Fimm stjörnur í Guardian 11. júní 2007 07:00 Amiina Sólrún Sumarliðadóttir, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Edda Ólafsdóttir og Hildur Ársælsdóttir skipa hljómsveitina Amiina sem hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu.
Hljómsveitin Amiina fær fimm stjörnur í breska dagblaðinu The Guardian fyrir tónleika sína í Glasgow á dögunum. Fyrsta plata sveitarinnar, Kurr, kemur út hérlendis í dag. Greinarhöfundur The Guardian segir að tónleikarnir í Glasgow hafi verið mjög hljóðlátir og meira að segja hafi einn barþjónnin þurft að bera olíu á eina klósetthurðina vegna hávaðans sem hún framkallaði. „Amiina spila skrítna, fallega og viðkvæma tónlist sem fær hlustandann til að vera afar varkáran,“ segir í greininni. „Í lok tónleikanna virtist andrúmsloftið þannig að áhorfendum líði eins og þeir hafi notið forréttinda með því að vera viðstaddir. Það er sjaldgæf og yndisleg tilhugsun og fólk verður bara að sjá Amiinu til að trúa þessu.“Náðu góðum samningiFyrsta breiðskífa Amiina, Kurr, kemur út hérlendis í dag en þann 18. kemur hún út í Evrópu og degi síðar í Bandaríkjunum. Smekkleysa gefur plötuna út hér heima en þýska fyrirtækið Ever Records, sem er undir hatti elektróníska útgáfufyrirtækisins K7, gefur hana út erlendis. „Við náðum rosagóðum samningi. Við fáum að halda rosalega miklu ákvarðanafrelsi og við getum gefið út mikið af tónlistinni okkar sjálfar. Þannig að við ráðum okkur mikið sjálfar,“ segir María Huld Markan úr Amiina. Bætir hún því við að góðu dómarnir í bresku fjölmiðlunum hafi verið mjög ánægjulegir. „Það er punkturinn yfir i-ið að fá svona góða dóma, því það getur verið erfitt að fá bresku pressuna með sér. Við erum allar rosalega ánægðar með það.“ Eins og ferðalagMaría segist vera afar ánægð með nýju plötuna. „Hún er reyndar löngu, löngu tilbúin en við erum rosalega ánægðar með hvernig til tókst. Það var smá kúnst að setja hana saman og láta hana hljóma þannig að þetta ætti vel saman á einni plötu. Hún er svolítið eins og ferðalag frá fyrsta laginu til þess síðasta.“ Hættar við hátíðirnarAmiina er hætt við að spila á tónlistarhátíðum í sumar. Ástæðurnar eru tvær að sögn Maríu Huldar. „Það er einfaldlega mjög erfitt að spila á „festivölum“ því við erum með þannig „set up“. Það er líka rosalega langt síðan við fengum hvíld, þannig að við sögðum bara pass við öllum festivölum í sumar.“ Sveitin ætlar þess í stað að fara í tónleikaferð til Evrópu og Bandaríkjanna í september og til Ástralíu, Nýja Sjálands og Japans í framhaldinu. Það eru því spennandi tímar framundan hjá þessari hæfileikaríku hljómsveit. Útgáfutónleikar Amiinu vegna plötunnar hér heima verða haldnir í Iðnó þann 21. júní. [email protected]
Mest lesið „Áttum mörg falleg móment þar sem við töluðum um framtíðina“ Makamál Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Lífið Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Lífið Seldu húsið í stað þess að taka á sig hærri vexti og flytja til Asíu Lífið Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Lífið Laufey sendir lekamönnum tóninn Lífið Sjóræningjar réðust á Íslendinga Lífið Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Gagnrýni Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Lífið Hollywood speglarnir slá í gegn Lífið samstarf Fleiri fréttir Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira