Heiko Vogel, sem var að þjálfa 23 ára lið Borussia Mönchengladbach, missti stjórn á sér í 2-1 sigurleik á Bergisch Gladbach í fjórðu deildinni í Þýskalandi.
Bæði hann og aðstoðarmenn hans, Vanessa Arlt og Nadine Westerhoff, höguðu sér þá mjög ósæmilega gagnvart dómara leiksins Marcel Benkhoff.
Borussia Monchengladbach's under-23 coach Heiko Vogel was ordered to train the women's team as a punishment for "unsporting behaviour," the West German FA confirmed to @uersfeld. https://t.co/XHT84eVxai
— ESPN FC (@ESPNFC) March 17, 2021
Vogel fékk tveggja leikja bann eins og báðir aðstoðarmenn hans. Þar með var ekki öll sagan sögð.
Hinn 44 ára gamli Vogel fékk einnig 1500 evru sekt sem eru 227 þúsund íslenskar krónur. Það sem vakti þó mesta athygli var sú refsing að hann var einnig dæmdur til að þjálfa kvennalið sem hluti af refsingunni.
Vogel þarf að skila sex æfingum hjá kvennaliði fyrir 30. júní næstkomandi.
Nicole Selmer hjá „Frauen im Fussball“ eða „Konur í fótbolta“ var auðvitað allt annað en sátt með þau skilaboð sem var verið að senda með slíkum dóm.
The West Germany FA has come under fire after ordering Borussia Monchengladbach U23 manager Heiko Vogel to coach the women's team as a punishment for "unsporting behavior" https://t.co/HJJj9Rzp5F
— Planet Fútbol (@si_soccer) March 17, 2021
„Þetta sýnir það, að á hvaða getustigi sem er, þá eru fótboltakonur og fótboltastelpur ekki teknar eins alvarlega og fótboltakarlar og fótboltastrákar,“ sagði Nicole Selmer við ESPN.
„Þessi refsing fyrir þennan þjálfara Gladbach setur þjálfun kvenna í fótbolta á sama stað og að sinna samfélagsþjónustu. Það er ekki þannig. Kvennafótbolti er íþrótt og þær sem taka þar þátt eru ekkert minni fagmenn heldur en karlarnir,“ sagði Selmer.
„Þeir sem ákváðu þennan dóm höfðu kannski góð fyrirheit en þeir eru samt að senda skelfileg skilaboð með því að segja að það sé refsing að þjálfa kvenna- eða stelpufótboltalið,“ sagði Nicole Selmer.
Heiko Vogel þjálfaði áður lið Basel í Sviss og undir hans stjórn þá varð svissneska liðið tvöfaldur meistari og skildi líka Manchester United eftir í riðlakeppni Meistaradeildarinnr tímabilið 2011-12.