Utanríkisráðherra Póllands hættir Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2020 13:12 Jacek Czaputowicz hafði gegnt embætti utanríkisráðherra Póllands frá janúar 2018. Getty
Jacek Czaputowicz hefur sagt af sér embætti sem utanríkisráðherra Póllands. Afsögnin kemur á sama tíma og pólsk stjórnvöld þrýsta á að taka að sér leiðandi hlutverk í viðbrögðum Evrópusambandsins vegna ástandsins í nágrannalandinu Hvíta-Rússlandi. Czaputowicz gaf í skyn í júlí að hann gæti brátt sagt af sér eftir að leiðtogar stjórnarflokksins, Laga og réttlætis (PiS) gáfu í skyn að von væri á hrókeringum í ríkisstjórn landsins og ráðherrum mögulega fækkað. Miklar deilur hafa staðið í Hvíta-Rússlandi síðustu dagana í kjölfar forsetakosninganna þar sem landskjörstjórn þar í landi sagði forsetann Aleksandr Lúkasjenkó hafa hlotið um 80 prósent atkvæða. Hafa mikil mótmæli verið á götum borga og fjölmargir fordæmt framkvæmd kosninganna og þá hefur ESB greint frá því að viðskiptaþvingunum verði beitt gegn Hvíta-Rússlandi. Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafa kennt afskiptum erlendra aðila um mótmælin og sagði Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, að hann hefði ekki áhyggjur af stöðunni en að ESB skyldi vinna að því að koma í veg fyrir að Hvíta-Rússland væri svo háð Rússlandi. Afsögn utanríkisráðherrans nú er önnur afsögn pólsks ráðherra á örfáum dögum, en fyrr í vikunni sagði heilbrigðisráðherrann Lukasz Szumowski, af sér í kjölfar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu. Jacek Czaputowicz hafði gegnt embætti utanríkisráðherra Póllands frá janúar 2018.
Pólland Evrópusambandið Mest lesið Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik Erlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Innlent „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Erlent Fleiri fréttir Le Pen sakfelld fyrir fjársvik Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Sjá meira