Táningur kom Haraldi í afar slæma stöðu - Berglind og Saga bítast um sæti í 8 manna úrslitum Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2020 18:52 Saga Traustadóttir og Rúnar Arnórsson hafa titil að verja og unnu sína leiki í dag. mynd/[email protected]
Hinn 18 ára gamli Kristófer Karl Karlsson úr GM gerði sér lítið fyrir og vann sigur gegn Haraldi Franklín Magnús í riðlakeppni Íslandsmótsins í holukeppni á Akureyri í dag. Nú er tveimur af þremur umferðum riðlakeppninnar lokið, bæði í karla- og kvennaflokki, en lokaumferðin fer fram í fyrramálið og 8 manna úrslit hefjast eftir hádegi. Haraldur, sem vann mótið 2012, þarf að treysta á að Kristófer tapi gegn bróður sínum, Theodór Emil, til að eiga möguleika á að komast í 8 manna úrslit. Aðeins efsti maður hvers riðils kemst þangað en leikið er í átta fjögurra manna riðlum í karlaflokki. Kristófer vann báða leiki sína í dag, 1/0 gegn Haraldi en 2/0 gegn Sigurði Arnari Garðarssyni. Alls eru sex leikmenn með í karlaflokki sem unnið hafa Íslandsmótið í holukeppni. Rúnar Arnórsson hefur titil að verja og vann báða leiki sína í dag. Auk hans og Haraldar hafa þeir Kristján Þór Einarsson, Arnór Ingi Finnbjörnsson, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson orðið Íslandsmeistarar í holukeppni. Axel og Guðmundur eru í góðum málum en Kristján tapaði gegn Aroni Snæ Júlíussyni og Arnór Ingi hefur tapað báðum sínum leikjum. Í kvennaflokki eru einnig sex kylfingar sem orðið hafa Íslandsmeistarar í holukeppni, og er hver þeirra búin að vinna báða sína leiki. Saga Traustadóttir á titil að verja en þær Berglind Björnsdóttir, sem sigraði 2016, eru saman í riðli og leika á morgun um sæti í 8 manna úrslitum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur unnið mótið tvisvar og þær Valdís Þóra Jónsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir einu sinni hver. Öll úrslit á mótinu má sjá hér.
Golf Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi á LPGA mótaröðinni Rory McIlroy vildi ekki tala við DeChambeau Átta ára Rory McIlroy æfði sig í að hitta inn í þvottavél mömmu sinnar Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið McIlroy vann Masters í bráðabana Hræddur um að McIlroy klúðri málunum Átti bestu byrjun á hring í sögu Masters Sló kúluna í rassinn á starfsmanni McIlroy stoltur af sjálfum sér Rose enn í forystu á Masters en Rory náði erni og er við toppinn Gat ekki haldið lengur í sér og létti á sér á Augusta Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Krakkakrúttin stálu sviðsljósinu á miðvikudegi fyrir Mastersmótið Fylgstu með þessum tíu á Masters Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters „Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“ Skítaveður og æfingum frestað á Augusta Vann fyrsta mótið eftir að hafa losnað úr fangelsi „Hugsaði að þetta myndi fá mig til að halda kjafti“ Tiger hringdi í Trump til að segja honum frá sambandinu McIlroy meiddur í aðdraganda Masters McIlroy annar til að þéna hundrað milljónir á PGA-mótaröðinni Gunnlaugur Árni í hóp fjörutíu bestu í heimi Tiger og Trump staðfesta sambandið Gunnlaugur Árni fagnaði og fer í hóp fimmtíu bestu McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið Sjá meira