Boðað var til kosninga eftir að Nursultan Nazarbayev, forseti landsins til margra áratuga, sagði af sér í mars. Nazarbayev er 78 ára gamall og hefur setið sem forseti síðan árið 1991 en fyrir það var hann aðalritari kasakska kommúnistaflokksins frá 1989.
Nazarbayev valdi Kasym-Zjomart Tokayev, sem er bráðabirgðaforseti landsins nú, sem eftirmann sinn og er talinn mjög líklegur til að vinna kosningarnar.
Mótmælendur og frambjóðendur stjórnarandstöðunnar halda því fram að kosningarnar sem fara fram í dag, sunnudag, séu ekki frjálsar og sanngjarnar.
Tokayev, sem er 66 ára gamall, segir þessar ásakanir ekki vera á rökum reistar og lýsti kosningaferlinu sem lýðræðislegu og opnu.
Mótmælin eru viðamikil og eru þau fyrstu í landinu í mörg ár. Greint hefur verið frá því að þau fari fram bæði í höfuðborg landsins, Nur-Sultan og stærstu borg þess, Almaty.
Mótmælin hafa farið friðsamlega fram en hundruð mótmælenda, sem hafa kallað eftir því að fólk sniðgangi atkvæðagreiðsluna, auk fréttamanna og aðgerðarsinna sem fylgdust með hafa verið handteknir af lögreglu.

Fréttamaður BBC í Nur-Sultan hefur séð fólk dregið inn í rútur af óeirða lögreglu.
Tokayev, sem greitt hefur atkvæði í höfuðborginni, hefur hvatt lögreglu til að hafa hemil á sér. Hann sagði í samtali við BBC að ríkisstjórn hans væri umburðarlynd við þá sem hefðu aðrar skoðanir.
Lýðræðisleg stjórnarskipti „bellibrögð“
Mukhtar Ablyazov, leiðtogi bannaða stjórnarandstöðuhópsins Lýðræðisrödd Kasakstan (e. The Democratic Choice of Kazakhstan), hvatti stuðningsmenn sína til að flykkjast út á götur til að mótmæla kosningunum.Ablayazov, sem gerður hefur verið útlægur, telur atkvæðagreiðsluna falsaða og að útkoman sé nú þegar ákveðin, en hann hefur hvatt til friðsamlegra mótmæla í dag og á morgun.
Í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum segir að „þúsundir mótmælenda“ hafi safnast saman á Astana torgi í Almaty.
Mótmælendur kölluðu slagorðin „sniðganga“ og „lögreglan með fólkinu“ áður en þeim var dreift af lögreglu.
Lýðræðisleg stjórnarskipti í Kasakstan eru sögð „bellibrögð“ af Mannréttindavaktinni (e. Human Rights Watch).
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) sendi meira en 300 eftirlitsaðila til að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og hefur aldrei skilgreint kosningar í Kasakstan sem alveg lýðræðislegar.
Aslan Sagutdinov, sem var handtekinn í síðasta mánuði fyrir að halda uppi auðu skilti á mótmælum sagði í samtali við fréttastofu AFP að hann hygðist ekki kjósa.
„Ef þý kýst í ósanngjörnum kosningum ertu að leifa þeim að segja að þær séu sanngjarnar,“ sagði myndbands bloggarinn.
Tokayev er í framboði fyrir stjórnarflokkinn og nýtur stuðnings Nazarbayev en mótframbjóðendur hans eru allir lítið þekktir.