Hafa fengið ábendingar um að leikmenn eigi erfitt með að fagna snertilaust Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. ágúst 2020 21:00 Erfitt er að venja leikmenn af því að fagna með snertingu eins og þeir hafa alltaf gert. vísir/vilhelm
Knattspyrnusamband Íslands hefur ekki fengið athugasemdir frá sóttvarnaryfirvöldum vegna framkvæmdar leikja á Íslandsmótinu í fótbolta. Til að keppni gæti hafist á ný vegna kórónuveirufaraldursins þurftu félögin í landinu að fylgja ítarlegum sóttvarnarreglum til að minnka möguleika á smiti. Lið mega t.a.m. ekki ganga saman inn á völlinn, þurfa að halda tveggja metra fjarlægð á varamannabekkjum, ekki hrækja á völlinn og þá er ekki heimilt að fagna með snertingu. Að sögn Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, hafa sóttvarnaryfirvöld ekki sett út á framkvæmd leikja á Íslandsmótinu. „Við höfum ekki fengið neina samantekna skýrslu, minnisblað eða neitt formlegt erindi um slíkt,“ sagði Klara í samtali við Vísi í dag. Þrátt fyrir að sóttvarnarreglur kveði á um að leikmenn megi ekki fagna með snertingu hefur það vissulega komið fyrir eins og sjá má dæmi um hér fyrir neðan. Það er þó erfiðara að segja það, og kannski borin von, að venja leikmenn af því að fagna innilega með samherjum sínum eins og þeir hafa alla tíð gert. „Okkur hefur verið bent á að leikmenn eigi erfitt með að snúa þessum áratugagamla vana við,“ sagði Klara. „Auðvitað vildum við óska þess að leikmenn myndu þetta alltaf en ég get ekki áfellst þá mikið þannig lagað. En þetta er ekki í samræmi við okkar tilmæli.“ En hefur KSÍ þurft að brýna fyrir félögunum að fylgja sóttvarnarreglum? „Við vitum ekki annað en þetta hafi gengið nokkuð vel. Eins og alltaf fáum við ábendingar um framkvæmd leikja, hvort sem það er á þessum tímum eða öðrum, sem við komum á framfæri,“ svaraði Klara.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Íslenski boltinn KSÍ Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Sjá meira