Dómstóll í Gvatemala hefur dæmt hermanninn fyrrverandi, Santos López Alonzo, í 5.160 ára fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorði á um tvö hundruð bændum árið 1982. Borgarastyrjöld stóð yfir í landinu þegar árásin var gerð.
Santos López Alonzo var meðlimur í sérsveitinni Kaibil. Hann var handtekinn í Bandaríkjunum og var framseldur til Gvatemala árið 2016.
Dómstóllinn mat það svo að López Alonzo hafi persónulega borið ábyrgð á 171 af samtals 201 morðum á bændunum. Hlaut hann þrjátíu ára fangelsisdóm fyrir hvert morð, samtals 5.130 ár. Að auki hlaut hann þrjátíu ára dóm fyrir þátt sinn í morði á barni eftir blóðbaðið sem það hafði orðið vitni að.
Refsingin er í raun einungis táknræn, þar sem hámarksfangelsisvist samkvæmt lögum í landinu er fimmtíu ár.
Blóðbaðið í Dos Erres, nærri landamærunum að Mexíkó, átti sér stað í desember 1982, þegar einræðisherrann Efrain Rios Montt stýrði landinu. Alls létu um 200 þúsund manns lífið eða hurfu sporlaust í borgarstríðinu í landinu sem stóð milli 1960 og 1996.
