
Eldgos og jarðhræringar

Fáu spáð en vel fylgst með
Vangaveltur eru margar um goslok við Grindavík, landris og -sig við Svartsengi og tengsl gosvirkninnar og þriggja eldgosa við Fagradalsfjall. Grunnmæligögn eru traust, um jarðskorpuhreyfingar, rúmmálsbreytingar í geymsluhólfi kviku og efnasamsetningu hennar, bæði úr gosunum við Grindavík og Fagradalsfjall. Gögnin segja forvitnilega sögu.

Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos
Veðurstofan sendi fjölmiðlum rétt í þessu tilkynningu um eldgos sem gæti hafist innan skamms við Öræfajökul. Þó er allt með kyrrum kjörum við Öræfajökul og ekki búist við eldgosi í alvöru þar sem að þessi tilkynning var æfing.

Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu.

Lokað í Bláa lóninu vegna gasmengunar
Lokað verður í Bláa lóninu til hádegis í það minnsta í dag vegna slæmra loftgæða. Í nótt var suðaustanátt og gasmengun úr eldgosinu í Sundhnúkagígum blés til norðvesturs yfir Reykjanesbæ og Bláa lónið.

„Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“
Hópur kylfinga var mættur að leika sinn daglega hring á Húsatóftavelli í nágreni Grindavíkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnudaginn síðastliðinn eftir óvissu sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Meðal þeirra var einn af stofnendum Golfklúbbs Grindavíkur sem segir því fylgja þvílík sæla að geta snúið aftur á völlinn.

Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga
Gasmengun minnkar töluvert í dag og næstu daga með auknum vindi. Gosið mallar áfram og meginstraumur hrauns mjakast til norðurs og norðvesturs.

„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“
Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur.

Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi
Gosmóða frá eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni í dag. Þorsteinn Jóhannsson, umhverfisfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir vindátt stjórna því hvert gosmóðan fer hverju sinni. Í dag hafi verið hægviðri í fyrsta sinn frá því að gosið hófst og því hafi móðan lagst yfir höfuðborgarsvæðið.

Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum
Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi og má því búast við að það gjósi aftur á Reykjanesskaganum. Gosmóða mælist yfir höfuðborginni og víðar á Suðurlandi og Suðvesturlandi og er fólki ráðlagt frá því að hreyfa sig utandyra.

Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra
Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu.

Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi
Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu.

Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag
Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

„Þessi kostnaður hverfur ekki“
Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara.

Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar
Framkvæmdir við Grindavíkurveg hefjast væntanlega í vikunni en til skoðunar er að færa veginn vestar eftir að hraun rann yfir hann um helgina. Vegurinn fór um helgina undir hraun í þriðja sinn síðan eldvirknin hófst við Sundhnúk.

Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni
„Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“

Áætlanir gera ráð fyrir að hraun fari yfir lagnir
Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúka er nú í um 700 metra fjarlægð frá lögnum orkuversins HS orku. Framkvæmdastjóri segir að búið sé að gera allt sem hægt er til að tryggja órofna starfsemi orkuverksins og að atburðir gærdagsins hafi ekki haft nein áhrif.

Vonast til að opna Bláa lónið á næstu dögum
Bláa lónið verður lokað í dag og á morgun hið minnsta. Að sögn framkvæmdastjóra er vonast til þess að hægt verði að opna aftur í næstu viku. Skilyrði fyrir opnun eru að tvær flóttaleiðir frá staðnum séu færar.

Hrauntungan mallar löturhægt áfram
Virki í gígnum sem enn er er virkur í eldgosinu við Sundhnúksgíga er svipuð og undanfarna daga. Hrauntungan sem rann yfir Grindavíkurveg í gærmorgun hreyfist löturhægt eins og er, en viðbragsaðilar eru viðbúnir því að annað áhlaup gæti hafist á ný.

Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi
Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga rann með miklum krafti yfir Grindavíkurveg í dag, eftir að hraunflæði jókst skyndilega í nótt. Hraunbreiðan er nú í um áttahundruð metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt áfram.

Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að lokast hafi tímabundið fyrir flæði úr sunnanverðum gígnum á Sundhnúksgígaröðinni í dag, með þeim afleiðingum að hraunrennsli breyttist.

Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað
Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell og klukkan hálf ellefu í morgun náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Álykta má að áhlaupinu sé lokið en búast má við að það mjatlist eitthvað áfram.

„Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“
Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir atburðarrás morgunsins við Svartsengi hafa verið viðbúna. Helstu vandræðin núna séu gróðureldar sem kviknað hafa út frá hrauninu og slökkviliðið berst við. Hann segir Bláa lónið ekki í hættu.

Hraun runnið að Grindavíkurvegi
Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga er komið að Grindavíkurvegi norðan varnargarðanna við Svartsengi. Búið er að loka gati í varnargarðinum auk þess sem búið er að loka Bláa lóninu.

Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík
Kona á níræðisaldri segir ekki hægt að lýsa atburðunum í Grindavík þann 10. nóvember með orðum. Þrátt fyrir erfiðleika undanfarna mánuði dreymir hana um að komast aftur heim.

Land er hætt að síga í Svartsengi
Aflögunarmælingar undanfarna daga sýna að landsig hafi stöðvast í Svartsengi og því líklegt að flæði kviku frá dýpi inn í kvikusöfnunarsvæðið sé nú sambærilegt því sem er á yfirborði í Sundhnúksgígaröðinni.

Hraungígur brast í morgun
Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með.

Rafmagn komið á í Grindavík
Rafmagn er aftur komið á í Grindavík en þar varð rafmagnslaust skömmu eftir að gos hófst við Sundhnúkagígaröðina í síðustu viku.

Hraunrennsli frá gígnum virðist vera orðið meinlítið
Sú breyting varð í nótt á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur að virknin færðist úr þremur gígum niður í einn. Verulegur kraftur er enn í gosinu.

Einn gígur virkur og kvikusöfnun heldur áfram
Nýleg gögn benda til þess að kvikusöfnun haldi áfram undir Svartsengi líkt og áður. Gígurinn sem ennþá er virkur er staðsettur rétt við þann gíg sem gaus lengst úr í eldgosinu sem hófst 16. mars og endaði 9. maí. Land heldur áfram að síga ólíkt því sem hefur áður sést í eldgosunum á Sundhnúksgígaröðinni.

Vinna í sex sólarhringa til að koma rafmagni á
Allt kapp er nú lagt á að koma rafmagni aftur á í Grindavík en reiknað er með að það verði komið á síðar í vikunni. HS Veitur hóf í gærkvöldi að setja upp varatengingu til bæjarins eftir að skemmdir urðu á loftlínu við Grindavík í síðustu viku þegar að hraunflæði frá áttunda gosinu á svæðinu kveikti í loftlínu við bæinn. Unnið verður á vöktum næstu sex sólarhringa til að ljúka verkinu.