Ríkið tók of háar skuldir banka yfir [email protected] skrifar 30. júní 2010 05:00 Lilja hefði viljað sjá í mesta lagi einn ríkisbanka og sparisjóðakerfi til hliðar. samsett mynd/kristinn
Formaður viðskiptanefndar segir fullyrðingu AGS um of marga banka sýna að ríkið hafi tekið of háar skuldir yfir með bönkunum. Eignasafnið hafi verið á allt of háu verði. Hagfræðiprófessor segir að bönkunum muni fækka. Ríkið var í lélegri samningsstöðu gagnvart kröfuhöfum og tók eignasafn bankanna yfir á allt of háu verði. Þetta segir Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar. Hún segir fullyrðingu Marks Flanagan hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um of marga banka á Íslandi sýna þetta. Inn í þetta hafi spilað að samninganefnd ríkisins virðist ekki hafa verið með lögfræðiálit um lögmæti gengislánanna, en það hefði styrkt samninga við kröfuhafana. Endurreisn bankakerfisins hafi dregist úr hófi fram og of margir bankar séu starfandi. „Ef ríkið hefði verið í góðri samningsstöðu hefði það getað valið úr hvaða eignasöfn það keypti og sett í einn banka. Ég hefði viljað sjá hér í mesta lagi einn ríkisbanka og svo sparisjóðakerfi. Einkamarkaðurinn ræður svo hvort hann kemur til viðbótar,“ segir Lilja, sem telur að ríkið eigi í allt of mörgum bönkum. Neyðarlögin eru hluti vandans í hennar huga. Vegna þeirra hafi aldrei verið skilið á milli gömlu og nýju bankanna og þeir fyrrnefndu ekki keyrðir í þrot. Samningsstaðan hafi verið svo léleg vegna neyðarlaganna. Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir bankana of marga miðað við smæð hagkerfisins og segir að þeim muni fækka á næstu árum. „Við erum með stærra bankakerfi en við þurfum miðað við stærð hagkerfisins. Það er ljóst að við munum ekki fara út fyrir landsteinana næstu tíu, tuttugu, þrjátíu árin. Það er því líklegt að kerfið muni dragast saman í framtíðinni.“ Þórólfur segir rætt um að leyfa tveimur af stóru bönkunum þremur að sameinast, vegna samkeppnissjónarmiða. Ljóst er að mun harðari kröfur verða gerðar til samsetningar eiginfjár og til innra eftirlits bankanna í kjölfarið á hruninu. Það þýði að erfiðara verði að reka litlar einingar en stórar. „Þá er líklegt að þeir stóru taki þá smærri yfir, eða þeir smærri taki sig saman. Menn eru þó brenndir af því sem gerðist fyrir hrun og þetta gerist því kannski ekki einn, tveir og þrír, heldur yfir mörg ár. Þá eru eignasöfn bankanna þannig að erfitt er að átta sig á verðmæti þeirra.“ lilja mósesdóttir
Innlent Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Viðskipti innlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Sjá meira