Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 69 ›
Stefna bandamönnum Trumps vegna sakamálarannsóknar í Georgíu Nokkrum af ráðgjöfum og bandamönnum Donalds Trump hefur verið stefnt vegna sakamálarannsóknar sem stendur nú yfir í Georgíuríki vegna viðleitni Trumps við að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020. Meðal þeirra sem búið er að stefna eru Rudy Giuliani, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, og Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður. Erlent 5.7.2022 22:15
Efasemdir um kosningar gufuðu upp þegar þeir sigruðu sjálfir Frambjóðendur í forvali Repúblikanaflokksins sem hafa fullyrt fullum fetum að brögð sé í tafli í kosningum í Bandaríkjunum höfðu engar slíkar efasemdir um úrslitin þegar þeir unnu sjálfir sigra í síðustu viku. Vantraust á kosningum hefur aukist mikið vestan hafs eftir samsæriskenningar Trump, fyrrverandi forseta, og bandamanna hans. Erlent 20.6.2022 13:58
Vissu að það sem þeir báðu Pence um væri ólöglegt Donald Trump og ráðgjafar hans sem vildu að Mike Pence varaforseti neitaði að staðfesta úrslit forsetakosninganna vissu að ráðabrugg þeirra væri ólöglegt. Einn ráðgjafa Trump bað um að vera hafður með á sérstökum náðunarlista. Erlent 16.6.2022 23:20
Sagði Pence ef til vill verðskulda að verða hengdur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fór með lykilhlutverk í valdaránstilraun 6. janúar 2021, þegar stuðningsmenn hans réðust inn í þinghúsið í Washington og freistuðu þess að koma í veg fyrir staðfestingu kjörs Joe Biden sem forseta. Erlent 10.6.2022 06:50
Dómari segir Greene ekki hafa tekið þátt í uppreisn Marjorie Taylor Greene, bandarísk þingkona, má bjóða sig fram til endurkjörs, samkvæmt dómara í Georgíu í Bandaríkjunum. Hópur kjósenda í kjördæmi hennar höfðu reynt að koma í veg fyrir framboð hennar með því að höfða mál gegn henni. Erlent 6.5.2022 20:16
Tæplega átta tíma gat á gögnum Hvíta hússins frá 6. janúar Upplýsingar um símtöl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, á tæplega átta klukkustunda tímabili vantar inn í gögn Hvíta hússins frá deginum þegar stuðningsmenn hans ruddu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna. Þingnefnd sem hefur árásina á þinghúsið til rannsóknar kannar nú hvort Trump hafi notað aðrar og óformlegar leiðir til að ræða við starfsmenn sína og stuðningsmenn. Erlent 30.3.2022 10:49
Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. Erlent 20.1.2022 12:37
Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra. Erlent 20.1.2022 09:48
Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta. Erlent 19.1.2022 07:01
Kallar eftir breytingum á þingi og nýjum kosningalögum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í dag að hann væri hlynntur því að fella niður regluna um aukinn meirihluta í öldungadeildinni, svo Demókratar gætu komið nýjum kosningalögum þar í gegn. Hann sagði það nauðsynlegt til að vernda „hjarta og sál“ lýðræðisins í Bandaríkjunum. Erlent 11.1.2022 23:24
Biden segir Trump halda hnífi að hálsi lýðræðisins Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi forvera sinn í starfi, Donald Trump, harðlega í ræðu sem hann hélt í nótt. Ræðuna bar upp á ársafmæli árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í Washington, þar sem fjöldi fólks ruddist inn og reyndi að koma í veg fyrir að kjör Bidens yrði staðfest. Erlent 7.1.2022 07:09
Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden. Erlent 6.1.2022 09:11
Repúblikanar vilja stjórna hverjir kjósa og hvernig atkvæði eru talin Repúblikanar víðsvegar um Bandaríkin hafa gripið til aðgerða sem taka mið af því að gera flokksmeðlimum auðveldara að snúa niðurstöðum kosninga í Bandaríkjunum. Viðleitnin byggir á grunni ósanninda Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020 gegn Joe Biden. Erlent 30.12.2021 15:01
Þáttastjórnendur Fox News vildu að forsetinn gripi inn í óeirðirnar Þrír þekktir þáttastjórnendur hjá Fox News sendu Mark Meadows, sem þá var hægri hönd Donald Trump í Hvíta húsinu, skilaboð 6. janúar síðastliðinn og biðluðu til hans um að fá forstann til að hvetja fólk til að hverfa frá þinghúsinu í Washington. Erlent 14.12.2021 11:06
Fulltrúi Kanye þrýsti á kosningastarfsmann um að játa á sig kosningasvindl Trevian Kutti, sem starfar fyrir tónlistarmanninn, frumkvöðulinn og forsetaframbjóðandann fyrrverandi, Kanye West, þrýsti á kosningastarfsmenn í Georgíu um að játa kosningasvindl skömmu eftir forsetakosningarnar vestanhafs í fyrra. Erlent 10.12.2021 16:13
Kosningastarfsmenn kæra vegna falsfrétta í Georgíu og hótana Tveir kosningastarfsmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa höfðað mál gegn hægri-öfgasíðunni Gateway Pundit vegna falsfrétta á vefnum um að þær hafi framið kosningasvik í forsetakosningunum í fyrra. Fréttaflutningur miðilsins hafi leitt til þess að þær hafi verið ofsóttar og áreittar. Erlent 2.12.2021 23:49
„Seiðmaðurinn“ dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi Jacob Chansley, sem gengur undir nafninu Qanon seiðmaðurinn, hefur dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðkomu hans að árásinni á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði farið fram á þunga refsingu til að setja fordæmi í aðdraganda fleiri dómsmála gegn fólki sem tók þátt í árásinni. Erlent 17.11.2021 17:59
Árangur Repúblikana skekur Demókrataflokkinn Demókratar hafa áhyggjur af því að niðurstöður ríkisstjórakosninga í Virginíu gefi til kynna að þingkosningarnar á næsta ári muni reynast flokknum erfiðar. Ríkisstjóri Virginíu, sem er Demókrati, tókst ekki að halda embættinu og það þrátt fyrir að Joe Biden, forseti, hafi sigrað Donald Trump með tíu prósentustigum í Virginíu í fyrra. Erlent 3.11.2021 14:12
Svindlbrigslari ákærður fyrir að skila atkvæði látinnar eiginkonu Bandaríkjamaður á miðjum aldri, búsettur í Nevada, hefur verið ákærður fyrir kosningasvindl í síðustu forsetakosningum. Hann er talinn hafa sent inn utankjörstaðaratkvæði í nafni konu sinnar, sem lést árið 2017. Erlent 22.10.2021 16:22
Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Erlent 20.10.2021 23:25
Umdeild endurskoðun í Arizona staðfestir sigur Biden Sex mánaða löng og afar umdeild endurskoðun einkafyrirtækis á úrslitum bandarísku forsetakosninganna í Arizona sem repúblikanar létu fara fram sýndi að opinber úrslit voru rétt. Stofnað var til könnunarinnar vegna samsæriskenninga um að stórfelld svik hefðu kostað Donald Trump sigurinn í Arizona og fleiri ríkjum. Erlent 24.9.2021 09:00
Lögmönnum sem reyndu að snúa við kosningaúrslitunum refsað Alríkisdómari í Michigan í Bandaríkjunum fyrirskipaði að hópi lögmanna sem höfðuðu mál til að reyna að snúa við úrslitum forsetakosninganna í nóvember til stuðnings Donalds Trump verði refsað. Taldi hann lögmennina hafa misnotað réttarkerfið. Erlent 26.8.2021 11:20
Lögregluþjónar þingsins segja sögu sína: „Þú munt deyja á hnjánum“ Yfirheyrslur hófust í dag fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings vegna árásarinnar á þinghúsið í Washington DC í byrjun árs. Lögregluþjónar sem voru á vakt þann dag voru þeir fyrstu sem mættu fyrir þingnefnd sem ætlað er að rannsaka árásina á þinghúsið þann dag. Erlent 27.7.2021 23:00
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. Erlent 13.7.2021 15:41
Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði blessun sína yfir strangari reglur um kosningar sem repúblikanar í Arizona samþykktu árið 2016 í dag. Lögin voru talin koma sérstaklega niður á minnihlutahópum sem eru líklegri til þess að kjósa demókrata. Erlent 1.7.2021 15:36
John Oliver gerir stólpagrín að Michele Ballarin John Oliver tekur íslandsvininn Michele Roosevelt Edwards, betur þekkta sem Michele Ballarin, fyrir í þætti sínum Last Week Tonight sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld. Umfjöllun Kveiks er meðal þess sem Oliver notar til að hæða Ballarin. Lífið 29.6.2021 12:20
Giuliani sviptur lögmannsréttindum í New York Aganefnd áfrýjunardómstóls í New York svipti í dag Rudy Giuliani lögmannréttindum í ríkinu vegna falskra fullyrðinga sem hann setti fram til að fá dómstóla til þess að snúa við kosningaósigri Donalds Trump í nóvember. Erlent 24.6.2021 19:04
Repúblikanar í Michigan fundu enga stoð fyrir svikabrigslum Trump Engin kerfisbundin eða víðtæk kosningasvik áttu sér stað í Michigan í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust samkvæmt rannsókn sem repúblikanar í öldungadeild ríkisþingsins stýrðu. Donald Trump og stuðningsmenn hans héldu fram stoðlausum ásökunum um að brögð hefðu verið í tafli í Michigan. Erlent 23.6.2021 23:45
Ballarin laug í þætti Kveiks og ýtti undir samsæriskenningar Michelle Roosevelt Edwards, eða Michelle Ballarin, laug um það að eiga 30 milljóna Bandaríkjadala setur í Virginíu, í viðtali við Kveik í febrúar á síðasta ári. Setrið er í eigu fjárfestisins David B. Ford, sem dó á síðasta ári, og segist ekkja hans ekki hafa hugmynd um hvernig Edwards komst inn í húsið. Erlent 20.6.2021 10:03
Þrýstu á ráðuneyti að taka undir lygar um kosningasvik Nánustu ráðgjafar Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, þrýstu á æðstu embættismenn í dómsmálaráðuneytinu til að fá þá til að taka undir stoðlausar ásakanir Trump um stórfelld kosningasvik. Þeir kiknuðu þó ekki undan þrýstingnum. Erlent 15.6.2021 16:53