
Ertu ekki hress? Allir í stuði?
Engu að síður virðist samfélagið allt vera mettað af þessari gegndarlausu kröfu um hressleika og lífsgleði hvað sem tautar og raular. Auk þess að eiga að vera hress þá eigum við að sjálfsögðu að njóta velgengni í námi og starfi, eiga hressa vini og ættingja, vera í góðu sambandi við hitt kynið og í líkamlegu formi á við tékkneskan tugþrautarmann. Minna má það ekki vera.
Vandinn er að veruleikinn er oft annar en væntingarnar og allar þessar samfélagslegu kröfur. Okkur gengur misvel að fóta okkur á lífsleiðinni og svo líður okkur stundum einfaldlega illa án þess að á því séu einhverjar sérstakar skýringar. Engu að síður virðist sem allar þessar samfélagslegu kröfur leggist þungt á margan ungan manninn – jafnvel enn þyngra en á konur af einhverjum ástæðum.
Ein af afleiðingunum, af þessari fjarlægð á milli hugmynda og veruleika, er nefnilega sú dapurlega staðreynd að sjálfsvíg eru ein algengasta dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi og sú algengasta í hópi karla á aldrinum 18 til 25 ára. Konur eru vissulega ekki undanskildar þessum vágesti sem sjálfsvíg eru en þær eru þó miklum mun færri sem falla fyrir eigin hendi.
Það geta legið ýmsar og ólíkar ástæður að baki því að hugmyndin um að taka sitt eigið líf vaknar í huga ungrar manneskju. Þunglyndi, ástvinamissir, skilnaður, námsörðugleikar, fíkniefnaneysla, afburðahæfileikar, niðurlæging, deilur og svo mætti lengi telja. En það sem einkennir allar þessar aðstæður er að það er hægt að sigrast á þeim. Fyrsta skrefið er að leita sér hjálpar.
Þá þurfum við öll að vera vakandi og reiðubúin til þess að taka fólki með opnum huga og opnum örmum. Foreldrar, kennarar, systkini, vinir, samstarfsfélagar o.s.frv. þurfa að leggja frá sér kröfuna um hressleika, stuð og líf án hnökra og hlusta eftir hverju því sem gæti falið í sér vísbendingu um eitthvað annað – eitthvað sem ekki verður aftur tekið. Við þurfum líka öll að huga að þeim sem eftir standa ef illa fer. Bægja burt úr samfélaginu því tabúi sem sjálfsvígið er og sinna þeim sem eftir standa í sinni sorg með kærleika, nánd og nærgætni.
Munum að hjálparlína Rauða krossins í númerinu 1717 er alltaf til staðar og innan seilingar. Rauði krossinn vinnur frábært starf í þessum efnum sem mikilvægt er að við leggjum lið og það getum við til að mynda gert með því að styðja fjárhagslega við starfið í síma 904 1500. Vonandi láta stjórnvöld ekki sitt eftir liggja í þessum efnum og styrkja þetta góða starf sem bjargar mannslífum. Auk þess sem klárlega er brýn þörf á að auka fræðslu og vitund á meðal almennings um þennan útsmogna vágest.
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar