Írinn gerði samning við Penguin-bókahúsið sem er stærsti bókaútgefandinn á ensku, en skrifað var undir samninginn í gær.
„Virkilega spenntur fyrir því að hafa skrifað undir samning þess efnis að gefa út ævisögu mína í sumar. Það er hálf óraunverulegt fyrir mig að Penguin hafi komið að máli við mig,“ segir Kavanah á Facebok-síðu sinni.
„Bókin mun fjalla um líf mitt, augljóslega. Sagan verður sögð allt frá barnæsku minni, hvernig ég komst inn í MMA, stofnaði bardagaklúbbinn SB og endaði á því að vinna titla. Á endanum vil ég að fólk þekki mína sögu,“ segir John Kavanagh.
John Kavanagh uppgvötaði Gunnar Nelson á Íslandi fyrir sjö árum og hefur þjálfað hann meira og minna síðan. Hann er, sem fyrr segir, einnig þjálfari írska vélbyssukjaftsins sem er heimsmeistari í fjaðurvigt UFC.
Very excited to announce I've signed an exclusive deal with @penguinrandom to release my autobiography this... https://t.co/6kx7K7W7TJ
— Coach Kavanagh (@John_Kavanagh) January 6, 2016