Skoðun

Það er komið vor

Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar

Því miður erum við enn á ný að hlaupa í skjól. Við fórum úr jólakúlunni í að halda okkur í páskaeggi næstu þrjár vikur. Íslenska þjóðin er vön því að búa við óútreiknanlegt veður. Þessi faraldur hagar sér með svipuðu móti. Nú er ekkert annað í boði en að tryggja aðstæður, fara í skjól og standa af sér veðrið.

Lengi skal manninn reyna, sagði Megas. Þessi lína skýtur upp kollinum þegar maður fer yfir undanfarin misseri. Lífið hefur verið lyftuhús en þjóðin hefur sýnt mikla þrautseigju og samstöðu í baráttunni við heimsfaraldurinn síðastliðið ár. Við höfum öll þurft að færa einhverjar fórnir og aðlaga okkur að þeim aðstæðunum sem ríkja hverju sinni. Staðan er viðkvæm og lítið má út af bregða eins og dagurinn í dag sýnir. Við megum ekki gleyma því, en enn glittir í ljósið við enda gangana. Bólusetning þjóðarinnar er komin á skrið. Áætlanir gera ráð fyrir að meginþorri þjóðarinnar verði bólusettur um mitt sumar.

Ríkisstjórnin hefur brugðist við efnahagslegum afleiðingum faraldursins með fjölmörgum og fjölbreyttum aðgerðum. Hlutabótaleiðin, tekjufallsstyrkir, lokunarstyrkir, tekjutengdar atvinnuleysisbætur og margt fleira. Þessar aðgerðir hafa sannað gildi sitt undanfarið ár og dempað höggið.

Staðan er viðkvæm en traust

Því miður er staðan ennþá erfið og faraldurinn hefur dregist á langinn. Við höfum þó verið lánsöm hér á landi síðustu vikur, en þegar atvinnuleysið er komið þá getur tognað úr því í annan endann. Það skiptir verulegu máli að draga ekki úr aðgerðum of snemma. Það getur haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar þegar litið er til lengri tíma.

Við getum sótt í reynslubanka fyrri ára. Við vitum hvað virkar og hvað þarf að gera. Atvinnulífið þarf að vera í stakk búið til að taka þátt í viðspyrnunni í kjölfar bólusetninga. Það er afar mikilvægt að halda áfram efnahagslegum aðgerðum ríkisstjórnarinnar og bæta í. Sérstöku atvinnuátaki hefur verið hrint af stað undir yfirskriftinni „hefjum störf“. Markmiðið með átakinu er að skapa allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Til þessa aðgerða er ráðgert að verja um 4.500 – 5.000 milljónum króna. Fleiri aðgerðum má koma í gang, t.d. sumarstörf fyrir námsmenn, aðgerðir við að koma atvinnuleitendum í virkni, framlenging hlutabótaleiðarinnar, vegleg ferðaávísun fyrir sumarið.

Allt eru þetta aðgerðir sem draga úr langtímaáhrifum heimsfaraldursins á efnahagslífið. Við gefum ekki eftir á örlagastundu sem þessari.

Klárum leikinn.

Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×