Erna Sóley kastaði 15,85 metra í þriðja kastinu sínu sem var hennar langbesta. Í fyrstu tilraun kastaði hún 15,04 metra og 15,08 metra í annarri tilraun.
Þriðja kastið hjá Ernu Sóleyju má sjá hér fyrir neðan.
Erna Sóley var með besta kastið í B-riðli. Hollendingurinn Jorinde van Klinken var með besta kastið í A-riðli og besta kastið í undanúrslitunum (16,90 metrar).
Úrslitin í kúluvarpi hefjast klukkan 08:30 á morgun.