Þetta er í fyrsta sinn sem trúnaði er aflétt af hálfu Landsvirkjunar. Norðurál tekur nú annað skref sitt í opinberun langtímasamninga, en nýverið birti fyrirtækið raforkusamning sinn við Orkuveitu Reykjavíkur, í samræmi við samkomulag fyrirtækjanna tveggja.
Greint er frá tíðindunum í sameiginlegri tilkynningu aðila.
Norðurál er þriðji stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar, en Landsvirkjun selur fyrirtækinu um þriðjung þeirrar raforku sem álverið notar. Fyrirtækin hafa átt í farsælu samstarfi í meira en 20 ár, eða allt frá stofnun álversins árið 1997. Síðan þá hefur álverið stækkað og aukið orkukaup sín frá Landsvirkjun. Norðurál kaupir einnig raforku frá fleiri orkusölum á Íslandi. Landsvirkjun selur raforku til Norðuráls samkvæmt tveimur langtímasamningum, auk sölu til skamms tíma eftir atvikum. Langtímasamningarnir eru tengdir markaðsverði.
Samningur 1 kveður á um 161 MW eða 1410 GWst á ári og á rætur að rekja til ársins 1997, þótt þá hafi hann verið minni. Raforkuverðið var upphaflega tengt álverði, en frá 1. nóvember 2019 hefur það verið tengt orkuverði á Nord Pool raforkumarkaði Norðurlandanna. Samningurinn gildir til ársloka 2023.
Samningur 2 er mun minni. Hann kveður á um 25 MW eða 212 GWst á ári og var gerður árið 2009 í tengslum við stækkun álversins. Samningurinn er tengdur álverði og gildir út október 2029.
Bæði Landsvirkjun og Norðurál birta samningana í heild á heimasíðum sínum.