
Fótbolti

Svona var blaðamannafundur Blika fyrir leikinn gegn Maccabi Tel Aviv
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Kópavogsvelli í dag fyrir leik liðsins gegn Maccabi Tel Aviv í 5.umferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun.

Segir að leikmenn myndu taka á sig launalækkun til að minnka leikjaálagið
Dani Carvajal, varnarmaður Real Madrid, heldur því fram að leikmenn væru til í það að taka á sig launalækkun gegn því að spila færri leiki, minnka álagið og meiðast þar með minna.

Guardiola: Þarf ég að segja þetta aftur?
Það er nánast daglegt brauð að norski framherjinn Erling Haaland bæti einhvers konar markamet enda raðar hann inn mörkum með Manchester City.

VAR-dómararinn í París í skammarkrókinn
Myndbandadómararnir sem störfuðu við leik Paris Saint Germain og Newcastle í Meistaradeildinni í gærkvöldi fá ekki að vinna við leik í kvöld eins og þeir áttu að gera.

Ákvörðun UEFA kom vallarstjóra Laugardalsvallar á óvart: „Virkilegt högg“
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir það hafa verið virkilegt högg fyrir sig og starfsfólk vallarins í gærkvöldi þegar að þau fengu veður af ákvörðun Evrópska knattspyrnusambandsins að færa leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu af vellinum yfir á Kópavogsvöll. Margra vikna vinn er nú farin í súginn og segir Kristinn að vel hefði verið hægt að spila leikinn á Laugardalsvelli sem sé í mjög góðu ásigkomulagi.

Garnacho gaf ungum strák skóna sem hann skoraði undramarkið í
Argentínska ungstirnið Alejandro Garnacho var alveg til í að gefa skóna sína frá því í leiknum á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Blikar munu mæta til leiks gegn Ísraelum
Karlalið Breiðabliks mun mæta til leiks og spila við ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun. Þetta segir Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks en Blikar hafa verið hvattir til að sniðganga leikinn sökum mannúðarkrísunnar fyrir botni Miðjarðarhafs vegna átaka Ísraelshers og Hamas á Gasaströndinni. Sniðganga gæti hins vegar haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir Breiðablik.

Alex kveður eftir „þrjú frábær ár“
Alex Þór Hauksson hefur spilað sinn síðasta leik með sænska félaginu Öster.

Sjáðu vítið umdeilda í París, endurkomur Barca og Man. City og öll hin mörkin
Átta leikir fóru fram í Meistaradeildinni í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá öll mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.

Gömul hetja vill sjá Garnacho hætta að apa eftir Ronaldo
Alejandro Garnacho skoraði stórkostlegt mark með bakfallsspyrnu í sigri Manchester United á Everton um helgina, mark sem Cristiano Ronaldo hefði verið mjög stoltur af. Þetta var líka mark sem aðeins maður með hæfileika, hroka og sjálfstraust Ronaldo gæti skorað.

Tíu mínútur í kælingu fyrir kjaftbrúk eða taktísk brot
Enska úrvalsdeild karla í knattspyrnu stefnir á að taka upp tíu mínútna kælingu fyrir leikmenn sem fá gult spjald fyrir taktískt brot eða munnsöfnuð. Verður þetta ekki eina breytingin sem tekin verður upp á næstu leiktíð.

Barcelona og Atlético Madríd í sextán liða úrslit
Barcelona og Atlético Madríd eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Dortmund áfram eftir góðan sigur í Mílanó
Borussia Dortmund vann 3-1 útisigur á AC Milan í Meistaradeild Evrópu og tryggði sér um leið sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.

Dramatísk vítaspyrna bjargvættur PSG
Kylian Mbappé tryggði París Saint-Germain stig gegn Newcastle United í Meistaradeild Evrópu með marki úr umdeildri vítaspyrnu í blálokin. Stigið þýðir að PSG er í góðri stöðu til að komast áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Evrópumeistararnir með fullt hús stiga eftir magnaða endurkomu
Evrópumeistarar Manchester City þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn RB Leipzig í kvöld þegar liðið vann RB Leipzig 3-2 í Manchester. Staðan í hálfleik var 0-2 en þrjú mörk í síðari hálfleik tryggðu sigurinn og fullkominn árangur heimamanna í Meistaradeildinni til þessa.

Celtic og Antwerp enn á án sigurs
Tveimur af leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu er nú lokið. Celtic og Antwerp eru enn án sigurs og eiga enga möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit né enda í 3. sæti og komast þar með í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Blikar mæta Maccabi Tel Aviv á Kópavogsvelli
Leikur Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu í knattspyrnu mun fara fram á Kópavogsvelli. Líkt og aðrir heimaleikir Breiðabliks átti leikurinn að fara fram á Laugardalsvelli en vetur konungur hefur sett strik í reikninginn.

Lið Óskars Hrafns að sækja Hlyn Frey á Hlíðarenda
Valur hefur samþykkt tilboð norska efstu deildarliðsins Haugasund í hinn unga og efnilega Hlyn Frey Karlsson. Óskar Hrafn Þorvaldsson tekur við stjórn Haugesund þegar tímabilinu í Noregi lýkur.

Miðjumaðurinn frá keppni þangað til á nýju ári
Fábio Vieira, miðjumaður enska toppliðsins Arsenal, verður frá keppni þangað til á næsta ári. Þetta staðfesti Mikel Arteta, þjálfari liðsins, á blaðamannafundi í dag.

Fram semur við þá markahæstu í íslenska fótboltanum á árinu
Framarar hafa styrkt kvennalið sitt fyrir komandi sumar og það með því að semja við leikmanninn sem skoraði mest allra, hjá körlum sem konum, á Íslandsmótinu í knattspyrnu sumarið 2023.

Mata meistari í tveimur mismunandi löndum á þessu ári
Spænski knattspyrnumaðurinn Juan Mata er enn að spila og enn að vinna titla. Hann vann deildir í tveimur löndum á þessu ári og endaði með því langa bið sína.

Ole kveður KR
Ole Martin Nesselquist og Knattspyrnufélag Reykjavíkur hafa komist að samkomulagi um samningslok þar sem að Ole Martin óskaði eftir leyfi frá félaginu til þess að gerast aðalþjálfari hjá liði í heimalandi sínu, Noregi.

Guardiola minnist ótrúlegs Venables
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, vottaði Terry Venables virðingu sína á blaðamannafundi í gær.

Sverrir fær mikið lof fyrir viðbrögð sín á erfiðri stundu fyrir Alexander
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Sverrir Ingi Ingason, leikmaður danska úrvalsdeildarfélagsins FC Midtjylland fær mikið lof á samfélagsmiðlum eftir að hann tók sig til og hughreysti Alexander Lind, leikmann Silkeborgar í leik liðanna á dögunum.

Yfirlýsingar að vænta frá KR vegna Ole Martin
Háværar sögusagnir þess efnis að Ole Martin Nesselquist sé hættur sem aðstoðarþjálfari karlaliðs KR í fótbolta eru nú á kreiki.

„Allt mun einfaldara áður en Messi kom inn í líf mitt“
Spænski blaðamaðurinn Guillem Balague skrifar ítarlega grein á vef BBC þar sem að hann fer yfir Messi æðið sem hefur gripið Bandaríkin í kjölfar komu argentínsku knattspyrnugoðsagnarinnar Lionel Messi til MLS liðsins Inter Miami.

Vallarstjóranum kennt um tap í lykilleik
Það eru ekki aðeins krefjandi aðstæður í Laugardalnum þegar kemur að því að halda fótboltavöllum spilhæfum inn í veturinn.

Segir slæma dómgæslu hafa áhrif á orðspor og lífsviðurværi fólks
Knattspyrnustjóri Wolves, Gary O'Neil, var enn og aftur ósáttur við dómgæsluna eftir leik Úlfanna gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Komu Heimi á óvart í beinni í Bítinu
Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálfara karlaliðs Jamaíka í fótbolta, var komið skemmtilega á óvart í beinni útsendingu í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem að hann var til viðtals frá Vestmannaeyjum. Umsjónarmenn Bítisins brustu í söng, Heimi til heiðurs, í upphafi viðtalsins.

Segir að fótboltinn hafi leitt til andláts dóttur sinnar
Enska fótboltafélagið Sheffield United rannsakar nú atburði sem gætu hafa leitt til andláts Maddy Cusack í september.