmyndinni Mean Girls „Revenge Party“ fór fram í Sambíóunum Kringlunni um helgina.

Barbie tekjuhæst og vinsælust á Íslandi í fyrra
Tekjuhæsta mynd ársins í kvikmyndahúsum á Íslandi var, eins og annars staðar í heiminum, kvikmyndin Barbie. Kvikmyndin halaði inn yfir 134 milljónum króna í miðasölu á Íslandi í fyrra.

Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan af íslenska sálfræðitryllinum Natatorium
Íslenski sálfræðilegi tryllirinn Natatorium verður frumsýnd hér á landi föstudaginn 23. febrúar næstkomandi. Myndin er í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur.

Sambíóin „verði að girða sig í brók“ og fá nýja lyftu
Sigrún María Óskarsdóttir segir að Sambíóin á Akureyri verði að „girða sig í brók“ og koma stigalyftunni í bíóhúsinu í lag. Sigrún María er í hjólastól og fór í bíó með bróður sínum á milli jóla og nýárs en þurfti að láta bera sig upp stigann því lyftan var biluð. Stiginn er um 25 til 30 þrep og í boga.

Tilnefnd til verðlauna fyrir Kúmen og lúxusbíósal í þaki Kringlunnar
Kringlan verslunarmiðstöð hefur hlotið tilnefningu til hinna virtu Revo´s verðlauna í Bretlandi. Framkvæmdastjóri segir það hafa verið djarfa hugmynd að byggja bíósal upp úr þakinu. Viðskiptavinir séu mjög ánægðir með breytingarnar, sem og breytingarnar á mathöllinni.

Mætti klædd sem Lucy Gray Baird á forsýningu nýjustu Hunger Games myndarinnar
Rakel Björgvinsdóttir vakti mikla athygli í gær á sérstakri forsýningu nýjustu Hunger Games myndarinnar sem sýnd var í Laugarásbíói en hún mætti í sér saumuðum kjól sem aðal kvenpersóna myndarinnar skartar í Hungurleikunum í myndinni.

Bað kærustunnar uppi á sviði í Háskólabíó
Áhorfendur á Halloween Horrow show sem fram fór í Háskólabíó í gær, fengu óvænt atriði undir lok sýningarinnar þegar Dagur Sigurðsson, söngvari, bað kærustu sinnar, Elvu Daggar Sigurðardóttur á sviðinu.

Heimaleikurinn til New York
Íslenska heimildarmyndin Heimaleikurinn hefur verið valin inn á Doc NYC - stærstu heimildarmyndahátíð Bandaríkjanna, sem fer fram í New York í nóvember.

Heimaleikurinn verðlaunaður í Malmö
Heimaleikurinn, í leikstjórn Smára Gunnarssonar og Loga Sigursveinssonar, hlaut Áhorfendaverðlaun Nordisk Panorama, stærstu heimildarmyndahátíð Norðurlandanna á þriðjudagskvöld.

Örn Árnason hlaut fyrstu heiðursverðlaun UngRIFF
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenti Erni Árnasyni, leikara, fyrstu heiðursverðlaun UngRIFF í dag. Verðlaunin hlaut hann fyrir framlag sitt til íslenskrar barnamenningar, sér í lagi á sviði kvikmynda og talsetninga.

Hátíðargestir á Heimaleiknum
Kvikmyndin Heimaleikurinn var frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Margt var um manninn og ljóst að myndin féll vel í áhorfendur.

Forsýningarveisla í Bíó Paradís
Margt var um manninn þegar Skuld, heimildamynd eftir Rut Sigurðardóttur, var forsýnd í Bíó Paradís síðastliðinn miðvikudag.

„Myndin er frábær meðferð gegn flughræðslu“
Kvikmyndin Northern Comfort er frumsýnd í kvöld en leikstjóri myndarinnar Hafsteinn Gunnar Sigurðsson segir hugmyndina að myndinni hafa kviknað fyrir mörgum árum. Myndin var að miklum hluta tekin upp í Bretlandi sem og hér á landi.

Skulfu á beinunum á forsýningu Kulda
Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2012.

Umtöluð mynd um barnarán sýnd í Sambíóunum
Umdeilda bandaríska spennumyndin Sound of Freedom verður sýnd í Sambíóunum í ágústmánuði.

Methelgi í íslenskum kvikmyndahúsum sem rökuðu inn 43 milljónum
Íslendingar streymdu í kvikmyndahús um helgina á stórmyndirnar Barbie og Oppenheimer og úr varð stærsta opnunarhelgi í íslenskum kvikmyndahúsum frá upphafi. Þetta sýna tölur Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði (FRÍSK).

Þegar ég fór með 49 öðrum gaurum í bíó
Það heyrir almennt ekki til tíðinda þegar karlmenn á þrítugsaldri, svokallaðir „gaurar“, hópa sig saman og fara í bíó. Í bíóhúsum borgarinnar má oft sjá þó nokkra gaura sitja saman með popp og kók og njóta þess að horfa saman á misgóðar kvikmyndir. En, miðvikudaginn 19. júlí 2023 fóru 50 gaurar saman í bíó. Þetta er okkar saga.

Lýsir sex klukkutíma bíóferð sem upplifun og hefur ekki fengið nóg
Karlmaður lýsir sex klukkutíma bíóferð sinni í gærkvöldi sem stórkostlegri upplifun. Barbie, kjarnorkusprengjur, popp og kók. Og hann hefur ekki fengið nóg.