Grískir bankar opna á mánudagsmorgun í fyrsta skipti í þrjár vikur. Búast má við löngum biðröðum við bankaútbú þar sem talið er að viðskiptavinir muni flykkjast í bankana til að tæma bankahólf sín sem þeir hafa ekki haft aðgang að seinustu þrjár vikur.
Enn verður takmarkað hversu mikið Grikkir geta tekið út af bankareikningum sínum vegna gjaldeyrishafta. Í stað þess að mega aðeins taka út 60 evrur á dag, eins og verið hefur síðustu vikurnar, verður nú hægt að taka út alls 420 evrur á viku og má taka upphæðina alla í einu af bankareikningnum.
Bankahólf eru undanskilin gjaldeyrishöftum og mega viðskiptavinir því taka hvað sem er úr þeim.
„Við búumst við röðum í útibúum okkar fyrstu tvo til þrjá dagana. Margir munu vilja komast í bankahólfin sín,“ segir talsmaður EFG Eurobank Ergias, þriðja stærsta banka Grikklands.
Ríkisstjórn Grikklands fyrirskipaði að bönkunum yrði lokað á sínum tíma af ótta við allsherjar hrun fjármálakerfisins í landinu. Mikil óvissa ríkti þá um framtíð Grikkja innan evrusvæðisins.
Áhlaup voru gerð á bankana dagana áður en þeim var lokað og tóku Grikkir út allt að 1,6 milljarða evra á dag.
Búist við löngum röðum við gríska banka á mánudag

Tengdar fréttir

Framkvæmdastjóri AGS segir nauðsynlegt að fresta eða fella niður gjalddaga á lánum gríska ríkisins
Grikkir skulda 320 milljarða evra eða tæplega 180 prósent af vergri landsframleiðslu gríska ríkisins.

Merkel segir nýja samninginn síðasta séns
Þýska þingið samþykkir að hefja formlegar samningaviðræður um nýja neyðaraðstoð fyrir Grikkland eftir hvatningu frá kanslara.

Tsipras: „Án ykkar stuðnings er erfitt fyrir mig að gegna áfram starfi forsætisráðherra“
Grískur þingheimur mun greiða atkvæði um frumvörpin fjögur í kvöld, en þau eru forsenda þess að frekari neyðarlán berist.

Sjötíu prósent Grikkja styðja samkomulag við lánardrottna
Ný skoðanakönnun sýnir að einungis 24 prósent Grikkja myndu kjósa að yfirgefa evrusamstarfið.

Varoufakis segir aðgerðir vegna Grikklands dæmdar til að mistakast
Yanis Varoufakis segir Grikki hafa haft val um aftöku eða að gríska ríkið yrði sett á hausinn.