Carlos Sainz tekur sæti Sebastians Vettel hjá Ferrari eftir þetta tímabilið í Formúlu 1.
Sainz, sem er 25 ára Spánverji, yfirgefur McLaren eftir tímabilið og verður samherji Charles Leclerc hjá Ferrari. Fyrr í vikunni var greint frá því að Vettel myndi yfirgefa Ferrari þegar samningur hans við liðið rennur út eftir tímabilið.
Til að fylla skarðið sem Sainz skilur eftir sig fær McLaren Ástralann Daniel Ricciardo frá Renault. Ricciardo gekk í raðir Renault frá Red Bull fyrir síðasta tímabil. Hjá McLaren verður Ricciardo samherji Bretans Landos Norris.
Á síðasta tímabili varð Ferrari í 2. sæti í keppni bílasmiða en McLaren í því fjórða.
Í keppni ökuþóra endaði Sainz í 6. sæti en Ricciardo í því níunda. Ricciardo komst aldrei á verðlaunapall á síðasta tímabili en besti árangur Sainz var 3. sætið í brasilíska kappakstrinum.
Tímabilið 2020 í Formúlu 1 átti að hefjast í mars en kórónuveirufaraldurinn setti stórt strik í reikninginn og keppni er ekki enn hafin. Tímabilið hefst ekki fyrr en í fyrsta lagi í júlí.