Viðskipti innlent

Sýknuð af 2,3 milljarða kröfu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sólveig og Þórður Már voru sýknuð þar sem málið taldist fyrnt.
Sólveig og Þórður Már voru sýknuð þar sem málið taldist fyrnt. Alþingi/Festir

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Þórð Má Jóhannesson og Sólveigu Pétursdóttur af 2,3 milljarða króna skaðabótakröfu félagsins Lyfjablóms ehf. vegna stjórnarhátta í fjárfestingarfélaginu Gnúpi.

Málið á rætur að rekja til ársins 2006 og taldi dómari ekki tilefni til að beita svokölluðu lengingarákvæði fyrningarlaga, en skaðabótamál fyrnast alla jafna á 10 árum.

Lyfjablómi var því gert að greiða þeim Þórði Má og Sólveigu tvær milljónir króna, hvoru um sig, í málskostnað að sögn mbl. Aðstandendur Lyfjablóms segja við Vísi að málinu verði áfrýjað.

Sjá einnig: Eignir þriggja kynslóða fuðruðu upp

Eigandi Lyfjablóms rakti málaferlin í ítarlegu máli við Bítið á Bylgjunni í lok nóvember síðastliðins. Þar bar hann Þórð sérstaklega þungum sökum, sakaði hann um margvíslegar blekkingar við stjórn Gnúps, sem eiga að hafa orðið til þess að milljarðar hafi tapast.

Dómkröfurnar í málinu voru tvær, alls upp á 2,3 milljarða. Önnur hljóðaði upp á 800 milljónir og laut að kaupum Þórðar á hlut í Gnúpi. Inn í það fléttast félög sem voru í eigu Kristins Björnssonar, en Sólveig Pétursdóttir situr í óskiptu búi eftir Kristinn og dróst þannig inn í dómsmálið. Síðari krafan, 1500 milljóna skaðabótakrafa, var tilkomin vegna hlutafjáraukningar í Gnúpi á síðari hluta árs 2007.

Nánar má fræðast um málaferlin hér.


Tengdar fréttir

Eignir þriggja kynslóða fuðruðu upp

Fjölskylda Björns Scheving Thorsteinssonar krefst alls 2,3 milljarða króna bóta vegna þess sem hún telur blekkingar í starfsemi Gnúps fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×