Risalandsmót UMFÍ verður haldið í Kópavogi dagana 5. - 8. júlí. Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu og af því tilefni er efnt til stærsta landsmóts sem haldið hefur verið hér á landi.
Setningarhátíðin verður á Kópavogsvelli og verður mikið um dýrðir. Kynnir
opnunarhátíðar er leikarinn geðþekki, Örn Árnason. Skólahljómsveit Kópavogs leikur ásamt kórum Kársnes- og Snælandsskóla. Friðrik Ómar syngur með kórunum. Þá munu tenórsöngvararnir Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Gunnar Guðbjörnsson og Björn Jónsson syngja.
Hera Björk, Regína Ósk, Margrét Eir og Heiða Ólafs þenja raddböndin og
Eiríkur Hauksson kemur til landsins af þessu tilefni og tekur lagið.
Birgitta Haukdal og Jónsi munu flytja landsmótslagið sem samið var
sérstaklega af Trausta Bjarnasyni fyrir hátíðina og svo munu Götuleikhús
Kópavogs, leikhópurinn Kærleikur og fjöllistamenn frá Hinu Húsinu koma
fram.
Einnig ber að nefna glæsilega fimleikasýningu og glímusýningu sem æfðar
hafa verið sérstaklega fyrir hátíðina. Keppt verður í 800 metra hlaupi og
þáttakendur á mótinu ganga fylktu liði inn á völlinn. Forseti Íslands, menntamálaráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og formaður UMFÍ munu heiðra samkomuna sem verður hin glæsilegasta í alla staði.
Allir velkomnir á Kópavogsvöll - Enginn aðgangseyrir