Enski boltinn
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Mætir Liverpool 15 árum eftir að hafa spilað með Gerrard: „Var svo stressaður“ Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Plymouth Argyle mæta stórliði Liverpool í enska bikarnum í dag. Guðlaugur segir mikla spennu fyrir leiknum og ekki síst hjá honum sjálfum enda fyrrum leikmaður Rauða hersins. Enski boltinn 9.2.2025 09:02
Brighton sneri við eftir að hafa lent snemma undir Brighton er komið áfram í sextán liða úrslit FA bikarsins eftir 2-1 sigur gegn Chelsea. Franski framherjinn Georginio Rutter kom að báðum mörkum heimamanna, sem lentu snemma undir. Enski boltinn 8.2.2025 22:00
Willum og félagar úr leik eftir svekkjandi tap gegn Newcastle Newcastle komst áfram í sextán liða úrslit FA bikarsins með 2-3 sigri gegn Birmingham City. Willum Þór Willumsson spilaði síðasta hálftímann fyrir heimamenn en Alfons Sampsted kom ekki við sögu. Enski boltinn 8.2.2025 20:00
Stefán og félagar áfram í FA bikarnum eftir vítaspyrnukeppni Sex leikir fóru fram síðdegis í fjórðu umferð, 32 liða úrslitum, FA bikarsins á Englandi. Útkljá þurfti tvær viðureignir með vítaspyrnukeppni. Enski boltinn 8.2.2025 17:50
Sjóðheitur Jón Daði gaf fyrstu stoðsendinguna Jón Daði Böðvarsson hefur farið frábærlega af stað með sínu nýja liði, Burton. Hann lagði upp markið í 1-1 jafntefli gegn Blackpool í dag. Enski boltinn 8.2.2025 16:58
De Bruyne bjargaði City gegn C-deildarliðinu Englandsmeistarar Manchester City lentu í vandræðum er liðið heimsótti C-deildarlið Leyton Orient í enska bikarnum í dag. Enski boltinn 8.2.2025 11:47
Maguire hetja United í bikarnum Miðvörðurinn Harry Maguire var hetja Manchester United í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í 2-1 endurkomusigri á Leicester City. Enski boltinn 7.2.2025 21:57
Unai Emery býst við miklu af Rashford Marcus Rashford er orðinn leikmaður Aston Villa og gæti spilað sinn frysta leik í enska bikarnum á sunnudaginn. Enski boltinn 7.2.2025 17:32
Rodri í Meistaradeildarhópi Manchester City Manchester City vonast greinilega eftir því að geta notað spænska miðjumanninn Rodri á þessu tímabili. Enski boltinn 7.2.2025 17:01
Sjáðu mörkin sem skutu Liverpool á Wembley Liverpool vann öruggan 4-0 sigur á Tottenham Hotspur í síðari undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum á Anfield í gærkvöld. Liverpool vann einvígið samanlagt 4-1. Enski boltinn 7.2.2025 16:30
„Félagið setur mig í skítastöðu“ Þau óvæntu tíðindi bárust fyrr í dag að enska B-deildar liðið Blackburn Rovers hefur tekið landsliðsmanninn Arnór Sigurðsson úr 25 manna leikmannahópi sínum fyrir lokaátök tímabilsins. Arnór segir félagið setja sig í skítastöðu, hann fékk fréttirnar í morgun. Enski boltinn 7.2.2025 15:09
Spilaði leik með sirloin steik í skónum James Collins, fyrrum varnarmaður Aston Villa og West Ham, hefur greint frá sérkennilegri nálgun á ristarmeiðsli sem plöguðu hann eitt sinn á hans ferli. Enski boltinn 7.2.2025 11:01
Tvíburar mætast í enska bikarnum: „Þetta verður mjög skrýtið“ Það verður tvíburaslagur í elstu fótboltakeppni heims, ensku bikarkeppninni, á morgun þegar Wigan og Fulham mætast í fjórðu umferð keppninnar. Enski boltinn 7.2.2025 09:30
Liverpool í tuttugasta og síðasta sæti í eyðslu Janúarglugginn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta lokaðist í byrjun vikunnar og eitt af þeim liðum sem eyddu engu í honum var Liverpool. Þegar tveir síðustu gluggar eru teknir saman þá kemur athyglisverð staðreynd í ljós. Enski boltinn 7.2.2025 06:30
Vill að stuðningsfólkið syngi söng um sig og noti ABBA lag Anthony Elanga er ein af ástæðunum fyrir því að Nottingham Forest hefur komið flestum á óvart með frábærri frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hann er líka vinsæll í Nottingham-skíri og veit af því. Enski boltinn 6.2.2025 23:32
„Þeir voru of góðir fyrir okkur“ Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, hrósaði Liverpool liðinu eftir að Tottenham tapaði 4-1 á móti Liverpool í undanúrslitaleik enska deildabikarsins i kvöld. Enski boltinn 6.2.2025 22:36
Liverpool mætir Newcastle á Wembley eftir stórsigur á Spurs Liverpool tryggði sér i kvöld sæti í fyrsta úrslitaleik tímabilsins þegar Liverpool vann 4-0 stórsigur á Tottenham í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum. Enski boltinn 6.2.2025 21:56
Sjáðu mörkin sem skutu Newcastle á Wembley Newcastle United mun keppa til úrslita í enska deildabikarnum á Wembley í Lundúnum þann 16. mars næst komandi. Liðið vann 2-0 sigur á Arsenal í gær. Enski boltinn 6.2.2025 14:31
Newcastle gerði grín að afsökun Arteta Newcastle-menn nýttu tækifærið eftir að hafa slegið Arsenal út úr enska deildabikarnum í gærkvöld og gerðu grín að Mikel Arteta, stjóra Arsenal. Enski boltinn 6.2.2025 13:17
Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann Manchester United hefur nú staðfest að argentínski miðvörðurinn Lisandro Martínez hafi skaðað krossband í vinstra hné og ljóst að hann verður lengi frá keppni. Enski boltinn 6.2.2025 12:03
Newcastle lét draum Víkings rætast „Hvílíkt kvöld í Newcastle!“ skrifaði Grammy-verðlaunahafinn Víkingur Heiðar Ólafsson á Instagram eftir að hafa verið sérstakur gestur á leik Newcastle og Arsenal í enska deildabikarnum í gærkvöld. Þar með rættist gamall draumur píanóleikarans. Enski boltinn 6.2.2025 09:00
Liverpool væri ekki á toppnum án VAR Liverpool er með sex stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en það væri ekki svoleiðis ef engin myndbandsdómgæsla væri við lýði í deildinni. Enski boltinn 6.2.2025 07:03
Newcastle á Wembley eftir aðra kennslustund í að refsa Arsenal Newcastle sló Arsenal út úr enska deildabikarnum í kvöld eftir 2-0 sigur í seinni undanúrslitaleik liðanna St. James Park. Newcastle er þar með einu skrefi nær fyrsta titli félagsins í ansi marga áratugi. Enski boltinn 5.2.2025 21:54
Dagný og félagar komust ekki í úrslitaleikinn Dagný Brynjarsdóttir og félagar í West Ham spila ekki til úrslita um enska deildabikarinn í ár en það varð ljóst eftir 2-0 tap á móti Chelsea í undanúrslitaleik í kvöld. Enski boltinn 5.2.2025 21:32
Guardiola þarf skilja einn nýju mannanna eftir útundan Manchester City keypti fjóra öfluga leikmenn í janúarglugganum en þeir fá ekki allir að vera hluti af Meistaradeildarhóp City á þessari leiktíð. Enski boltinn 5.2.2025 18:30
Segir að Ronaldo eigi þátt í óförum Rashford Cristiano Ronaldo stoppaði stutt í seinna skiptið sem hann kom til Manchester United en einn knattspyrnusérfræðingur segir að fórnarkostnaðurinn af komu hans hafi mögulega ýtt einum efnilegasta leikmanni félagsins út af sporinu. Enski boltinn 5.2.2025 17:31
Risavaxið verkefni Arsenal í norðrinu: „Leggjum allt undir“ Skytturnar hans Mikel Arteta í liði Arsenal þurfa að taka á honum stóra sínum í kvöld þegar að liðið heimsækir Newcastle United í seinni leik liðanna í undanúrslitaeinvígi enska deildarbikarsins. Enski boltinn 5.2.2025 16:46
Útskýrði af hverju Napoli fékk ekki Garnacho Launakröfur Alejandro Garnacho gerðu það að verkum að Napoli, topplið Ítalíu, gat ekki fengið argentínska vængmanninn frá Manchester United í janúar. Áhugi Ítalanna var þó mikill. Enski boltinn 5.2.2025 14:33
Trent úr leik en mætir mögulega Guðlaugi Victori Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool, er meiddur í læri og mun ekki taka þátt á morgun í seinni leiknum við Tottenham, í undanúrslitum enska deildabikarsins í fótbolta. Enski boltinn 5.2.2025 13:46
Arteta vonsvikinn Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er vonsvikinn með þá staðreynd að félaginu hafi ekki tekist að bæta nýjum leikmanni við leikmannahóp sinn í nýafstöðnum félagsskiptaglugga. Enski boltinn 5.2.2025 12:31