Eigandi Fulham og Jacksonville Jaguars vill kaupa Wembley Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. apríl 2018 23:00 Wembley er heimavöllur enska landsliðsins og jafnframt höfuðstöðvar enska knattspyrnusambandsins vísir/getty
Eigandi enska 1. deildar félagsins Fulham hefur gert enska knattspyrnusambandinu kauptilboð í Wembley leikvanginn. Shahid Khan á bæði Fulham og bandaríska NFL liðið Jacksonville Jaguars og á hann að hafa boðið 800 milljónir punda í leikvanginn. „Með einkaeigu Wembley getur enska knattspyrnusambandið einbeitt sér að sínu aðal hlutverki, að þróa leikmenn,“ sagði Khan við BBC. Heimildir Sky Sports segja að með sölunni muni enska landsliðið ekki geta spilað alla sína leiki á leikvangnum, þá sérstaklega á haustin. Þrátt fyrir það mun enska knattspyrnusambandið áfram líta á Wembley sem heimili enska landsliðsins. Á síðustu árum hafa leikir í NFL deildinni verið spilaðir í Lundúnum og eru forráðamenn deildarinnar ánægðir með mögulegu kaupin. „Kaupin eru tákn um skuldbindingu þeirra við Bretland og sýn á áframahaldandi þróun í íþróttinni,“ sagði talsmaður NFL deildarinnar Mark Waller. NFL deildin hefur nú þegar gert samning við Tottenham um að tveir leikir á hverju tímabili verði spilaðir á nýjum leikvangi liðsins næstu tíu ár. Wembley var endurgerður árið 2007 og kostaði byggingin 757 milljónir punda. Í janúar á þessu ári sagði enska knattspyrnusambandið að það myndi ljúka afborgunum af byggingunni árið 2024.
Fótbolti NFL Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Sjá meira