Komist ákærusvið embættisins að þeirri niðurstöðu að sóttvarnalög hafi verið brotin gætu skipuleggjendur átt yfir höfði sér 250-500 þúsund króna sekt.
Lilja Guðný Jóhannesdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans, staðfesti það í samtali við fréttastofu um helgina að árshátíðin hafi farið fram í skólanum á föstudag. Sagðist hún þá hafa átt í samtali við lögregluna á Austfjörðum um hátíðina og varð niðurstaðan sú að ekki væri um sóttvarnabrot að ræða.
Meint sóttvarnabrot, rannsókn Ábendingar bárust lögreglu um hugsanlegt sóttvarnarbrot á Austurlandi á föstudagskvöld....
Posted by Lögreglan á Austurlandi on Monday, April 26, 2021
Ástæðu þess segir hún vera að hátíðin hafi fallið undir reglugerð um sviðslistir en þrír skemmtikraftar stigu á stokk á hátíðinni. Þegar um sviðslistir er að ræða mega alls hundrað koma saman. Veitingar voru hins vegar bornar fram á árshátíðinni en samkvæmt reglugerð um veitingastaði mega aðeins þrjátíu vera inni á veitingastað að hverju sinni.
Á myndböndum, sem fréttastofa hefur undir höndum, frá hátíðinni sjást gestir sitja eða standa þétt saman án þess að bera grímur fyrir vitum.
„Þau þurftu að fara með grímur frá sætum og þegar kemur að félagslífi fylgjum við reglum um sviðslistir. Þá þarftu að raða upp með meters millibili merktum sætum, 100 mega vera saman í sal og 50 á sviði. Þau mega hvergi safnast saman fleiri en 20 ef þau standa upp,“ sagði Lilja Guðný.
Lilja segir hins vegar að grípa hafi þurft inn í einu sinni þegar skemmtikraftarnir hafi stigið á stokk. Þeir komu alla leið úr Reykjavík, Friðrik Dór Jónsson, Auðunn Blöndal og Steindi Jr.
„Við hefðum líklega ekki leyft okkur að halda árshátíðina, þótt við megum það, ef við værum ekki í alveg smitlausum landshluta. Annars hefði ég ekki þorað þetta þó ég má,“ sagði Lilja. Síðast kom innanlandssmit upp á Austurlandi í nóvember.
„Þessir krakkar eru líka saman í skólanum allan daginn alla daga.“