Frjálsar íþróttir

Frábært fyrir Anítu að setja met á stórmóti
Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet unglinga í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á EM í frjálsum í Prag í gær. Keppir í undanúrslitum í dag.

Aníta: Ég vil ná gullinu eins og allar stelpurnar hér
Aníta Hinriksdóttir var tekin í viðtal fyrir heimasíðu evrópska frjálsíþróttasambandsins eftir að íslenska hlaupadrottningin tryggði sér sæti í undanúrslitunum með mjög flottu hlaupi í undanrásum 800 metra hlaups kvenna.

Aníta tekin í lyfjapróf eftir methlaupið sitt
Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslands- og Evrópumet í dag þegar hún tryggði sér með glæsibrag sæti í undanúrslitunum í 800 metra hlaupi kvenna á EM innanhúss í Prag.

Hafdís komst ekki áfram | Endaði í 12. sæti
Hafdís Sigurðardóttir komst ekki áfram í úrslitin í langstökki kvenna á Evrópumótinu í frjálsum innanhúss í Prag.

Aníta með næstbesta tímann inn í undanúrslitin
Aníta Hinriksdóttir náði öðrum besta tímanum í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss.

Aníta með bæði Íslandsmet og Evrópumet unglinga
Aníta Hinriksdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum í 800 metra hlaupi kvenna og setti í leiðinni bæði nýtt Íslandsmet og nýtt Evrópumet unglinga.

Kolbeini hrint út úr brautinni - hann og Trausti komust ekki áfram
Kolbeinn Höður Gunnarsson og Trausti Stefánsson komust ekki áfram í undanrásum í 400 metra hlaupi á Evrópumóti í frjálsum íþróttum í Prag en þeir voru fyrstu Íslendingarnir til að keppa á mótinu.

Okkar fólk á EM í frjálsum í beinni á Vísi
Aníta Hinriksdóttir og þrír aðrir íslenskir keppendur verða í eldlínunni í dag á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fer í Prag í Tékklandi.

Aníta gæti verið nálægt verðlaunapallinum í Prag
Aníta Hinriksdóttir hefur keppni í dag á sínu fjórða stórmóti fullorðinna. Þjálfarinn Gunnar Páll Jóakimsson er bjartsýnn á gengi hennar á EM í Prag og segir Anítu vera reynslunni ríkari frá fyrri stórmótum sínum.

Hafdís: Nota þessi þrjú stökk eins vel og ég get
Hafdís Sigurðardóttir þarf líklega að bæta Íslandsmetið í langstökki til að komast í úrslit á EM í Prag.

ÍR vann bikarinn á heimavelli erkifjendanna
ÍR-ingar unnu annað árið í röð þrefaldan sigur í bikarkeppni FRÍ og nú unnu Breiðhyltingar á heimavelli FH í Kaplakrika. Heimamenn í FH urðu alls staðar í öðru sæti í þessari fyrstu bikarkeppni innanhúss sem er haldin utan Laugardalsins.

ÍR meistari í bæði karla- og kvennaflokki
Met féllu á Bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins sem fram fór í Kaplakrika.

FH-ingar spila í Adidas í öllum íþróttagreinum
Allar deildir FH skrifuðu í dag undir nýjan samstarfssamning við Adidas um að íþróttamenn félagsins munu spila í Adidas-vörum á næstu árum.

Einar Daði fer á EM í Prag
Aðeins fimmtán bestu fjöþrautarkappar Evrópu fá boð á Evrópumeistaramótið.

Ásdís þarf ekki að fara í aðgerð
Spjótkastarinn handarbrotnaði á dögunum en fór ekki úr lið.

Hlaupin í Prag verða á þessum styrkleika
Aníta Hinriksdóttir ekki alveg nógu sátt við fimmta sætið í Birmingham.

Aníta kom fimmta í mark á Englandi
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, lenti í 5. sæti í 800 metra hlaupi á Sainsbury Grand Prix mótinu í frjálsum íþróttum innanhús.

Frábær sjöþraut Einars Daða | Tíundi á heimslista
Einar Daði Lárusson er líklega á leið á EM í Prag eftir hálfan mánuð.

Öll fimm fá að fara á Evrópumótið í Prag
Frjálsíþróttasamband Íslands sendir að minnsta kosti fimm keppendur á Evrópumeistaramót innanhúss sem fer fram í Prag 5. til 8. mars næstkomandi.

HSK/Selfoss langbest á meistaramóti krakkanna i frjálsum
Það er greinilega verið að gera frábæra hluti í frjálsum íþróttum á Suðurlandinu því sveit HSK/Selfoss vann yfirburðarsigur í stigakeppni félaga á Meistaramótinu í frjálsum hjá 11 til 14 ára sem fram fór í Laugardalshöll um helgina.

Hrafnhild Eir undir 7,60 sekúndur í þriðja sinn á stuttum tíma
Fjórir frjálsíþróttamenn úr landsliðshópi FRÍ tóku þátt á Áskorendamóti Norðurlandanna í Bærum/Osló um helgina. Íslenska íþróttafólkið fór út án þjálfara en stóð sig með mikilli prýði á sínu fjórða móti á stuttum tíma.

Spjótkastarinn sem vann verðlaun í hástökki
Spjótkastarinn Örn Davíðsson gerði sér lítið fyrir og vann til bronsverðlauna á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss um síðustu helgi. Spjótkastið verður áfram hans aðalgrein og stefnir hann hátt í því.

Æfði í Suður-Afríku yfir áramótin
Aníta Hinriksdóttir tók á móti nýju ári hinum megin á hnettinum því lokaundirbúningur hennar fyrir innanhússtímabilið fór fram um mitt sumar þrátt fyrir að það væru mánaðarmótin desember-janúar.

Aníta hefur byrjað fjögur ár í röð á því að setja Íslandsmet
Aníta Hinriksdóttir hefur sett tíu "margföld“ Íslandsmet í 800 metra hlaupi á síðustu fjórum árum og Íslandsmetin í öllum aldursflokkum í hennar bestu grein eru nú orðin yfir fjörutíu. Er enn í mikilli framför.

Vilja frjálsíþróttahöll á Akureyri
Frjálsíþróttafólk á Akureyri er orðið þreytt á því aðstöðuleysi sem íþróttafólkinu er boðið upp á þar í bæ.

Anítu mætir þeirri fljótustu í ár
Hlaupadrottningunni ungu boðið á sterkt innanhússmót í Birmingham.

Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn
Konur áttu tíu af tólf bestu afrekum Meistaramóts Íslands í Kaplakrika um helgina og það var bara Kolbeinn Höður Gunnarsson sem rauf einokun stelpnanna á toppsætum listans.

Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót
Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri.

Hafdís nærri dottin: Heppin að ég lamdi ekki Hrafnhild
Vön því að æfa hlaup í fótboltahöllum á Akureyri.

Kolbeinn Höður: Ætla fyrstur Íslendinga undir 21 sekúndu
Kolbeinn Höður Gunnarsson hlaupari ætlar sér stóra hluti á komandi árum og er búinn að setja sér markmið tvö ár fram í tímann.