LeBron James óstöðvandi í sigri Cleveland | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. mars 2018 07:30 LeBron James var í stuði. vísir/getty
LeBron James var óstöðvandi í liði Cleveland Cavaliers þegar að það lagði Denver Nuggets að velli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 113-108. LeBron skoraði 39 stig, tók átta fráköst og gaf tíu stoðsendingar en hann skoraði níu stig á lokamínútunum og gerði út um leikinn eftir að gestirnir hentu frá sér 16 stiga forskoti. Cleveland-liðið er enn án Kevins Love og Tristans Thompsons en það er samt sem áður á fínu skriði og reynir hvað það getur að nálgast toppliðin í austrinu en þar vann Toronto í framlengingu í nótt. Og talandi um að vera óstöðvandi. Houston Rockets vann 17. leikinn í röð í nótt þegar að liðið valtaði yfir Milwaukee Bucks á útivelli, 110-99. James Harden var stigahæstur Houston með 26 stig og Chris Paul skoraði 16 og gaf ellefu stoðsendingar en hjá Bucks skoraði Giannis Antetokounmpo 30 stig og tók sjö fráköst.Úrslit næturinnar: Indiana Pacers - Utah Jazz 84-104 Detroit Pistons - Toronto Raptors 119-121 Chicago Bulls - Memphis Grizzlies 119-110 Milwaukee Bucks - Houston Rockets 99-110 Sacramento Kings - New Orleans Pelicans 101-114 LA Lakers - Orlando Magic 108-107 Denver Nuggets - Cleveland Cavaliers 108-113
NBA Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Fleiri fréttir Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Sjá meira