
Skíðaslys Michael Schumacher

Massa verður með stafi Schumachers á hjálminum
Felipe Massa biður fyrir gamla liðsfélaganum á hverjum degi en fyrsta keppni ársins fer fram um helgina.


Smá batamerki hjá Schumacher
Formúlugoðsögnin Michael Schumacher er enn í dái eftir að hafa slasast á skíðum í lok síðasta árs. Hann hefur þó verið að sýna örlítil batamerki upp á síðkastið.

Óbreytt staða á Schumacher
Læknar þýska ökuþórsins Michael Schumacher eru enn að vinna í því að vekja hann úr dái en rúmir þrír mánuðir eru síðan hann slasaðist alvarlega á skíðum.

Ekkert saknæmt í slysi Schumacher
Franskur saksóknari hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert refsivert hafi farið fram þegar Michael Schumacher slasaðist á skíðum í Meribel í desemberlok.

Shumacher með sýkingu í lunga
Óvíst er hvaða áhrif sýkingin hefur á bata ökuþórsins sem haldið hefur verið sofandi í rúman mánuð.

Schumacher sagður hafa deplað augum
Samkvæmt óstaðfestum fregnum er Michael Schumacher strax byrjaður að sýna viðbrögð við tilraunum lækna við að vekja hann úr dái.

Verið að vekja Schumacher úr dáinu
Sabine Kehm, umboðsmaður Michael Schumacher, hefur staðfest að unnið sé að því að vekja Michael Schumacher úr dái, hægt og rólega.

Verið að vekja Schumacher úr dái?
Þýska ökuþórinn Michael Schumacher, sem haldið hefur verið sofandi undanfarinn mánuð eftir alvarlegt skíðaslys, er smám saman verið að vekja ef marka má frétt L'Equipe.

Vettel vonast enn eftir Schumacher-kraftaverki
Þjóðverjinn Sebastian Vettel var spurður út í skíðaslys landa síns Michael Schumacher á blaðamannafundi á Spáni í dag en heimsmeistarinn var þá að prufukeyra nýja Red Bull bílinn.

Læknar óttast heiladauða Schumacher
Líkur á heilaskaða aukast mjög ef fólki er haldið lengur sofandi en 8 daga.

Tvöföld stig fyrir síðasta mótið í formúlunni
Forráðamenn formúlu eitt hafa ákveðið að láta verða að hugmynd Bernie Ecclestone um að gefa tvöföld stig fyrir lokamótið á komandi keppnistímabili. Það var enginn sem mótmælti þessari nýjung á yfirmannafundi innan formúlu eitt og nýjan stigareglan verður því í gildi á árinu 2014.

Massa biður fyrir Schumacher á hverjum degi
Brasilíumaðurinn Felipe Massa segist biðja fyrir Michael Schumacher á hverjum degi en hinn 45 ára gamli Schumacher liggur enn í dái eftir að hafa dottið illa á skíðum 29. desember síðastliðinn.

Schumacher var með upptökuvél á hjálminum
Frönsk yfirvöld hafa staðfest að Michael Schumacher hafi verið með upptökuvél á hjálmi sínum þegar hann lenti í alvarlegu skíðaslysi í frönsku ölpunum fyrir rúmri viku síðan.

Eiginkona Schumacher: Látið okkur í friði
Það er rúm vika síðan ökuþórinn Michael Schumacher slasaðist alvarlega á skíðum. Hann berst enn fyrir lífi sínu og er haldið sofandi á spítala í Grenoble í Frakklandi.

Staða Schumacher óbreytt
Umboðsmaður Michael Schumacher segir að þýski ökuþórinn sé enn í lífshættu eftir skíðaslys þrátt fyrir að annað hafi verið fullyrt í fjölmiðlum síðustu daga.

Saksóknari vill fá upptöku af skíðaslysi Schumacher
Héraðssaksóknari í Frakklandi hefur farið þess á leit að fá afhenta upptöku af skíðaslysi ökumaþórsins Michael Schumacher.

Vinur Schumacher segir hann úr lífshættu
Franska lögreglan rannsakar nú upptöku úr myndavél sem þýski ökuþórinn Michael Schumacher hafði fasta við hjálm sinn þegar hann lenti í skíðaslysi í frönsku ölpunum á sunnudaginn var.

Schumacher er 45 ára í dag | Enn í lífshættu
"Við vitum öll að hann er keppnismaður og mun ekki gefast upp,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldu þýska ökuþórsins Michael Schumacher sem liggur enn í dái eftir alvarlegt skíðaslys.

Aðdáendur Schumacher safnast saman á afmælisdaginn
Aðdáendur kappaksturshetjunnar Michaels Schumacher, sem nú liggur í dái á spítala í Frakklandi eftir að hafa fengið höfuðhögg á skíðum á sunnudag, ætla að safnast saman fyrir utan spítalann í dag.

Fréttamaður í gervi prests reyndi að komast að Schumacher
Michael Schumacher er haldið sofandi á sjúkrahúsi í Grenoble í Frakklandi eftir skíðaslys um helgina.

Ástand Schumachers stöðugt
Sabine Kehm, umboðsmaður Michael Schumacher, segir að þýski ökuþórinn sé enn í lífshættu en að ástand hans síðasta sólarhringinn hafi verið stöðugt.

Ástand Schumachers hefur batnað | Enn í lífshættu
Læknar Michael Schumachers á sjúkrahúsinu í Grenoble í Frakklandi segja að ástand hans hafi skánað örlítið frá því í gær. Honum er þó enn haldið sofandi og ástand hans alvarlegt.

Schumacher haldið sofandi | Berst fyrir lífi sínu
Læknar Michael Schumacher í Frakklandi segja að hann sé með alvarlega áverka á heila eftir skíðaslys í gærmorgun. Hann gekkst undir aðgerð en er enn í lífshættu. Schumacher er haldið sofandi á gjörgæslu.

Óttast að Schumacher hafi fengið heilablæðingu
Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er enn í lífshættu eftir að hann fékk alvarlega höfuðáverka eftir skíðaslys í frönsku ölpunum í gær.

Schumacher í lífshættu
Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er í lífshættu eftir skíðaslys í morgun. Honum er haldið sofandi í öndunarvél og telja læknar að hann hafi hlotið alvarlegan heilaskaða.

Schumacher í skíðaslysi
Franskir fjölmiðlar greina frá því að ökuþórinn Michael Schumacher hafi slasast í skíðaslysi þar í landi.