Á sýningunni efni:viður í Hafnarborg í Hafnarfirði er viður í forgrunni. Um er að ræða sýningu sem tvinnar saman innanhúshönnun, vöruhönnun og upplifunarhönnun.
„Viður er náttúrulegt efni sem lýtur jafnt lögmálum umhverfisins og hendingarinnar. Hann lætur ekki léttilega að stjórn og hefur efnið oft áhrif á endanlega útkomu, bæði hvað varðar áferð og lögun. Sjónum verður beint að mörkum listgreina sem hafa orðið sífellt óljósari á síðustu árum og eru jafnvel að einhverju marki hætt að skipta máli,“ segir um sýninguna.

Hönnun og myndlist mætast í einu og sama efninu á sýningunni, sem er framlag Hafnarborgar til HönnunarMars í ár. Sýningin mun þó standa opin til 23. ágúst en um helgina mun eiga sér spjall á milli nokkurra þátttakanda sýningarinnar.

„Hugmyndin að baki sýningunni er að tefla saman hönnuðum og listafólki með mismunandi bakgrunn og ólíkar áherslur í myndmáli, sem eiga það þó sammerkt að vinna með og kljást við þetta fallega efni, í einni eða annarri mynd, þegar þau framkalla hugmyndir sínar. Þá verða sýnd ný og nýleg dæmi um verk á sviði myndlistar og hönnunar, sem öll eru unnin úr sama efni:við.“

Þátttakendur sýningarinnar eru Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Agustav (Ágústa Magnúsdóttir og Gustav Jóhannsson), Björn Steinar Blumenstein, Guðjón Ketilsson, Indíana Auðunsdóttir, Nordic Angan, Rósa Gísladóttir, Sindri Leifsson, Tinna Gunnarsdóttir og Unndór Egill Jónsson. Sýningarstjóri er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir. Sýningin er opin alla helgina frá 12 til 17.

Sýnendaspjall – Björn Steinar Blumenstein og Unndór Egill Jónsson 27. júní kl. 14
Um helgina munu eiga sér stað spjall á milli nokkurra þátttakenda sýningarinnar, þar sem gestir geta fengið innsýn í ferli hönnunar og listsköpunar. Í fyrra sýnendaspjallinu, sem fer fram í dag, mætast vöruhönnuðurinn Björn Steinar Blumenstein og myndlistarmaðurinn Unndór Egill Jónsson. Þá verður meðal annars rætt hvað er líkt og ólíkt með nálgun hönnuða og myndlistarmanna við sama efni:við.
Sýnendaspjall – Agustav og Sindri Leifsson 28. júní kl. 14
Í síðara sýnendaspjalli helgarinnar, sunnudaginn 28. júní, mætast hönnunarteymið Agustav, skipað þeim Ágústu Magnúsdóttur og Gustav Jóhannssyni, og myndlistarmaðurinn Sindri Leifsson. Rætt verður um mismunandi sjónarmið og þær svipuðu áskoranir sem felast í því að eiga við sama efni:við.
í Hafnarfirði er einnig sýning um helgina á heimilislínunni Circle hjá hjónunum Ýr Káradóttur og Anthony Bacigalupo á Suðurgötu 8. Línan Circle frá Reykjavík Trading Co. er unnin í samstarfi við keramik listamann og valda veitingastaði nálægt heimili fjölskyldunnar í Hafnarfirði.
HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.