Fyrstu vikur eins besta útherja deildarinnar hjá Oakland Raiders hafa verið ein löng sápuópera og heimurinn fær að fylgjast með dramadrottningu NFL-deildarinnar bæði í gegnum bandaríska miðla sem og gegn Hard Knocks þáttinn sem verður sýndur á Stöð 2 Sport en fyrsti þátturinn verður sýndur í kvöld.
Antonio Brown mætti í æfingabúðir Oakland Raiders í loftbelg og vitnaði síðan í Muhammad Ali með orðinum „Float like a butterfly, sting like a bee“ nema að hann breytti bee í AB sem er skammstöfun fyrir nafnið hans. Brown hefur hins vegar verið algjörlega bitlaus á æfingunum.
Það er ekki nóg með að Antonio Brown hafi fryst á sér iljarnar í kæliklefanum og hefur lítið getað æft af þeim sökum þá er NFL-deildin hörð á því að skikka hann til að spila með nýjan hjálm á komandi tímabili.
Antonio Brown hefur verið einn allra besti útherji NFL-deildarinnar undanfarin ár en þá spilaði hann með Pittsburg Steelers. Steelers fékk hins vegar nóg af stjörnustælunum í karlinum og skipti honum til Oakland Raiders í sumar.
If you have a "2010 Schutt Air Advantage Adult Large Helmet" then Antonio Brown wants to talk to you https://t.co/FHO906QzN1
— New York Post Sports (@nypostsports) August 13, 2019
Antonio Brown fékk að vita það í fyrra að hann yrði að skipta um hjálm. Síðasta tímabil átti því að fara í að leita sér að nýjum leyfilegum hjálm það er hjálm sem stenst nýjar strangari öryggiskröfur NFL.
Antonio Brown pældi hins vegar ekkert í því og kærði síðan þá ákvörðun NFL-deildarinnar að þvinga hann í að skipta um hjálm í haust. Hann hótaði því meðal annars að hætta í NFL-deildinni en stóð síðan ekki við það þegar áfrýjun hans var hafnað.
Nýjasta útspil útherjans er síðan að auglýsa eftir hjálmi á twitter en hjálmurinn verður að vera framleiddur 2010 eða síðar. Brown lofar að láta viðkomandi fá áritaðan Oakland Raiders hjálm sem hann hefur nota sjálfur á æfingum. Hér fyrir neðan má sjá tilboðið frá Antonio Brown.
"I'm looking for a Schutt Air Advantage Adult Large Helmet that was manufactured in 2010 or after. In exchange I will trade a signed practice worn @Raiders helmet."
— AB (@AB84) August 13, 2019