Hörður og Þór sættast | HSÍ endurskoðar reglur Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2020 14:49 Hörður leikur í 2. deild karla en tók einnig þátt í bikarkeppninni í vetur. Facebook/@hordur.isafjordur
Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það harmar umræðu um uppgjör ferðakostnaðar vegna bikarleiks Harðar og Þórs á Ísafirði í vetur. Hörður sendi frá sér pistil á Facebook fyrr í þessari viku þar sem félagið sagði það „ömurlega niðurstöðu“ hjá mótanefnd HSÍ að leggja blessun sína yfir það að ferðakostnaður Þórs vegna leiksins hefði verið 800 þúsund krónur, og að þar með bæri Herði að greiða Þór 400.000 eða helming upphæðarinnar eins og reglur gera ráð fyrir. Sagði í pistlinum að Hörður hefði aldrei þurft að greiða meira en 140.000 krónur til mótherja vegna staks leiks og að það sligaði lítið félag að þurfa að greiða mun hærri upphæð. Í yfirlýsingu frá HSÍ í dag segir að félögin hafi náð sáttum og að málinu sé lokið af báðum aðilum. Uppgjörið sem fór fram rúmist innan reglna HSÍ um uppgjör bikarleikja en að reglurnar verði endurskoðaðar í kjölfar þessa máls. Hörður sendi einnig frá sér yfirlýsingu á fimmtudag og bauð Þórsara velkomna í heimsókn þann 14. mars þegar ungmennalið Þórs mætir Herði í 2 deildinni.
Íslenski handboltinn Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Leik lokið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Í beinni: Man. City - Liverpool | Stórleikur á Etihad Enski boltinn Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Leik lokið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Sjá meira