Skoðun

Velferð fanga kemur okkur öllum við
Rauði krossinn á Íslandi hefur rekið verkefnið Aðstoð eftir afplánun síðan 2018, að norskri og danskri fyrirmynd. Verkefnið er afar mikilvægt framtak þar sem hættan á endurkomu í fangelsi er hæst fyrsta árið eftir lausn og því er nauðsynlegt að styðja við einstaklinga sem vilja ekki falla í sama farið.

Óréttlát lög sem þarf að lagfæra
Eftir hrunið 2008 lentu þúsundir fjölskyldna í skuldavandræðum vegna atburðarrásar sem hafði ekkert með þeirra eigin ákvarðanir að gera. Gengistryggð lán tvöfölduðust á svo gott sem einni nóttu og verðtryggð lán heimilanna hækkuðu ört svo eigið fé heimilanna þurrkaðist upp.

Bless Borgarlína, halló Sundabraut
Árið 1989 fluttu foreldrar mínir á Kjalarnes, sem þá þótti áhugaverður kostur fyrir unga fjöskyldu. Þar bauðst sérbýli á viðráðanlegu verði, fallegt umhverfi og átti Kjalarnes að vaxa mikið á næstu árum. Sundabrautin var á leiðinni og átti að auka aðgengi að bænum.

Stuðlar: neyðarástand í meðferðarkerfinu
Þegar Barnaverndarstofa var stofnuð árið 1996 voru mörg meðferðarheimili í boði fyrir ungmenni í vanda. Á árunum 1996 til 2010 voru um tíu meðferðarheimili starfandi en Barnaverndarstofa lokaði flestum þeirra og árið 2010 voru aðeins þrjú heimili eftir: Laugaland í Eyjafjarðarsveit fyrir stúlkur, Háholt í Skagafirði fyrir erfiða stráka með fjölþættan vanda og Lækjarbakki á Suðurlandi fyrir bæði kynin.

Breytt heimsmynd blasir við Íslendingum
Frá og með 20. janúar 2025 þegar fasistinn Donald Trump tekur við embætti Bandaríkjaforseta í annað og síðasta skipti. Það byggir á því að stjórnarskrá Bandaríkjanna haldi, sem er alls ekki víst að verði raunin hjá þessu hægra öfga fólki.

Það er ekki allt að fara til fjandans!
Af hverju tölum við niður kennara og annað starfsfólk sem vinnur með börnunum okkar?

Gaslýsum almenning
Samskiptastjóri Carbfix, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, skrifaði grein í Morgunblaðið á dögunum sem ber heitið “afeitrum umræðuna”. Hann er þar að vísa til þess að margir hafi áhyggjur af þeim efnum sem munu fylgja því koldíoxíð sem stendur til að flutt verði til Hafnarfjarðar og dælt ofan í berg við íbúðabyggð.

Ískaldur veruleiki, ekki skuggamyndir á vegg fræðimanna
Í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum var mikið í húfi. Í raun má segja að þar hafi tveir menningarheimar tekist á og að úrslitin muni setja mark sitt á menningarumhverfi, stjórnmál og lagasetningu næstu ára.

Er húsið tómt?
Í aðdraganda kosninga er eðlilega bitist um leiðina fram á við. Þar eru línur nú hratt að skýrast. Við tölum fyrir sígandi lukku, lægri álögum, minni ríkisrekstri og meira frelsi til atvinnu og athafna.

Stöndum með ungu fólki
Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn ansi þreyttur á því að lesa um það í fjölmiðlum og heyra stjórnmálafólk tala um mikilvægi þess að hlúa vel að unga fólkinu okkar og að vandamál ungs fólks séu að aukast á sama tíma og lítið er um aðgerðir eða hreinlega að skorið sé niður í þjónustu við ungt fólk.

Tölum um fólkið, ekki kerfin
Nýverið heyrði ég í ungum frumkvöðli sem stofnaði sprotafyrirtæki fyrir nokkrum árum og hefur lagt allt í sölurnar til að byggja undir reksturinn. Það hefur gengið upp og ofan eins og svo oft í heimi frumkvöðla.

Vertu réttu megin við línuna
Hvernig gengur í sjókvíaeldisbaráttunni á Seyðisfirði, spurði hollenskur nýr baráttuvinur minn gær. Ég sagði honum það allra helsta og að það væri smá brekka núna.

Vegur vinstrisins til áhrifa
Við sem höfum bent á þá þróun að öfgahægriflokkar séu að öðlast meira og meira fylgi á Vesturlöndum og höfum varað við þeirri þróun á undanförnum árum bárum von til þess að einhverju leyti á dögunum að Demókratar myndu bera sigur af hólmi í forsetakosningunum vestanhafs.

Börnin á biðlistunum - það er ekki hægt að skálda þetta
Ég stunda viðbótardiplómunám við Háskóla Íslands í “Áhættuhegðun og velferð barna og ungmenna” á sviði menntunar og margbreytileika og einn kúrsinn sem ég sit í er Barnavernd.

Um hvað snýst yfirvofandi læknaverkfall - hvað ber eiginlega á milli samningsaðila?
Óðfluga styttist í verkfall lækna og lítið að frétta af gangi í kjarasamningsviðræðum, milli samninganefndar ríkisins og Læknafélags Íslands.

Lágir vextir og gott veður með draumsýn Viðreisnar um inngöngu í ESB?
Við höfum glímt við verðbólgu og háa vexti í of langan tíma þótt loks sjáist til sólar í þeim efnum. Verðbólgan hefur minnkað um helming og hratt vaxtalækkunarferli er hafið. Skýringar á mikilli verðbólgu og háum vöxtum hér á landi er ekki meginefni þessarar greinar. Við höfum við glímt við röð erfiðleika líkt og aðrar þjóðir, s.s. heimsfaraldur og stríð, sem hefur orsakað innflutta verðbólgu.

„Að ganga á bak orða sinna“ – Hvað þýðir það eiginlega?
Ég hef velt þessu fyrir mér frá því að ég heyrði forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, nota þetta orðatiltæki í viðtali í kvöldfréttum á föstudagskvöld. Þar lýsti hann vonbrigðum yfir því að KÍ og félag lækna væru að þenja sig í kjarabaráttunni. Hann nefndi þessar stéttir ekki með nafni en það var augljóst um hvaða stéttir hann var að ræða.

Hægriflokkarnir boða ójöfnuð fyrir íslenska skóla
Nú styttist í kosningar og einhverjir stjórnmálaflokkar keppast við að bjóða upp á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum. Hægriflokkarnir hafa nú skyndilega fundið mikla ástríðu fyrir menntakerfinu – og þá helst á forsendum afkasta, árangurs og samræmdra prófa. Þegar lagst er yfir þessar tillögur af hægri vængnum er óhætt að fullyrða að hér sé ekkert nýtt undir sólinni. Allt eru þetta skyndilausnir sem hafa margar verið reyndar áður á vakt hægrimanna erlendis, með vægast sagt vondum árangri.

Opinberir starfsmenn: Bákn eða bústólpi?
Það fer fyrir brjóstið á mér hvernig sumt fólk talar af óvirðingu og dónaskap um opinbera starfsmenn. Þeir séu táknmynd of mikilla ríkisumsvifa, hið stóra bákn ríkisins sem stækki á kostnað almennings. Óskilvirkir og sóun á almannafé. Ég mótmæli þessum málflutningi harðlega. Hann á ekki við nokkur rök að styðjast.

Vanræksla á skyldum gagnvart öldruðum og sóun á skattfé
Hvernig viljum við sem þjóð koma fram við kynslóðina sem ól okkur upp og lagði grunninn að þeim lífsgæðum sem við fáum að njóta í þessu landi?

21 blár
Að starfa í skóla er krefjandi en um leið mjög gefandi. Hluti af lífsgæðum er að starfa í góðu starfsumhverfi en pottur virðist vera brotinn hvað þetta varðar í skólum landsins. Tíð langtímaveikindi kennara og mikill veltuhraði skólastjórnenda eru raunvandi, hann þarf að vinna með.

Óheiðarlegur óskalisti Sjálfstæðisflokksins
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Sjálfstæðisflokksins, fékk það mikilvæga verkefni í hendurnar að útbúa uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Hún átti að vera metnaðarfull og trúverðug og fékk hann tæp þrjú ár til verksins. Næstum þúsund daga.

Blóðmeramálið að kosningamáli
Ný myndbrot, frá York Ditfurth og samstarfskonu hans Sabrinu hjá AWF-TSB, samstarfsfólki mínu við gerð fyrstu heimildamyndarinnar um blóðmeraníðið sýnir endurtekið og grimmt dýraníð.

Stjórnlyndi og stöðnun
Það eru að koma kosningar og efnahagsmálin eru til umræðu. Í skoðanakönnunum flýgur Samfylking með himinskautum og röggsamur formaður flokksins ræðir ágæti skattahækkana og sterkara regluverks. Ef við horfum til Norður Ameríku voru Kanada og Bandaríkin með svipaða landsframleiðslu á mann árið 2014.

Kæri húsasmiður og oddviti Samfylkingarnar í Suðurkjördæmi
Takk fyrir að ætla að forða smiðum, hárgreiðslufólki og pípurum í sjálfstæðum rekstri, frá skattahækkunum í tengslum við svokallaða lokun ehf-gatsins.

Eru kennaralausir skólar framtíðin?
Ábyrgð mín sem kennari er mikill. Ég veit það. Og foreldrar vita það. Ekki bara þegar kemur að öryggi og vellíðan barnanna í skólanum. Heldur líka þegar kemur að þroska þeirra og framtíð.

Hamstrahjól ríkisútgjalda
Á undanförnum árum hafa ríkisútgjöld á Íslandi farið sífellt hækkandi með þeim afleiðingum að verðbólga fer ekki aðeins á flug, heldur kallar þessi aukning á keðjuverkun sem hefur áhrif á allan almenning. Með hverju skrefi eykur ríkissjóður útgjöld sín og fær í staðinn auknar skatttekjur vegna hækkandi verðs, spurningin er hvort þessi stefna sé sjálfbær eða hvort við séum föst í vítahring sem erfitt verður að losna úr.

Grindavíkin mín
Nú um helgina er ár síðan við Grindvíkingar þurftum að rýma Grindavík og sá dagur rennur mér seint úr minni. Það er svo stutt síðan en á sama tíma svo óralangt síðan.

Kvíðakynslóðin
Fjórar tillögur að breyttum viðhorfum varðandi snjallsímaeign og samfélagsmiðlanotkun barna.

Einhver sú besta forvörn sem við eigum
Öflugt og fjölbreytt félagsstarf í heimabyggð skapar grunn fyrir einstaklinga til að blómstra og gefa af sér til samfélagsins. Ein af stóru spurningunum sem við skulum ávallt hafa í huga er „Hvernig get ég gefið af mér til samfélagsins?“