Jón Arnór ánægður með orð Loga í klefanum

Íslenska liðið gerði sér vonir um að geta unnið pólska liðið en tapaði leiknum á endanum með 30 stiga mun.
Eftir leikinn var að sjálfsögðu mjög þungt yfir öllum íslensku strákunum inn í klefa en Logi tók þá af skarið.
„Logi steig fram eftir síðasta leik. Hann sagði: Hey, strákar. Það eru þrír leikir eftir og það er ennþá möguleiki. Við töpuðum öllum leikjunum okkar í Berlín en við áttum þá Tyrkina eftir. Við fórum í framlengingu og unnum nærri því þann leik,“ sagði Jón Arnór og bætti við:
„Það voru frábær orð hjá þeim gamla og mótiveraði okkur mjög mikið,“ sagði Jón Arnór eftir Frakkleikinn í gær.
Íslenska liðið spilaði mjög vel í fyrri hálfleik á móti einu sterkasta körfuboltalandsliði heims en í seinni hálfleik sýndu Frakkarnir hvað þeir eru öflugir.
„Þeir eru bara miklu betri en við. Við áttum ekki möguleika. Við sönnuðum það samt fyrir sjálfum okkur að við gátum komið til baka. Við áttum frábæran hálfleik og börðumst alveg eins og ljón,“ sagði Jón Arnór um leikinn við Frakka.
Logi er einu ári eldri en Jón Arnór. Þeir byrjuðu hinsvegar báðir á sama tíma í íslenska A-landsliðinu en Logi hefur leikið mun fleiri landsleiki.
Tengdar fréttir

Tilfinningar sem við höfum ekki fundið fyrir áður
Jón Arnór Stefánsson átti flottan leik gegn Frökkum í gær en það dugði skammt gegn einu besta liði heims. Jón segir að íslenska liðið hafi aldrei upplifað svona vonbrigði áður sem lið eins og að steinliggja á móti Pólverjum á laugardaginn. Jón vill njóta leikjanna sem eftir eru en gætu þeir verið hans síðustu fyrir landsliðið.

Pavel: Aldrei hægt að ásaka þetta lið um vilja- og baráttuleysi
Pavel Ermolinskij, einn lykilmanna íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að það sé ekki hægt að saka íslenska liðið um vilja- og baráttuleysi.

Brynjar: Geri það sem ég er bestur í
Brynjar Þór Björnsson, skytta íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að liðið verði að ná að spila meira en bara tuttugu mínútur góðar til að eiga séns í eins gott lið og Frakkar eru.

Tryggvi: Eins og venjulega taka lið fram úr okkur í 3. leikhluta
Tryggvi Snær Hlinason spilaði 15 mínútur í tapinu fyrir Frökkum á EM í körfubolta í dag. Bárðdælingurinn skoraði fimm stig og tók fjögur fráköst í leiknum.

Elvar Már: Ég held bara að þetta sé munurinn á milli liðanna
Elvar Már Friðriksson fékk að spila mun meira í leiknum á móti Frökkum en í hinum tveimur leikjunum og skoraði meðal annars sína fyrstu þriggja stiga körfu á Eurobasket.

Haukur Helgi: Líkurnar í næstu tveimur leikjum miklu betri en gegn Frökkum
Haukur Helgi Pálsson sagði að íslenska körfuboltalandsliðið hefði átt við ofurefli að etja gegn því franska í dag.