Mourinho: Sonur minn kallar hann alltaf Sonaldo Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. desember 2019 09:00 Ná vel saman
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, líkti Son Heung-Min við brasilíska snillinginn Ronaldo eftir stórkostlegt mark Suður-Kóreumannsins gegn Burnley í gær. „Jafnvel áður en hann skoraði þetta mark kallaði sonur minn hann Sonaldo, Sonaldo Nazario og í dag spilaði hann eins og Ronaldo,“ segir Mourinho og á þá við þann brasilíska en ekki landa sinn frá Portúgal, Cristiano Ronaldo. Son fékk boltann á eigin vallarhelmingi og labbaði fram hjá meirihluta leikmanna Burnley áður en hann skoraði af öryggi. Eitthvað sem Mourinho hefur séð áður. Mourinho var aðstoðarmaður Bobby Robson hjá Barcelona þegar Ronaldo var að stíga sín fyrstu skref þar. „Það kom upp í huga minn þegar ég sá markið hjá Son. Þá varð ég þess heiðurs aðnjótandi að sitja við hlið Sir Bobby Robson þegar Ronaldo fékk boltann á eigin vallarhelmingi og skoraði mark sem var mjög líkt marki Son í dag. Stórkostlegt mark,“ segir Mourinho áður en hann hélt áfram að ausa Son lofi. „Í gær hitti ég foreldra hans. Þar sá ég hvaðan hann fær þennan magnaða karakter. Hann er frábær og alltaf glaður,“ segir Mourinho. Hér fyrir neðan má sjá mark Ronaldo sem Mourinho talar um.
Enski boltinn Tengdar fréttir Markaveisla Mourinho hélt áfram gegn Burnley Tottenham skorar endalaust undir stjórn Jose Mourinho. 7. desember 2019 16:45 Mest lesið Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Enski boltinn Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Fótbolti Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Handbolti „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Fótbolti Fleiri fréttir Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Maddison tryggði langþráðan heimasigur Diaz kom Liverpool í toppmál Armstrong til Man United frá PSG Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi Sjá meira
Markaveisla Mourinho hélt áfram gegn Burnley Tottenham skorar endalaust undir stjórn Jose Mourinho. 7. desember 2019 16:45