
Bólusetningar

Konan sem fór í keisaraskurð vegna Covid-19 óbólusett
Covid-smituð kona sem undirgekkst keisaraskurð í mánuðinum hafði ekki fengið bólusetningu samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Bjóða fyrirtækjum og stofnunum að fá bólusetningarbílinn í heimsókn
Heilbrigðisyfirvöld óska eftir samstarfi við fyrirtæki og stofnanir, sem stendur nú til boða að fá bólusetningabílinn í heimsókn. Markmiðið er að ná til þeirra í samfélaginu sem enn eru óbólusettir.

Bólusetning réttlætanleg skylda: „Við höfum þjáðst nægilega mikið“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, furðar sig á að enn sé ekki búið að fjölga gjörgæslurýmum á Landspítala eins og boðað hefur verið. Hágæslurými sem heilbrigðisráðherra kynnti í ágúst eiga að vera tekin í notkun fyrst í desember.

Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu
Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld.

Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi.

Lögregla skaut á Covid-mótmælendur
Mótmælendur í hollensku borginni Rotterdam særðust þegar lögregla skaut á þá. Mótmælin í borginni, sem voru til komin vegna fyrirætlana stjórnvalda um að gera atvinnurekendum kleift að meina óbólusettum aðgang að ákveðnum svæðum, breyttust í óeirðir.

Sumir upplifað að Íslendingar ættu frekar tilkall til bóluefnis
Pólverji búsettur á Íslandi telur að vantraust meðal samlanda sinna til íslenskra stjórnvalda gæti skýrt dræmari mætingu þeirra í bólusetningu. Fréttaflutningur og samfélagsmiðlaumræða í Póllandi geti einnig haft áhrif.

Heilbrigðisráðherra Þýskalands útilokar ekki allsherjar útgöngubann
Stjórnvöld í Þýskalandi segja neyðarástand ríkja í landinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og útiloka ekki að grípa til allsherjar útgöngubanns líkt og komið hefur verið á í Austurríki.

Veigrar sér við að sækja vinnu hjá eigin fyrirtæki vegna óbólusetts undirmanns
Eigandi fyrirtækis veigrar sér nú við því að mæta til vinnu þar sem einn undirmanna hans hefur ekki og hyggst ekki þiggja bólusetningu. Atvinnurekandinn, sem vill ekki koma fram undir nafni, er ónæmisbældur og í áhættuhóp vegna Covid-19.

Verðlaunum samfélagslega ábyrgð
Covid-19 vírusinn er ekki nokkurri manneskju að kenna. Ástæður þess að þiggja ekki bólusetningu eru líklega jafn margar og fjölbreyttar og einstaklingarnir sem ákveða það og þeir bera fulla ábyrgð á sinni ákvörðun því bólusetning er ekki skylda á Íslandi.

Grímunotkun meira en helmingar líkurnar á smiti
Grímunotkun er áhrifamesta lýðheilsuráðstöfunin sem gripið hefur verið til í þeim tilgangi að takmarka dreifingu kórónuveirunnar. Þetta eru niðurstöður samantektar vísindamanna á meira en 30 rannsóknum víðsvegar í heiminum.

Um 300 létust af völdum Covid í Þýskalandi í gær
Þjóðverjar takast nú á við erfiða fjórðu bylgju Covid, að sögn Angelu Merkel kanslara, sem hittir alla ríkisstjóra landsins á krísufundi í dag. Tæplega 53 þúsund Þjóðverjar greindust smitaðir í gær og hefur sú tala aldrei verið hærri frá upphafi faraldursins.

Hugnast ekki aðgerðir sem gætu mismunað bólusettum og óbólusettum
Heilbrigðisráðherra hugnast ekki aðgerðir sem gætu mismunað bólusettum og óbólusettum. Tuttugu þúsund Íslendingar fengu þriðja skammt í fyrstu viku bólusetningarátaks, færri en vonast var til.

Tuttugu þúsund manns fengið örvunarskammt í vikunni
Um það bil 20 þúsund manns fengu örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 í vikunni. Bólusetningarátak hófst síðastliðinn mánudag en átakið mun standa yfir í fjórar vikur þar sem 120 þúsund manns munu í heildina fá boð.

Telur ekki faglegar forsendur fyrir að mismuna bólusettum og óbólusettum að svo stöddu
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að miklar sveiflur hafi verið í fjölda daglegra smita frá því að hertar samkomutakmarkanir tóku gildi og því sé ekki hægt að segja með vissu að faraldurinn sé á niðurleið. Hann segir jafnframt í tengslum við umræðu síðustu daga að ekki séu faglegar forsendur fyrir því að svo stöddu að mismuna bólusettum og óbólusettum.

Bólusetningarbíllinn stefnir á framkvæmdasvæði og Kringluna
Gögn sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur rýnt í benda til þess að þeir sem enn eru óbólusettir séu að stórum hluta yngri karlmenn og fólk með erlendar kennitölur. Vonast er til að ná til þessara hópa með nýjum bólusetningarbíl, sem meðal annars verður ekið á framkvæmdasvæði og verslunarmiðstöðvar.

Notast við „bólusetningarstrætó“ til að ná til óbólusettra
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hyggst notast við sérstakan strætisvagn í yfirstandandi bólusetningarátaki. Öllum ráðum skuli beitt til að veita fólki tækifæri til að komast í bólusetningu og að ná til óbólusettra.

Sigurður Ingi vill skoða aðgangsstýringu með bólusetningarvottorðum
Samgönguráðherra vill skoða hvort taka ætti upp aðgangsstýringu að opinberum stöðum með bólusetningarvottorðum líkt og gert hefur verið í ýmsum öðrum löndum. Sóttvarnalæknir telur það koma til greina eftir að búið verður að gefa meirihluta þjóðarinnar örvunarskammt til varnar covid-19.

Kórónupassi gæti komið til skoðunar eftir örvunarskammta
Það ætti að liggja fyrir í lok vikunnar hvort grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða til þess að ná tökum á faraldrinum að mati Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Metfjöldi greindist með kórónuveiruna í gær.

Krafa um bólusetningarvottorð siðferðileg og pólitísk spurning
Ísland stendur gríðarlega framarlega þegar horft er til fjölda bólusettra og fjölda látinna í kórónuveirufaraldrinum. Stefna stjórnvalda hefur miðað að því að veita miklar upplýsingar og leyfa fólki sjálfu að velja hvað það gerir, sem hefur eflt samstöðu þjóðarinnar.

Búin að bíða í ofvæni eftir þriðju sprautunni
Vonast er til að 120 þúsund manns fái örvunarbólusetningu í Laugardalshöll á næstu fjórum vikum en sóttvarnalæknir bindur miklar vonir við bólusetningarátakið. Engan bilbug var að finna á þeim sem fengu þriðja skammtinn í Höllinni í dag.

Fyrra smit ígildi einnar sprautu
Þeir sem hafa fengið bæði tvo skammta bóluefnis og Covid-19 munu ekki fá örvunarskammt að svo stöddu. Þetta sagði Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir í Reykjavík síðdegis.

Þúsundir streyma í þriðju sprautuna í Laugardalshöll
Bólusetningarátak hófst í Laugardalshöll í morgun og mun fyrsti hluti átaksins standa yfir næstu fjórar vikurnar eða til 8. desember. Þau sem nú hafa fengið boð eru þau sem fyrst fengu bólusetningu í vor, 60 ára og eldri og fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Getum aflétt hraðar ef örvunarskammtar gefast vel
Fimm voru lagðir inn á Landspítalann vegna Covid-19 í gær. Sóttvarnalæknir segir stöðuna þunga á spítalanum og bindur vonir við að góð mæting í örvunarskammta leiði til betri tíðar. Fjöldabólusetningar hófust aftur í Laugardalshöll í morgun.

Ellefu smitast af þeim um 36 þúsund sem fengið hafa þriðju sprautuna
„Við eigum eftir að gera þetta endanlega upp en mér sýnist að það hafi verið að greinast í kringum 130 til 140 á dag núna yfir helgina, það er föstudag, laugardag, sunnudag. Á því bilinu. Þannig að við erum ekki komin hærra en það en vonandi fer þetta að fara niður.“

Bólusetningar hefjast aftur í Laugardalshöll í dag
Bólusetningarátak hefst í Laugardalshöll í dag og mun fyrsti hluti átaksins standa í fjórar vikur, eða til 8. desember. Bólusett verður frá klukkan tíu til fimmtán mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga og á meðan verður ekki bólusett á Suðurlandsbraut.

Flestir viðbragðsaðilar hafa þegar fengið þriðja skammt
Viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu hafa þegar fengið örvunarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eða klára það á mánudag að sögn yfirlögregluþjóns. Byrjað verður að bjóða almenningi upp á þriðja skammt bóluefnis á mánudag.

Ráðherrar binda vonir við þriðju bólusetninguna og skora á alla að mæta
Harðar sóttvarnaaðgerðir til næstu þriggja vikna taka gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra skorar á alla sem fá boðun að þiggja þriðju bólusetninguna en stefnt sé að því að bólusetja um helming fullorðins fólks fyrir áramót.

Vonbrigði að þessi staða sé uppi þrátt fyrir bólusetta þjóð
Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra segir það gríðarleg vonbrigði að staðan sé jafn slæm og raun ber vitni í kórónuveirufaraldrinum. Metfjöldi hefur greinst smitaður af veirunni nær alla daga þessarar viku og hafa sóttvarnaaðgerðir nú verið hertar til muna vegna stöðunnar .

Austurríkismenn horfa fram á útgöngubann fyrir óbólusetta
Yfirvöld í Austurríki eru sögð örfáum dögum frá því að koma á útgöngubanni fyrir óbólusetta. Metfjöldi greindist með Covid-19 í landinu á síðustu 24 klukkustundum, eða 11.975.