Ragnar Bragi stimplaði sig inn með tveimur mörkum í toppslagnum | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2017 21:10
Keflavík og Fylkir skildu jöfn, 3-3, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Inkasso-deildinni í kvöld. Ragnar Bragi Sveinsson, sem Fylkir fékk á láni frá Víkingi R. fyrr í vikunni, skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir Árbæjarliðið í sumar. Seinna mark Ragnars Braga kom á 88. mínútu þegar hann jafnaði metin í 3-3 sem urðu lokatölur leiksins. Fylkir er því áfram með tveggja stiga forskot á Keflavík á toppi deildarinnar. Marko Nikolic kom Keflavík í 1-0 á 23. mínútu eftir skelfileg mistök Arons Snæs Friðrikssonar í marki Fylkis en Ragnar Bragi jafnaði metin sex mínútum fyrir hálfleik. Lasse Rise, nýi Daninn í herbúðum Keflvíkinga, kom heimamönnum yfir á nýjan leik á 64. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Albert Brynjar Ingason metin með sínu sjöunda marki í sumar. Aðeins tveimur mínútum eftir jöfnunarmark Alberts kom Rise Keflavík yfir í þriðja sinn í leiknum. Það mark dugði þó ekki til sigurs því Ragnar Bragi jafnaði metin tveimur mínútum fyrir leikslok eins og áður sagði. Mörkin úr leik Keflavíkur og Fylkis má sjá í spilaranum hér að ofan. Þór færðist nær efstu liðunum með 2-0 sigri á Þrótti á heimavelli. Aron Kristófer Lárusson og Orri Freyr Hjaltalín skoruðu mörk Þórsara sem hafa verið sjóðheitir upp á síðkastið. Norðanmenn hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Þór er með 25 stig í 4. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Þrótti sem er í sætinu fyrir ofan. Selfoss lyfti sér upp í 5. sæti deildarinnar með 0-2 útisigri á Gróttu. Elvar Ingi Vignisson skoraði bæði mörk Selfyssinga sem voru einum fleiri frá 29. mínútu þegar Gróttumaðurinn Andri Þór Magnússon var rekinn af velli. Grótta er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með átta stig, þremur stigum frá öruggu sæti.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Fótbolti Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Dagskráin í dag: Skagamenn geta stigið stórt skref í átt að Bónus-deildinni Sport Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira