Efnahagsmál
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 70 ›
Góður gangur í hagkerfinu þrátt fyrir mikla verðbólgu Mjög mikill hagvöxtur var hér á fyrsta ársfjórðungi þessa árs eða sjö prósent ofan á mikinn hagvöxt undanfarin ár. Hagfræðingur Landsbankans segir góðan gang í hagkerfinu og staðan að mörgu leyti góð að frátalinni verðbólgu. Viðskipti innlent 31.5.2023 21:01
Mikill munur á hækkun fasteignamats milli hverfa Staðahverfi í Grafarvogi er það hverfi í Reykjavík sem fasteignamat fjölbýlisíbúða hækkar mest í samkvæmt nýju fasteignamati Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Sérbýlið hækkar mest í Vesturbænum, vestan Bræðraborgarstígs. Viðskipti innlent 31.5.2023 17:01
Segir stjórnvöld fórna heimilum ítrekað fyrir bankana Hagvöxtur mældist sjö prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Aukin einkaneysla, þrátt fyrir verðhækkanir, bendir til þess að heimili séu farin að ganga á sparnað sinn til að ná endum saman. Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir stöðuna gríðarlega alvarlega. Neytendur 31.5.2023 11:36
Mun minni hækkun fasteignamats en í fyrra Fasteignamat á Íslandi hækkar að jafnaði um 11,7 prósent milli ára, þar af hækkar mat íbúðarhúsnæðis um 13,7 prósent. Í Vesturbyggð hækkar fasteignamatið um meira en fjórðung. Innlent 31.5.2023 11:34
Sjö prósenta hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi Landsframleiðsla jókst um sjö prósent að raungildi á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tíma bili í fyrra. Útflutningur jókst um nærri ellefu prósent. Innlent 31.5.2023 09:33
Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum. Innlent 30.5.2023 19:20
Tókust á um stöðu verðbólgu og vaxta í Pallborðinu Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar mæta í Pallborðið með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 30.5.2023 12:21
Tvær þjóðir í sama landi Síðustu vikur og mánuði hefur Seðlabankinn, með dyggum stuðningi ríkisstjórnarinnar, hækkað vexti þrettán sinnum í röð og segist með því vera að ráðast að verðbólgunni og frelsa þjóðina frá miklu fári. Í fljótu bragði mætti ætla að afleiðing þessara aðgerða komi nokkuð jafnt niður á þegnum þessa lands. En því fer nú víðs fjarri. Skoðun 30.5.2023 07:00
Ekki í skoðun að hækka skatta þeirra tekjuhærri Fjármálaráðherra segir ekki mega túlka hlutina þannig að tekjulágir hópar hafi verið skildir eftir þrátt fyrir að aðrir hafi það gott. Ekki sé í skoðun að hækka skatta á tekjuhærra fólk líkt og formaður Eflingar hefur lagt til. Innlent 26.5.2023 21:10
Verðbólga niður í 9,5 prósent Verðbólgan mældist 9,5 prósent í maí og fór niður um 0,4 prósentustig frá því í apríl þegar hún var 9,9 prósent. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 26.5.2023 09:42
Íhugar að flytja úr landi vegna hækkananna Formaður VR segir galið að Seðlabankastjóri skuli skella skuldinni á verkalýðshreyfinguna þegar kemur að verðbólgu í landinu. Hann segir endalausar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar vera óskiljanlegar. Öryrki íhugar að flytja úr landi vegna stýrivaxtahækkana. Innlent 25.5.2023 23:39
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. Innlent 25.5.2023 11:47
Geti ekki staðið með lúður og ráðist á Seðlabankann Seðlabankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun. Um er að ræða þrettándu vaxtahækkunina í röð og eru meginvextir bankans nú komnir í 8,75 prósent. Hækkunin hefur vægast sagt fallin í grýttan jarðveg meðal landsmanna. Viðskipti innlent 24.5.2023 23:42
Ríkisstjórnin hafi hugað að tekjulágu fólki Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir nauðsynlegt að ráðast í rót verðbólgunnar og sýna aukið aðhald í ríkisfjármálum. Hann segir ríkisstjórnina hafa hugað að tekjulágu fólki en telur að það eigi ekki að reyna að lifa með verðbólguástandinu. Innlent 24.5.2023 23:30
Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka vexti í tveggja stafa tölu Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná verðbólgu niður að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. Innlent 24.5.2023 19:31
Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. Innlent 24.5.2023 19:31
Vilja sérstaka umræðu um efnahagsmál á þingi sem fyrst Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að haldin verði sérstök umræða um efnahagsmál sem fyrst í ljósi enn einnar stýrivaxtahækkunar peningastefnunefndar Seðlabankans. Meginvextir bankans standa nú í 8,75% og verðbólga mældist 9,9% í apríl. Innlent 24.5.2023 15:51
Geðshræring vegna stýrivaxtahækkunar Verulegrar geðshræringar gætti á samfélagsmiðlum í morgun þegar tilkynnt var um enn eina hækkun stýrivaxta, þá 13. í röðinni en hækkunin nam 1,25 stigum. Innlent 24.5.2023 12:16
Segir nauðsynlegt að gera hófsama kjarasamninga til langs tíma Seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að gerðir verði hóflegir langtíma kjarasamningar og aðhald aukið í ríkisfjármálum til að ná verðbólgunni niður. Ef Seðlabankinn eigi einn að ná niður verðbólgu þurfi að hækka vexti enn frekar. Innlent 24.5.2023 12:12
Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 24.5.2023 10:56
Bein útsending: Rökstyðja þrettándu stýrivaxtahækkunina í röð Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 1,25 prósentustig, í 8,75 prósent. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:53
Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti og nú um 1,25 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:31
Seðlabankinn nauðbeygður til að hækka vexti um hundrað punkta Yfirgnæfandi meirihluti markaðsaðila býst við því að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Meginstefið í svörum þeirra sem tóku þátt í könnun Innherja er að Seðlabankinn sé nauðbeygður enda er langt í næstu vaxtaákvörðun, raunvextir enn neikvæðir og bankanum hefur ekki tekist að ná stjórn á verðbólguvæntingum. Innherji 23.5.2023 08:00
Ríkisstjórnin verði að dempa áfallið sem hlýst af vaxtahækkunum Formanni Samfylkingarinnar finnst ekki ólíklegt að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir á miðvikudag líkt og greiningaraðilar eru á einu máli um. Hún hefur ekki gefið upp von um að ríkisstjórnin dempi höggið sem heimilin finna fyrir þessar þrjár síðustu vikur þingsins. Auknar vaxtabætur og leigubremsa þurfi að koma til svo hægt verði að verja heimilin í þessu viðkvæma efnahagsástandi. Innlent 22.5.2023 13:01
Spírallinn heldur áfram Það er ekkert sérstaklega uppörvandi að sjá hvernig tónninn er að breytast hjá þeim sem hafa það að atvinnu að reyna að sjá fyrir vaxta og verðbólguþróun hér á Íslandi. Fyrirsögn á rúv.is á dögunum segir kannski alla söguna „orðnir svartsýnni á þróun verðbólgunnar“. Skoðun 20.5.2023 09:01
Spá því að vextir hækki um heila prósentu Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár. Viðskipti innlent 17.5.2023 15:10
„Ekki reikna með að aðstæður séu að fara að lagast strax á næstunni“ Björn Berg Gunnarsson hefur starfað í bankakerfinu í vel á annan áratug, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Nú hefur Björn látið af störfum í bankanum til að hefja sjálfstæðan rekstur sem fjármálaráðgjafi fyrir einstaklinga um sparnað, fjárfestingar, lánamál og annað. Viðskipti innlent 16.5.2023 09:20
Hrói höttur ríka fólksins „Gæti sparað 150 milljarða“ sagði í fyrirsögn Moggans í fyrstu frétt af hugmyndum fjármálaráðherra um aðgerðir vegna erfiðrar stöðu gamla Íbúðalánasjóðsins. Ég játa að forvitni mín kviknaði enda hefur Viðreisn kallað eftir að fjármálaráðherra sýni aðhald í fjármálum ríkisins en jafnan án árangurs. Skoðun 15.5.2023 11:32
Spá því að hagvöxtur gæti orðið sögulega mikill næstu ár Ný greiningardeild Arion banka segir að horfur séu á meiri hagvexti í ár en áður var talið og að áfram muni „blása byrlega í segl þjóðarskútunnar“. Viðskipti innlent 15.5.2023 11:25
Vextir verða tiltölulega háir út árið 2025 samkvæmt spá Arion Greiningardeild Arion banka spáir kröftugum 5,1 prósents hagvexti í ár sem helgast einkum af mikilli fólksfjölgun og hraðari uppsveiflu ferðaþjónustunnar en gert var ráð fyrir í síðustu spá. Stýrivextir Seðlabankans eiga eftir að hækka enn meira á þessu ári vegna þrálátrar verðbólgu og þeir verða tiltölulega háir á spátímabilinu sem nær út árið 2025. Innherji 15.5.2023 10:35