Vaxandi hitabeltislægð stefnir á strendur Texas Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2017 16:20 Hitabeltislægðin Harvey safnar nú styrk yfir heitum sjó í Mexíkóflóa. Hún gæti orðið að sterkum fellibyl þegar hún gengur á land í Texas. Vísir/AFP
Veðurfræðingar í Bandaríkjunum vara við því að hitabeltislægðin Harvey geti orðið að öflugum fellibyl þegar hún nær ströndum Texas seint á morgun. Útlit er fyrir að úrhelli fylgi storminum sem gæti staðið yfir í allt að fjóra daga. Harvey gæti orðið fyrsti stóri fellibylurinn sem gengur á land í Bandaríkjunum í tólf ár, að því er kemur fram í umfjöllun Washington Post. Lægðin safnar nú kröftum yfir afar hlýjum sjó í Mexíkóflóa og gæti náð styrk 3 eða meira. Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna spáir því að Harvey verði orðinn fellibylur af styrkleikanum þrír þegar hann gengur á land. Varar hún við lífshættulegum sjávarflóðum, úrkomu og vindstyrk sums staðar við strendur Texas. Samkvæmt skilgreiningu á vef Veðurstofu Íslands er vindhraði í fellibyljum af þeim styrk 50-67 m/s og fylgir honum sjávarstaða sem er þrír til fjórir metrar yfir meðallagi. Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, lýsti yfir neyðarástandi í þrjátíu sýslum í gær. Búist er við því að sum svæði verði rýmd í dag.
Fellibylurinn Harvey Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira