Borko og Tilbury blása til veislu í kvöld 19. desember 2012 15:00
Hljómsveitirnar Borko og Tilbury halda saman tónleika á Bar 11 í kvöld. Er um að ræða síðustu stóru tónleika beggja þessara sveita á árinu en báðar hljómsveitirnar sendu frá sér stórgóðar plötur sem hafa vakið talsverða eftirtekt bæði hér heima og erlendis. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 23 en húsið opnar klukkustund fyrr. Miðaverð er 1000 krónur en á tónleikunum verður jafnframt hægt að kaupa plötur beggja sveita á sérstöku jólatilboðsverði. Borko er tónlistarmaðurinn og kennarinn Björn Kristjánsson sem hefur í gegnum árin smíðað, kennt, miðlað, útsett og flutt tónlist á ýmsa vegu og í ýmsum verkefnum. Þegar hann er ekki að mennta og leiðbeina börnum og unglingum á Drangsnesi er ekki ólíklegt að hann sé einhvers staðar að spila með hljómsveitinni FM Belfast, eða kannski að semja tónlist fyrir leikhús. Þó er líklegast að hann sé að sýsla eitthvað í tengslum við hljómsveitina Borko, en það er einmitt þar sem að litrík og melódísk tónsmíði Björns fær að blómstra. Borko sendi frá sér frumburðinn Celebrating Life fyrir um fjórum árum og sína aðra plötu, Born To Be Free, núna í haust. Hljómsveitin Tilbury spratt fram fullsköpuð síðastliðið vor þegar lagið Tenderloin tók að hljóma á öldum ljósvakans. Sveitin varð á skömmum tíma ein umtalaðasta sveit landsins og plata þeirra Exorcise hefur hlotið afbragðs viðtökur og lög af plötunni notið mikilla vinsælda. Sveitin var upprunalega hugarfóstur Þormóðs Dagssonar sem áður hafði getið sér gott orð sem trymbill með sveitum á borð við Jeff Who? og Skakkamanage. Þormóður hafði í nokkurn tíma átt nokkur lög í sarpinum og meðal annars flutt þau undir nöfnunum Save Public og Formaður Dagsbrúnar. Hlutirnir smullu þó ekki saman fyrr en Þormóður fór að taka upp lög sín með Kristni Evertssyni úr hljómsveitinni Valdimar. Við upptökurnar nutu þeir liðsinnis frænda Þormóðs, Arnar Eldjárns gítarleikara auk rytmaparsins Magnúsar Trygvasonar Eliassen og Guðmundar Óskars Guðmundssonar. Þeir félagar mynda nú hljómsveitina Tilbury sem er talin ein ferskasta hljómsveit landsins í dag. Tengdar greinar:Fjölskrúðugt indípoppSúrrealísk sumargjöf
Tónlist Mest lesið Gellurnar fjölmenntu í afmæli Porra Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Lífið Gurrý selur slotið Lífið Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Lífið Gerir mánudagsfiskinn skemmtilegri Matur Fleiri fréttir Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Ísland á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík Björk mætir á stóra skjáinn Gítarleikari Whitesnake fallinn frá Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Sjá meira