Samkvæmt yfirlýsingu frá fyrirtækinu hefur umræddum einstakling verið sagt upp störfum en talsmenn Alibaba segja kynferðisbrot ekki verða liðin innan fyrirtækisins.
Kínverskir miðlar birtu um helgina brot úr ásökunum kvenkyns starfsmanns Alibaba, sem sakar yfirmann sinn og viðskiptavin um að hafa brotið gegn sér í vinnuferð til borgarinnar Jinan í Shandong-héraði.
Myllumerki sem stofnað var til að halda utan um ásakanirnar fór á flug á kínverskum samfélagsmiðlum í gær og var meðal mest notuðu myllumerkjanna á Weibo.
Opinber umræða um kynferðisofbeldi hefur aukist til muna í Kína eftir að þarlendir femínistar komu af stað innlendri #metoo-bylgju árið 2018. Eitt stærsta málið sem komið hefur upp á yfirborðið í kjölfarið eru ásakanir á hendur kínversk-kanadísku poppstjörnunni Kris Wu, sem handtekinn var af lögreglu grunaður um nauðgun.
Alibaba er meðal þeirra fyrirtækja sem kínversk yfirvöld hafa vökult auga með en þau hafa freistað þess að koma böndum á umsvif og áhrif innlendra tæknirisa. Fyrirtækið var sektað um milljarða í apríl síðastliðnum vegna samkeppnisbrota.