Sem fyrr eru Bandaríkin þó heimkynni flestra ofurríkra í heiminum, en í úttekt Forbes má sjá að bandarískir milljarðamæringar, mælt í bandaríkjadölum, eru 585 talsins. Kína og Hong Kong koma þar á eftir með sína 373 milljarðamæringa.
Sé hins vegar litið á Austur-Asíu sem eitt landsvæði snýst taflið við. Heildarfjöldi milljarðarmæringa í Kína, Hong Kong, Indlandi, Japan, Suður-Kóreu, Tælandi og Víetnam í fyrra var rétt rúmlega 600. Þar að auki má finna flesta þá sem eiga meira en milljón bandaríkjadali, umfram virði lögheimilis síns, í þessum ríkjum.
Þó um sé að ræða mörg af fjölmennustu ríkjum heims, og hlutfallslegur fjöldi milljarðamæringa sé því ekki hár, er þessi þróun þó til marks um þann mikla auð sem safnast hefur upp í ríkjunum við vesturströnd Kyrrahafsins.

Kröftugur hagvöxtur á Indlandi, ásamt jöfum hækkunartakti í hinum þróaðri hagkerfum Singapúr, Hong Kong og Japans hafi að sama skapi leikið stórt hlutverk í auðsöfnuninni.
Ríkasti maður Asíu er Ma Huateng en hann er í sautjánda sæti yfir ríkustu einstaklinga heims á Forbes-lista ársins. Hann er framkvæmdastjóri fjarskiptarisans Tencent Holdings sem rekur meðal annars weChat, gríðarvinsæla skilaboðaþjónustu í Kína. Hann er metinn á 45,3 milljarða bandaríkjadala, næstum 5000 milljarða íslenskra króna.
Jack Ma, forstjóri smásölunnar Alibaba, er einnig á meðal 20 ríkustu einstaklinga heims. Alibaba er nú orðið eitt allra verðmætasta fyrirtæki heims en hlutabréfaverð í félaginu tvöfaldaðist á síðasta ári. Jack Ma er metinn á 39 milljarða bandaríkjadala.

Alls ferðuðst 130 milljón Kínverjar til útlanda í fyrra, sem var sjö prósent aukning frá fyrra ári, og talið er að um 10 milljón ný vegabréf verði gefin út í Kína, á hverju ári, í náinni framtíð. Ferðamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að Kínverjar beri jafnframt ábyrgð á fimmtungi heildarneyslu allra ferðamanna heimsins.
Fjórðungur starfa sem verða til í heiminum næsta áratuginn verða í ferðaþjónustu. Greinendur telja að það verði ekki síst kínverska millistéttin sem muni með ferðalögum sínum ýta undir þá þróun.
Ætla má að forráðamenn íslensku flugfélaganna séu fullmeðvitaðir um þessa framtíðarsýn. Bæði WOW Air og Icelandair hafa lagt allt kapp á að hefja beint flug til Asíu. Fyrsta Indlandsflug WOW er fyrirhugað í desember næstkomandi og vonast Icelandair til að hefja áætlunarflug til Indlands frá og með haustinu 2019.