Leita þess sem lak myndbandi af stúlku falla milli lestar og lestarpalls Samúel Karl Ólason skrifar 20. maí 2021 11:16 Stúlka féll milli lestar og lestarpalls þegar táningur virtist reyna að fella hana með hjóli sínu. Forsvarsmenn lestarkerfis Írlands rannsaka nú hvernig myndband af atviki þar sem táningsstúlka féll milli lestar og lestarpallar í Dublin lak á netið. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um Írland og víðar en það sýnir hóp táningsdrengja veitast að stúlkum, hrækja á þær og ógna þeim, með áðurnefndum afleiðingum.
Fjórir drengir hafa verið handteknir vegna atviksins en enginn ákærður. Myndbandið sem rannsóknin snýr er frá 1. apríl. Það sýnir hóp drengja á lestarpallinum þar sem hópur stúlkna kemur hlaupandi og reyna þær að komast um borð í lest sem var að fara af stað. Drengirnir veitast að stúlkunum með ógnandi hegðun. Þeir hrækja á þær og einn þeirra virðist reyna að sparka í höfuð einnar stúlku. Sú síðasta sem kemur hlaupandi verður fyrir ógnun frá tveimur drengjum og við það skrikar henni fótur og hún fellur á milli lestarinnar og lestarpallsins. Stúlkuna sakaði ekki og starfsmaður Irish Rail dró hana fljótt upp. Fjórir táningar, einn þrettán ára og tveir sextán ára, hafa verið handteknir og gerði lögreglan húsleit á minnst fimm stöðum í Dublin vegna rannsóknar á atvikinu. Sá síðasti var handtekinn núna í morgun. Enginn hefur verið ákærður enn sem komið er, samkvæmt frétt Irish Times. Forsvarsmenn Irish Rail ósáttir við að myndbandið hafi ratað á netið. Þeir segja að viðskiptavinir fyrirtækisins eigi að geta gert ráð fyrir því að upptökur úr öryggismyndavélum lestarstöðva rati ekki á netið.
Írland Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira