Fylkir vonast eftir Ólafi Inga eftir HM Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. apríl 2018 17:15
Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason gæti gengið til liðs við Fylki eftir Heimsmeistaramótið í Rússlandi. Þetta sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, í Akraborginni í dag. Ólafur Ingi er á mála hjá tyrkneska liðinu Karabükspor, en þar hefur hann verið síðan 2016. Hann er uppalinn Fylkismaður og bindur Helgi vonir við að fá hann aftur í Árbæinn í sumar. „Ásgeir Eyþórsson er að koma til baka til okkar í lok maí og við vonumst eftir að Ólafur Ingi Skúlason komi eftir HM,“ sagði Helgi í Akraborginni. Hann sagði þó ekkert vera frágengið með Ólaf, það sé hins vegar staðfest að Ásgeir Eyþórsson komi aftur í Fylkisliðið í maí. Verið er að vinna að lagningu gervigrass á heimavöll Fylkis í Árbænum, en sú vinna ætti að klárast í júní sagði Helgi. Fylkir þarf því að spila fyrstu heimaleiki sína í deildinni í Egilshöll. Fylkir hefur leik í Pepsi deild karla á útivelli, laugardaginn 28. apríl gegn Víkingi í Fossvoginum. Spjall Hjartar Hjartarssonar við Helga í heild sinni má heyra í sjónvarpsglugganum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti Fimm fengu bann fyrir slagsmálin Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitakeppni karla hefst Sport „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn Fleiri fréttir Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Sjá meira