Barcelona mátti þola 3-0 tap gegn Benfica er liðin mættust í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Börsungar hafa þar með tapað báðum leikjum sínum til þessa í keppninni.
Barcelona mátti þola 3-0 tap gegn Bayern München í fyrstu umferð og voru Börsungar lentir undir eftir aðeins þriggja mínútna leik í kvöld. Darwin Núñez skoraði þá eftir góða sendingu Julian Weigl.
Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik og heimamenn 1-0 yfir í hálfleik. Um miðbik síðari hálfleiks tvöfaldaði Rafa Silva forystu Benfica eftir að boltinn féll fyrir hann innan vítateigs Börsunga.
Staðan orðin 2-0 og ekki skánaði hún á 77. mínútu þegar heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu. Núñez fór á punktinn og brást ekki bogalistin, staðan því orðin 3-0 og reyndust það lokatölur. Eric Garcia hafði reyndar lítinn áhuga á að klára leikinn og fékk sitt annað gula spjald í liði Barcelona þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Reikna má með að sæti Ronald Koeman, þjálfara Barcelona, sé orðið verulega heitt eftir úrslit kvöldsins en liðið er í 6. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, að loknum sex umferðum og er svo án stiga í Meistaradeildinni að loknum tveimur umferðum.

Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.