Bandaríska útgáfufyrirtækið Universal Music hefur stefnt netveitunni MySpace.com vegna brota á höfundarréttarlögum.
Netveitan býður netverjum upp á að búa til eigin vefsvæði auk þess sem hægt er að leita eftir tónlistar- og myndskrám á netinu, sem þeir geta horft og hlustað á og deilt með öðrum. Universal Music segir að netveitan sé með athæfinu að hvetja netverja til að dreifa efni sín á milli með ólögmætum hætti. Með brotunum hafi rekstraraðilar MySpace hagnast um hundruð milljónir Bandaríkjadala á kostnað tónlistarmanna og annarra höfunda myndefnis.
Forsvarsmenn MySpace vísa ásökununum á bug enda hafi verið unnið með útgáfufyrirtækjum til að tryggja rétt tónlistarmanna.
Í tilkynningu sem forsvarsmenn MySpace.com sendu frá sér vegna málsins um helgina segir að þótt netveitan veiti netverjum tök á að deila sköpunarverkum sín á milli á netinu þá hvetji það ekki til brota á höfundarrétti sé starfsemi fyrirtækisins innan ramma laganna.
Þá setti MySpace upp síu á vef fyrirtækisins, sem koma á í veg fyrir brot á höfundarrétti. Sían kemur í veg fyrir að netverjar geti nálgast efni sem þeir eiga ekki höfundarrétt á eða hafa ekki greitt fyrir.