Með reglunum þyrftu allir snjallsíma að vera með svonefndu USB-C hleðslutengi. Margir framleiðendur nota þess konar tengi nú þegar. Apple hefur fram að þessu notað eigin tengi sem. Nýjustu gerðum Apple-tækja fylgja þó snúrur sem hægt er að stinga í USB-C tengi.
Fyrir Evrópusambandinu vakir ekki aðeins að einfalda líf milljóna neytenda þannig að þeir þurfi ekki lengur að passa upp á fjölda mismunandi hleðslusnúra fyrir mismunandi raftæki heldur vill það draga úr stórfelldum raftækjaúrgangi.
Samkvæmt gögnum framkvæmdastjórnarinnar á meðalmanneskjan í Evrópu að minnsta kosti þrjár hleðslusnúrur og notar tvær þeirra reglulega. Meira en þriðjungur segist ekki hafa getað hlaðið símann sinn að minnsta kosti einu sinni vegna þess að hann fann ekki réttu hleðslusnúruna, að sögn AP-fréttastofunnar.
Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðar ESB, segir að lögunum sé ætlað að binda enda á sölu á hleðslusnúrum sem ýmist virka ekki fyrir öll tæki eða eru ónauðsynlegar.
„Með tillögu okkar geta evrópskir neytendur notað sömu hleðslusnúru með öllum færanlegum raftækjum, mikilvægt skref til að auka þægindi og draga úr sóun,“ segir Breton.
Evrópuþingið á enn eftir að fjalla um tillöguna. Verði hún að lögum í Evrópu væri hægt að nota sömu hleðslusnúruna til að hlaða snjallsíma, spjaldtölvur, stafrænar myndavélar, vasaleikjatölvur og heyrnartól.