
Leikjavísir

Angry Birds er vinsælasti tölvuleikur veraldar
Tölvuleikurinn Angry Birds er sá vinsælasti í heimi. Í tilkynningu frá framleiðanda leiksins, Rovio, kemur fram að náð hefur verið í leikinn 500 milljón sinnum.

Íslenskur fótboltaleikur í farsímann
"Þessi leikur hefur verið til í mörg ár, hefur verið spilaður í fjörutíu manna hópi. En það er fyrst núna að við ætlum að koma með hann fram í dagsljósið enda teljum við okkur þekkja vel það sem drífur þátttakendur áfram,“ segir Sigurður Jónsson, tölvufræðingur og framkvæmdarstjóri tölvufyrirtækisins Digon Games.

CCP segir upp 20 prósent starfsmanna
Íslenska fyrirtækið CCP, sem framleiðir meðal annars tölvuleikinn Eve Online sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim, hefur ákveðið að segja upp tuttugu prósent starfsmanna en um 600 starfa hjá fyrirtækinu núna. Þrjátíu og fjórum verður sagt upp í Reykjavík, flestir þeirra Íslendingar.

Nýr tölvuleikur Plain Vanilla seldur hjá Apple
Íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla hefur tilkynnt að nýr tölvuleikur þess, The Moogies, sem ætlaður er fyrir iPhone, iPad og iPod touch verði á næstunni settur á markað í Apple netversluninni. Plain Vanilla hefur hannað og framleitt leikinn hér á landi í samvinnu við bandaríska tölvuleikjaútgefandann Chillingo.

Kepptu í fótbolta-Angry Birds
Tölvuleikurinn Angry Birds er einn sá vinsælasti í heimi í dag en tveir háskólanemar í Bandaríkjunum ákváðu að slá til og keppa í heimatilbúnni fótboltaútgáfu af leiknum.

Reiðir fuglar eru 140 milljarða virði
Rovio Mobile lítið finnskt fyrirtæki sem hannar leiki fyrir farsíma hefur dottið í lukkupottinn með leik sinn Reiðir fuglar (Angry Birds). Reiðir fuglar voru hannaðir fyrir snjallsíma og velgengni þeirra þýðir að finnska fyrirtækið er nú talið 1,2 milljarða dollara virði eða sem nemur tæpum 140 milljörðum kr.

Miðaldra spila tölvuleiki ekki síður en unglingar
Hingað til hafa unglingar verið taldir helstu notendur tölvuleikja og leikjatölva á borð við Playstation og Xbox. Staðreyndin er hinsvegar önnur.

Stálu upplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina
Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi japanska tölvuleikjaframleiðandans Sega um helgina og stálu þaðan persónuupplýsingum um 1,3 milljónir viðskiptavina fyrirtækisins. Um er að ræða nöfn, fæðingardaga, netföng og lykilorð viðskiptavinanna.

Tölvuþrjótar ráðast á heimasíðu EVE Online
Alræmdu tölvuhakkarnir í hópnum LulzSec tilkynntu rétt í þessu árás á heimasíðu tölvuleiks CCP, EVE Online. Framkvæmdastjóri CCP vill ekki tjá sig um málið.


CCP gefur út Playstation leik hjá Sony
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti í nótt að fyrirtækið væri komið í samstarf við tölvuleikjarisann Sony um útgáfu tölvuleiks á Playstation 3 leikjatölvuna. Talsmaður fyrirtækisins segir að leikurinn verði byltingarkenndur.

Konur með yfirhöndina á samskiptavefjum
Konur eru í meirihluta í ákveðnum geira tölvuleikjaspilunar, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem danska viðskiptablaðið Berlingske Tidende greinir frá.

Blómin sem uxu inni í stofu
Tölvuleikjakynslóðin er líklega með fyrirlitnustu kynslóðum síðari tíma (ef frá er talin klámkynslóðin en böðlar hennar virðast líka enn vera í undirbúningsvinnu hvernig leiða skuli hana á höggstokkinn). Litlu skítugu tölvuleikjabörnin með hrákadall á gólfinu eru hins vegar uppvaxin og orðin að stórum tölvuleikjabörnum því barnið í manni er einmitt það sem aldrei hverfur spili maður tölvuleiki.

Íslensk kort ekki verið misnotuð
Ekkert bendir enn til þess að íslensk greiðslukort hafi verið misnotuð eftir að persónuupplýsingum um Playstation 3 notendur sem keypt hafa vörur í gegnum netverslun var stolið í gegnum vef Sony. Alls eru um 77 milljónir notenda skráðar en ekki hefur verið upplýst hvort þjófnaðurinn náði til þeirra allra eða aðeins hluta.

Tölvuþrjótar stálu upplýsingum frá notendum PlayStation
Tölvurisinn Sony hefur varað viðskiptavini sína við því að tölvuþrjótar gætu hafa náð í viðkvæmar upplýsingar um þá sem nota PlayStation leikjatölvuna til þess að tengjast Netinu og spila við aðra tölvuleikjaáhugamenn.

Tilnefndir til tveggja tölvuleikjaverðlauna
"Þetta gerir okkur graðari í að gera enn betur,“ segir Viggó Ingimar Jónasson, einn af stofnendum tölvuleikjafyrirtækisins Fancy Pants Global. Tölvuleikurinn Maximus Musicus hefur verið tilnefndur til tveggja verðlauna á norrænu leikjahátíðinni Nordic Game, sem fer fram í Svíþjóð í maí. Fancy Pants Global framleiðir leikinn, sem er fyrir iPhone-síma, iPad-spjaldtölvur og iPod-tónlistarspilara. „Við erum rétt búnir að starfa í tvö ár. Þetta er fyrsti leikurinn sem við gefum út og því mikill heiður að fá þessa tilnefningu," segir Viggó.

Mike Tyson berst gegn Angry Birds-fíkn
Leikurinn Angry Birds er eitt heitasta málið í tölvubransanum um þessar mundir. Hann er gerður af finnska fyrirtækinu Rovio Mobile, sem hyggur á mikla landvinninga með leiknum og vörum honum tengdum.


Nýjustu Nintendo tölvunni stolið úr verksmiðjunni
Nýjustu leikjatölvunni frá Nintendo, 3DS var nýverið stolið frá verksmiðju í Kína. Enn á eftir að gefa það út hvenær tölvan kemur á markað og hvað hún mun kosta en hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Þjófurinn var snöggur að gera myndband þar sem græjan er sýnd en myndbandinu var snarlega kippt út af YouTube.

Fimbulfamb í nýrri útgáfu
Ný útgáfa af borðspilinu Fimbulfamb er væntanleg fyrir jólin í nýrri útgáfu hjá Veröld. Spilið kom upphaflega út árið 1993 og seldist strax upp. Eftir það hefur Fimbulfamb verið ófáanlegt og hafa verið uppi áskoranir til útgefenda um að endurútgefa spilið. Meðal annars hafa á þriðja þúsund manns undirritað hvatningu þess efnis á Facebook. Núna, eftir sautján ára bið, er spilið loksins að koma út með nýjum orðaforða og í nýjum búningi.

Flestir tölvuleikir fjölskylduvænir
Ian Livingstone, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Eidos, heldur fyrirlestur á ráðstefnunni You Are in Control. Fréttablaðið ræddi við hann um Eve Online, ofbeldi í tölvuleikjum og framtíð iðnaðarins.

Super Mario 25 ára í dag
Super Mario og félagar hans í samnefndum tölvuleikjum fagna 25 ára afmæli sínu í dag. 250 milljón leikir hafa verið seldir frá því fyrsti Super Mario leikurinn var gefinn út af Nintendo tölvuleikjarisanum og því er um að ræða vinsælustu tölvuleikjaröð í sögunni.

Við eigum skilið að fá athyglina
Íslenskt U21 árs landslið hefur aldrei komist í lokakeppni stórmóts í knattspyrnu. Liðið kemst skrefi nær því markmiði með sigri á Þjóðverjum í dag. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum en þau mætast í Kaplakrika í undankeppni EM klukkan 16.15 í dag.

Nintendo, Sony og Microsoft kynna magnaðar nýjungar fyrir leikjatölvur
Risarnir á leikjatölvumarkaðnum láta finna fyrir sér á stærstu samkomu tölvuleikjabransans, E3 í Kaliforníu.

Nýtt myndband CCP slær öllu við
Myndböndin frá fyrirtækinu í Grandagarði hafa verið flott hingað til en þetta slær öllu öðru við.

IBM kynnir nýjan öflugan og orkusparandi örgjörva
Alþjóðlegi upplýsingatæknirisinn IBM mun á morgun, fimmtudag, kynna fyrir íslenskum upplýsingatækniiðnaði IBM POWER7 örgjörvann sem er einn allra öflugasti örgjörvi heims nú um stundir miðað við afkastagetu.

PS3 leikjatölvan hökkuð
Bandaríski tölvuþrjóturinn George Hotz, sem var frægur sem unglingur þegar hann hakkaði iPhone símann frá Apple, segist hafa leikið sama leikinn á PlayStation 3 leikjatölvuna vinsælu.


Mikki mús verður ofurhetja í tölvuleik
Áttatíu árum eftir að Mikki Mús var kynntur til sögunnar á hvíta tjaldinu hefur honum verið úthlutað aðalhlutverkinu í tölvuleik, Epic Mickey, sem settur verður á markað fyrir Wii-leikjatölvur Nintendo á næsta ári.

Góð þátttaka á Guitar-Hero móti
Mikill áhugi og stemmning var hjá ungu kynslóðinni fyrir óopinberu Íslandsmóti í Guitar Hero - World Tour tónlistartölvuleiknum fyrir PlayStation 3 í versluninni Sense Senter í Kringlunni um síðustu helgi. Í tilkynningu frá Sense segir að 17 lið hafi skráð sig til leiks en keppt var í 3-4 manna liðum þar sem liðsmenn spiluðu á gítar, bassa, trommur og sungu með.