Neytendur
19 20 21 22 23 ›
Play góðar fréttir fyrir neytendur: Samkeppni þrýst niður verði hingað til Formaður Neytendasamtakanna telur innreið flugfélagsins Play líklega til þess að þrýsta niður fargjöldum. Forstjóri félagsins segir miðasölu hafa farið vel af stað og að Íslendingar séu greinilega sólþyrstir. Neytendur 18.5.2021 19:01
IKEA innkallar HEROISK og TALRIKA diska, skálar og bolla IKEA hefur hvatt viðskiptavini sem eiga HEROISK og TALRIKA borðbúnað að taka hann úr notkun og skila í IKEA þar sem hann verður að fullu endurgreiddur. Neytendur 18.5.2021 09:39
Meinað að nota lénið polsen.is eftir kvörtun frá Poulsen Neytendastofa hefur meinað Orku ehf að nota lénið polsen.is í tengslum við starfsemi félagsins og gert fyrirtækinu að afskrá lénið. Ákvörðunin er tekin í kjölfar kvörtunar frá samkeppnisaðilanum Poulsen sem á og rekur lénið poulsen.is. Neytendur 17.5.2021 14:27
Banna fullyrðingar Landsbjargar um „umhverfisvæna flugelda“ Neytendastofa hefur lagt bann við fullyrðingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í auglýsingum sínum um sölu þeirra á „umhverfisvænni flugeldum“. Eru fullyrðingarnar taldar ósannaðar, veita rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar og til þess fallna að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Neytendur 17.5.2021 10:22
Bein útsending: Með allt í fanginu - hegðun viðskiptavina stórmarkaða Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um kauphegðun. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12. Neytendur 11.5.2021 11:21
Vegan lasagna innkallað vegna skorts á hveitimerkingu Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti við Vegan lasagna frá PreppUp sem Mealprep ehf. framleiðir. Neytendur 6.5.2021 15:22
Innkalla kjúklingabaunir vegna skordýra Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Sólgæti kjúklingabaunum með uppruna frá Tyrkland sem Heilsa flytur inn. Skordýr, eða bjöllur, hafa fundist í pokanum. Neytendur 29.4.2021 12:54
Allt að 159 prósenta munur á hæsta og lægsta verði Yfir 100% munur er á hæsta og lægsta verði á dekkjaskiptum, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 48 fyrirtækjum víðs vegar um landið. Þar sem hann er hlutfallega mestur munar um 159% á verði eða 9.510 krónum. Neytendur 23.4.2021 13:47
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. Neytendur 19.4.2021 15:44
„Tilboðsfranskar“ heyra sögunni til Þykkvabæjar hefur breytt nafninu á Tilboðsfrönskum fyrirtækisins sem hafa heitið því nafni svo áratugum skiptir. „Þykkvabæjarfranskar“ heita þær núna, en útlitið pakkninganna er þó áfram hið sama – svartir stafir á gulum grunni. Neytendur 19.4.2021 13:10
Vara við neyslu á vörum frá Husk eftir þrjú dauðsföll í Danmörku Matvælastofnun varar við neyslu á Husk Psyllium Froskaller og Husk Psyllium Mavbalance trefjahylkjum og dufti frá fyrirtækinu Orkla Care. Innköllun stendur yfir á öllum lotum varanna hér á landi. Neytendur 16.4.2021 12:07
Fyrirspurnum rignir vegna krafna nýs innheimtufyrirtækis Neytendasamtökin segja að fyrirspurnum hafi rignt inn til samtakanna síðan í gær vegna innheimtufyrirtækisins BPO innheimta ehf. Fyrirtækið hafi sent fólki reikninga í gær með eindaga upp á sama dag. Þá séu dæmi um að kröfur hafi tvöfaldast frá því í gærkvöldi. Neytendur 14.4.2021 13:33
Fella niður vexti smálána í vanskilum BPO Innheimta hefur keypt allt kröfusafn Kredia, Hraðpeninga, Smálána, 1909 og Múla en öll fyrirtækin eru í eigu smálánafyrirtækisins eCommerce 2020. Neytendur 13.4.2021 19:27
Hóflegri tilboð í ár fyrir Íslendinga á faraldsfæti Annað árið í röð vona rekstraraðilar hótela að innlendir gestir komi til með að bjarga ferðamannasumrinu. Vísir tók stöðuna á þremur af stærstu hótelkeðjunum en forsvarsmenn þeirra sammælast um að þó bjartara sé yfir ríki áfram mikil óvissa um komu erlendra ferðamanna. Neytendur 11.4.2021 09:01
Innkalla andlitsgrímur sem eru sagðar veita falskt öryggi Rekstrarvörur hafa hafið innköllun á KN95/FFP2 andlitsgrímum sem stóðust ekki prófanir. Um er að ræða CE merktar persónuhlífar af gerðinni FFP2 sem seldar voru í tíu stykkja pakkningum með vörunúmerinu 10KN95. Neytendur 26.3.2021 17:31
„Ansi nálægt því að vera misnotkun á markaðsráðandi stöðu“ Það að Mjólkursamsalan selji erlendum matvælafyrirtækjum nýmjólkurduft á lægra verði en íslenskum matvælafyrirtækjum fer ansi nálægt því að vera misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Hann segir íslenska framleiðendur ekki eiga annarra kosta völ en að kaupa duftið frá MS þar sem innflutningstollar séu meðal þeirra hæstu í heimi. Neytendur 7.3.2021 23:40
Selur allar vörur á 100 krónur og hefur ekki þurft að sækja í reynslubanka pabba síns „Þú sérð ekki oft þetta verð, hundrað krónur fyrir allt. Og það er búið að vera mjög mikið að gera,“ segir Stefán Franz Jónsson, stofnandi verslunarinnar 100kr.is í samtali við Vísi. Verslunin ber nafn með rentu – allar vörur sem þar eru til sölu kosta 100 krónur. Neytendur 4.3.2021 12:02
Innkalla SFC Boneless Bucket vegna salmonellu Aðföng og SFC Wholesale Ltd í Bretlandi hafa ákveðið að taka úr sölu og innkalla SFC Boneless Bucket í 650g pakkningu. Er það gert eftir að salmonella fannst í einni framleiðslulotu af vörunni. Neytendur 3.3.2021 13:00
Costco ekki orðið við kröfu MAST um innköllun á hundanammi Matvælastofnun (MAST) varar við tiltekinni lotu af hundanamminu Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin frá Irish Dog Food vegna málmflísa sem kaupandi fann í vörunni. Costco flytur vöruna inn og selur í verslun sinni í Kauptúni. Neytendur 2.3.2021 12:15
Kiwisun bannað að birta ósannindi um virkni ljósabekkja Neytendastofa hefur því bannað sólbaðsstofunni Kiwisun, sem til húsa í Borgartúni, að birta ákveðnar fullyrðingar, sem taldar eru ýmist rangar eða ósannaðar, um virkni ljósabekkja fyrirtækisins í kynningum. Neytendur 5.2.2021 10:04
Eigendur inneignarnóta muni líklega sitja eftir með sárt ennið Eigendur inneignarnóta og gjafabréfa í verslanir Geysis, sem lokað var nú um mánaðamótin, munu líklega sitja eftir með sárt ennið, fari fyrirtækið í þrot. Fjölmargar fyrirspurnir hafa borist Neytendasamtökunum um málið en formaður samtakanna segir almennar kröfur í þrotabú því miður sjaldan fást greiddar. Neytendur 4.2.2021 15:24
Mest ánægja með eldsneytissölu Costco en minnst með þjónustu Póstsins Pósturinn mældist með lægstu einkunn allra fyrirtækja sem tóku þátt í Íslensku ánægjuvoginni í fyrra, eða 56,6 stig af 100. Eldsneytissala Costco var aftur á móti hæst með 85,8 stig og er það í fjórða árið í röð sem viðskiptavinir eldsneytissölunnar mælast þeir ánægðustu á Íslandi með marktækum hætti. Neytendur 29.1.2021 10:18
World Class hækkar verð í annað sinn á hálfu ári World Class hækkaði nýverið verðskrá sína og greiða viðskiptavinir í áskrift nú 8.260 krónur á mánuði fyrir að fá að heimsækja stöðvar fyrirtækisins, í stað 7.870 króna áður. Neytendur 19.1.2021 23:38
Skoða hvort breyta þurfi vörumerkinu í ljósi líkinda Einn forsvarsmanna pítsustaðarins Slæs segir að merki staðarins, sem bent hefur verið á að svipi til merkis annars pítsustaðar, sé fengið í gegnum vefsíðuna Fiverr, markaðstorg á netinu þar sem hægt er að kaupa þjónustu af einyrkjum. Verið sé að skoða hvort taka þurfi upp nýtt merki í ljósi líkindanna. Neytendur 19.1.2021 15:19
Innkalla tvær tegundir af Monster Monster Ltd og CCEP hafa innkallað orkudrykkina Monster Lewis Hamilton LH44 og Monster Vanilla Espresso. Allar aðrar tegundir Monster-drykkja, svo sem Monster Green og Ultra, verða ekki fyrir áhrifum vegna þessarar innköllunar. Neytendur 9.1.2021 17:45
Kona innkölluð vegna villu BL Hyundai, sem starfrækir verslun í Kauptúni í Garðabæ, mun þurfa að innkalla 49 bifreiðar af tegundinni Hyundai KONA EV. Um er að ræða bifreiðar af árgerð 2018-2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendastofu. Neytendur 7.1.2021 14:11
Sala áfengis í Vínbúðinni jókst um átján prósent Aldrei hefur meira verið selt af áfengi í Vínbúðinni en í fyrra. Salan jókst um átján prósent á milli ára en aukin sala skýrist af minni sölu í Fríhöfninni og lokun bara og veitingastaða. Neytendur 5.1.2021 08:44
Miklar verðhækkanir á jólamat Samkvæmt nýrri könnun ASÍ hefur matvara hækkað mjög í verði milli ára. Neytendur 23.12.2020 11:52
Lína Birgitta og Sætar Syndir brutu lög með umfjöllun um vöru fyrirtækisins Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sætar Syndir ehf. og áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir hafi gerst brotleg við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Neytendur 23.12.2020 11:00
Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa. Neytendur 3.12.2020 18:13